Áfram sól og hlýtt í veðri Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri breytilegri átt eða hafgolu í dag. Víða verður léttskýjað og hlýtt í veðri, en sums staðar þoka við ströndina norðan- og vestanlands og mun svalara. Veður 20. maí 2025 07:03
Brýna fyrir eigendum að skilja hunda ekki eftir í bílum Matvælastofnun hefur brýnt fyrir hundaeigendum á að skilja hunda ekki eftir í bílum þegar heitt er í veðri. Hundur fékk hitaslag og dó á höfuðborgarsvæðinu um helgina og annar endaði á dýraspítala hætt kominn. Innlent 19. maí 2025 12:15
Hársbreidd frá hitameti í borginni Minnstu munaði að hitamet fyrir maímánuð í Reykjavík hefði verið slegið í blíðviðrinu í gær, nánar tiltekið munaði það aðeins hálfri gráðu. Áfram verður hlýtt, þurrt og tiltölulega bjart í dag og á morgun en það dregur síðan til tíðinda á fimmtudag. Innlent 19. maí 2025 11:57
Getur víða farið yfir tuttugu stig Hæð yfir landinu stýrir veðrinu í dag og verður áfram hlýtt í veðri. Útlit er fyrir fremur hæga breytilega átt eða hafgolu og víða björtu veðri, en við ströndina eru líkur á þokulofti, einkum sunnan- og vestanlands. Veður 19. maí 2025 07:20
Þrír góðir veðurdagar framundan: „Rjómablíða út um allt“ Veðurfræðingur segir frávik í loftstraumum valda hlýjunni sem hefur verið undanfarna daga. Næstu þrjá daga verður áfram gott veður áður en væta tekur við. Honum þykir líklegt að maímet hafi fallið á þónokkrum stöðum í dag. Veður 18. maí 2025 23:35
Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Hundur fékk hitaslag og dó á höfuðborgarsvæðinu í gær og endaði annar á dýraspítala hætt kominn. Fjöldi hunda hefur sloppið af heimilum sínum og týnst í dag vegna sólarþyrstra eiganda sem hafa skilið eftir opið út. Innlent 18. maí 2025 18:39
Hitamet maímánaðar frá 1960 næstum fallið Hæsti hiti í Reykjavík mældist í dag 20,4 stig og vantaði aðeins 0,2 stig til að jafna maí-hitamet frá 14. maí 1960. Veður 18. maí 2025 17:48
Hiti getur farið yfir 20 stig Í dag verður hæg breytileg átt á landinu eða hafgola og víða léttskýjað. Líkur eru á þokulofti við ströndina. Hiti á bilinu 10 til 24 stig, hlýjast inn til landsins en svalast í þokulofti. Veður 18. maí 2025 10:30
Svalt þokuloft ekki langt undan Undanfarnir dagar hafa verið með hlýrra móti á landinu og ekkert lát verður á hlýindunum um helgina miðað við veðurspár. Almennt verður léttskýjað og hiti víða yfir 20 gráðum en við suður- og austurströndina verður svalt þokuloft ekki langt undan og þar sem þokan kemur inn á land má búast við hita á bilinu 10 til 13 stig. Innlent 17. maí 2025 08:33
„Ekkert nema gott að segja fyrir gróðurinn og sálarlíf landsmanna“ Garðyrkjufræðingur segir ekkert nema gott hægt að segja um veðurblíðu síðustu daga. Sumarið sé komið til að vera og bændur muni þurfa að hefja heyskap fyrr. Veður 16. maí 2025 20:12
Ekkert lát á sumarveðrinu Enn er spáð björtu og hlýju veðri á landinu í dag og og næstu daga. Hitinn gæti náð 23 stigum á Norðausturlandi þar sem verður hlýjast. Líkur eru þó á þokubökkum við sjóinn á sunnan- og austanverðu landinu. Veður 16. maí 2025 07:31
Nýtt hitamet slegið á Egilsstöðum Nýtt landshitamet í maímánuði var slegið á Egilsstaðaflugvelli í dag þar sem hiti mældist 25,8°C fyrr í dag. Hitametið var áður 25,6°C og var sett á Vopnafirði þann 26.maí 1992. Veður 15. maí 2025 13:46
„Algjört þjófstart á sumrinu“ Gestum á tjaldsvæðinu á Egilsstöðum hefur fjölgað í vikunni og búist við fleiri bætist við um helgina þegar hitinn gæti farið í allt að tuttugu og fimm stig. Framkvæmdastjóri tjaldsvæðisins segir einstaka veðurblíðu hafa verið á svæðinu undanfarið. Innlent 15. maí 2025 13:03
Gæti náð 24 stigum þar sem best lætur Í dag verður áfram hæg og breytileg átt og víða bjartviðri, en suðlæg átt átta til fimmtán metrar á sekúndu suðvestan- og vestanlands og skýjað með köflum. Hiti verður á bilinu 13 til 23 stig, hlýjast verður væntanlega áfram á Norður- og Austurlandi, um 23-24 stig þar sem best lætur. Veður 15. maí 2025 08:16
Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Vegagerðin varar við bikblæðingum á Bröttubrekku í Dalabyggð nú í kvöld. Innlent 14. maí 2025 23:18
„Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veðurfræðingur segir dýrlegt veður verða á öllu landinu verða næstu daga. Fólk skuli fara varlega með eld og vökva þær plöntur sem það vill að lifi þurrkatíðina af. Veður 14. maí 2025 21:32
