Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. júlí 2026 14:04 Jenný Andrea Árnadóttir er skurðhjúkrunarfræðingur. Vísir/aðsend „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu mínútna fjarlægð frá höfuðborg ríkisins Madríd sem er umlukin gróðureldum. Alls hefur ríflega 270 þúsund manns verið gert að rýma heimili sín í suðvesturhluta Evrópu en gróðureldar loga enn víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum Bordeaux-borgar í suðvesturhluta Frakklands í nótt. Um 190 ferkílómetrar hafa orðið eldinum að bráð. Emanuel Macron forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem hafa gengið þar yfir og tók fram að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns hafi þegar verið yfirgefið Gironde- og Landes-héröð nálægt Bordeaux. Frakklandsher hefur verið kallaður til að aðstoða slökkviliðið og viðbragðsaðila á svæðinu. Spánn lýsti yfir neyðarástandi vegna eldanna á fimmtudagskvöld. Um verstu gróðurelda er að ræða sem hafa geisað á svæðinu. Á svæðinu umhverfis Madríd hafa tuttugu þúsund manns þurfta að flýja heimili sín, þar á meðal íslensk hjón. Jenný Andrea Árnadóttir, skurðhjúkrunarfræðingur sem er í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Madríd, segir gróðureldana hafa mikil áhrif á heimamenn og setja mark sitt á lífið úti. „Ég kom hérna í fyrradag og þá voru eldarnir byrjaðir en í gær ákváðum við að keyra þangað sem mágkona mín býr og hún er búin að vera hjá okkur núna síðustu daga. Við ákváðum að fara í þorpið til hennar því það átti að rýma þorpið við hliðina á hennar og hún orðin stressuð. Það var þykkur reykur þarna. Það var svolítið sérstakt. Þegar maður sér öskuna kyngja niður og reykinn fara fyrir sólina er þetta dálítið sérstakt.“ Var þetta ógnvænlegt að sjá? „Já, en ég verð nú ekkert voðalega stressuð. Ég er náttúrulega skurðhjúkrunarfræðingur og er því vön adrenalíni en maður tekur nú alveg eftir því að fólk er svolítið stressað. Við erum í engri hættu því Alcorón er í tuttugu mínútna fjarlægð frá Madríd og þetta er borg svo það er engin hætta á ferð hér.“ Hún tekur fram að um áhyggjuefni sé að ræða fyrir þorpin í grenndinni og að um alvarlegt mál sé að ræða. Þrátt fyrir hagstæða vindátt og nokkra fjarlægð frá eldunum hafi hún vaknað við töluverða reyklykt í morgunsárið. „Við tókum eftir því þegar við vorum að keyra í gær að það var ansi mikil umferð í þessum þorpum. Það eru margir að rýma og svona. Fólk er að flýja og það er auðvitað stressað í þessum litlu þorpum. Mágkona mín var alveg stressuð.“ Hefurðu áhyggjur eða ertu vongóð um að þetta gangi yfir og ljúki fyrr en varir? „Þetta gengur yfir maður! Þetta reddast! Ég er ekkert rosalega dramatísk almennt en ég tek alveg eftir því að Spánverjarnir eru ansi stressaðir.“
Veður Frakkland Spánn Gróðureldar Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira