Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júlí 2026 09:40 Yfir þúsund slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir út til að ná stjórn á gróðureldunum sem hafa breiðst hratt út í Suður-Frakklandi. Myndin er tekin í bænum Cotignac sem er í grennd við eina stærstu borg Frakklands, Marseille. Getty Alls hefur ríflega tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns verið gert að rýma svæði í Suður-Evrópu og nú loga gróðureldar víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum borgarinnar Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands í nótt.
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns hafi þegar verið flutt á brott frá Gironde- og Landes-héruðunum nálægt Bordeaux þar sem gróðureldarnir brutust út í vikunni. Ökumönnum væri sömuleiðis ráðlagt að forðast svæðið. Meðalhitinn ríflega þrjátíu gráður Kemur þetta fram í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið en þar er haft eftir Sophie Brocas, sem stýrir sveitarstjórn La Nouvelle-Aquitaine et de la Gironde, sem nær yfir Bordeaux-svæðið, að svæðin Le Haillan, Eysines og Merignac væru rýmd. Bordeaux-svæðið er frægt fyrir vínekrur sínar og borgin er ein helsta samgöngumiðstöð ferðamanna sem heimsækja nálæga sumarleyfisstaði við Atlantshafsströndina. Herinn hefur samkvæmt umfjöllun Reuters verið kallaður til aðstoðar slökkviliði og viðbragðsaðilum á svæðinu. Þekkir þú Íslendinga á svæðum þar sem skógareldar geysa? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Norðan við Bordeaux sást og fannst reykur frá gróðureldunum í Haute-Vienne-héraði, þar sem yfirvöld ráðlögðu fólki að halda hurðum og gluggum lokuðum. Hingað til í júlímánuði hefur meðalhitinn verið 32,2 gráður á svæðinu, sem er 7,3 gráðum yfir mældum hámarkshita í júlí á árunum 1961 til 1990, samkvæmt gögnum frá Reuters Climate Monitor.
Veður Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Frakkland Gróðureldar Mest lesið Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Sjá meira