Hiti á bilinu tíu til 18 stig í dag Í dag má búast við því að það verði suðaustan fimm til 13 metrar á sekúndu og skýjað með köflum. Það verður hvassast við suðvesturströndina, en víða léttskýjað síðdegis. Hiti verður á bilinu tíu til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Veður 14. maí 2025 07:15
Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Slökkviliðið á Austurlandi er á varðbergi vegna aukinnar hættu á gróðureldum en búist er við miklum þurrk og hita þar næstu daga. Slökkviliðsstjóri segist hafa mestar áhyggjur af sumarbústaðabyggðum. Innlent 13. maí 2025 12:08
Allt að tuttugu stiga hiti á Norðausturlandi Spáð er allt að tuttugu stiga hita norðaustanlands í hlýjum og þurrum sunnanáttum sem ganga yfir landið í dag. Ferðalangar á norðanverðu Snæfellsnesi og Vestfjörðum eru varaðir við allhvössum eða hvössum vindstrengjum. Veður 13. maí 2025 07:59
Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Hinn nýi alþjóðaflugvöllur Grænlendinga í Nuuk hefur lokast mun oftar vegna óveðurs en búist var við. Sláandi tölur hafa verið birtar um fjölda aflýstra flugferða frá áramótum. Erlent 12. maí 2025 22:11
Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Hæð suðsuðvestur í hafi og lægð við norðausturströnd Grænlands mun beina suðvestlægri átt til landsins í dag. Yfirleitt verður vindum átta til átján metrar á sekúndu þar sem hvassast verður í vindstrengjum á norðanverðu landinu. Veður 12. maí 2025 06:55
Túnin aftur rennandi blaut en spáð hlýindum í næstu viku „Bændur eru vanir vorflóðum úr Héraðsvötnum en þetta var einstaklega mikið núna,“ segir Guðrún Helga Jónsdóttir, bóndi á Miðhúsum í Skagafirði. Héraðsvötn flæddu í gær yfir tún sem bændur voru nýbúnir að eyða tíma og fjármunum í sáningu en svo flæddi yfir. „Það fór vatn upp að Hegranesi sem er ekki vanalegt og hjá mér fór vatn alveg upp að vegi,“ segir Guðrún. Innlent 9. maí 2025 14:24
Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Flugstjóri og flugmaður tyrkneskrar farþegaþotu sem lenti í alvarlegri ókyrrð yfir Íslandi árið 2023 tókust óafvitandi á um stjórn vélarinnar. Sjö manns um borð slösuðust í ókyrrðinni. Viðbrögð áhafnarinnar var talin orsök atviksins en bæði Veðurstofa Íslands og Isavia fengu tilmæli um umbætur vegna þess. Innlent 9. maí 2025 09:37
Gular viðvaranir og hryssingslegt sunnan- og vestantil Úrkoma og vindur minnkar heldur miðað við í gær en áfram verður fremur hryssingslegt veður sunnan- og vestantil. Gera má ráð fyrir skúrum eða slydduéljum og líkur eru á krapa og hálku á fjallvegum. Veður 9. maí 2025 07:14
Vindur, skúrir og kólnandi veður Víðáttumikil hæð yfir Skotlandi og lægð við suðausturströnd Grænlandi valda suðvestanátt á landinu í dag og má búast við strekkingsvindi og skúrum. Yfirleitt verður þó þurrt norðaustanlands. Veður 8. maí 2025 07:11
Mögulegt að hitinn fari í tuttugu stig í fyrsta sinn í ár Sunnan stinningskaldi eða allhvass vindur er nú á landinu með rigningu og súld, en þurrt norðaustantil. Þegar líður á daginn minnkar vindurinn smám saman og úrkoman verður skúrakenndari vestast á landinu. Veður 7. maí 2025 07:13
Bætir í vind og úrkomu í kvöld Von er á áframhaldandi súld og rigningu víða um landi í dag. Þurrt verður þó á norðaustanverðu landinu. Veðurstofan spáir sunnan 5-13 m/s og hita frá sjö til tólf stigum, nema fyrir norðan þar sem hitinn gæti náð átján stigum. Innlent 6. maí 2025 06:49
Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, víða kalda vestanlands en golu fyrir austan. Veður 5. maí 2025 07:13
Strekkingur og væta suðvestanlands en allt að 17 stig fyrir austan Útlit er fyrir sunnan og suðvestan stinningsgolu og dálitla vætu með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu í dag. Hiti verður þar á bilinu fimm til tíu stig. Hins vegar verður bjartara austanlands og gæti hiti náð 17 stigum þegar best lætur. Veður 4. maí 2025 07:55
Rykið dustað af sólbekkjunum Veðrið leikur svoleiðis við borgarbúa í dag og því má búast við margmenni í sundlaugum borgarinnar. Sundlaugarvörður segir sólbekkina þegar farna að fyllast og hvetur landsmenn til að nýta hverja mínútu af sólskini. Innlent 3. maí 2025 10:57