Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt í tengslum við andlát manns í Kópavogi hefur verið framlengt til 13. janúar næstkomandi. Hann sætir gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 17.12.2025 10:28
Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Landsréttur hefur ógilt sýknudóm konu, sem ákærð var fyrir að hafa fengið erlendan sérfræðing til að skera forhúð af getnaðarlim sautján mánaða sonar hennar. Landsréttur taldið að dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra hefði ekki getað lagt mat á það hvort umskurnin hefði ógnað lífi eða velferð drengsins á aðkomu sérfróðs meðdómsmanns. Málið fer því aftur til meðferðar í héraðsdómi. 16.12.2025 16:54
„Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Þingmenn héldu áfram að takast á um bandorminn svokallaða í þinginu í dag en aðrar umræður hafa nú staðið í vel á annan tug klukkustunda. Það þýðir að aðrar umræður eru orðnar lengri en aðrar umræður um bandorma síðustu tíu þinga á undan, samanlagt. Þetta setti forsætisráðherra út á og sagði greinilegt að máli skipti hvort fólk væri í meiri- eða minnihluta þegar það ræddi hagstjórnarmál. „Yfirlætisráðherra“ kallaði þingmaður Sjálfstæðisflokksins hann fyrir vikið. 16.12.2025 15:51
Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Margrét Halla Hansdóttir Löf hefur verið dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað föður sínum og gert tilraun til að bana móður sinni á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl síðastliðnum. 16.12.2025 15:30
Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Stjórn Pírata í Kópavogi hefur tekið ákvörðun um að bjóða ekki fram lista Pírata í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi vor. 16.12.2025 13:03
Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hefur sagt skilið við borgarstjórnarflokk Pírata og gengið til liðs við Samfylkinguna. Meirihlutinn í borgarstjórn mun áfram vinna saman. Alexandra Briem verður oddviti Pírata og formaður borgarráðs. Dóra Björt tekur á móti við formennsku í stafrænu ráði borgarinnar og tekur sæti Hjálmars Sveinssonar í borgarráði. 16.12.2025 11:32
Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að prinsippum sem Íslendingar hafi alla tíð staðið fyrir hafi verið fórnað með samningi um makrílveiðar, sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir í morgun. Þá spyr hann hvort þingsköpum hafi verið kippt úr sambandi við gerð samningsins, þar sem fjárlaganefnd hafi ekkert veður fengið af honum fyrr en í morgun. 16.12.2025 11:29
Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan 11:30 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Vísis verða þar kynntar breytingar, sem ræddar verða á fundi borgarstjórnar klukkan 12. 16.12.2025 11:00
Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðs í Súðavík árið 1995 er hvorki að finna álit né vangaveltur nefndarinnar um mögulega ábyrgð einstaklinga á atburðum 16. janúar 1995, þegar fjórtán fórust. Í skýrslunni segir hins vegar að auðvelt sé að vera vitur eftir á. 15.12.2025 16:23
Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og varaþingmaður Viðreisnar, gefur kost á sér til að leiða lista Viðreisnar í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í vor. Hann mun taka sér launalaust leyfi frá utanríkisráðuneytinu á sama tíma. 15.12.2025 14:41