Alþingis- og sveitar­stjórnar­menn

Alþingis- og sveitar­stjórnar­menn

Skoðanagreinar eftir kjörna fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Fréttamynd

Við megum ekki gefa eftir

Í dag fylkja þúsundir Íslendinga sér undir regnbogann í gleðigöngu til stuðnings réttindum hinsegin fólks í miðborg Reykjavíkur.

Skoðun
Fréttamynd

Mikil­vægasta Gleðigangan

Með örfáum undantekningum hef ég tekið þátt í Gleðigöngunni á Íslandi frá upphafi. Alltaf jafn gaman, alltaf jafn sérstakt. Og hvert skipti hefur gefið tilefni til að rifja upp þá vegferð sem hefur tryggt forystu Íslands þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Ísland er í þriðja sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe sem sýnir stöðu og réttindi hinsegin fólks og í fyrsta sæti á réttindakorti TGEU (Trans Europe and Central Asia).

Skoðun
Fréttamynd

Þegar nýbakaðir for­eldrar lenda á vegg

Undanfarnar vikur hafa fjölmargir foreldrar stigið fram og lýst reynslu sinni af samskiptum við Fæðingarorlofssjóð. Frásagnirnar eru um margt keimlíkar; löng bið, óljós svör og sú upplifun að þurfa ítrekað að sanna rétt sem foreldrar töldu skýran. Á sama tíma glíma fjölskyldur við fjárhagsáhyggjur á tímabili sem á fyrst og fremst að einkennast af öryggi og samveru með nýfæddu barni.

Skoðun
Fréttamynd

Reykja­vík er frjáls

Hinsegin dagar í Reykjavík hófust í gær en síðan 1999 hefur Gleðigangan verið einn fjölsóttasti og flottasti viðburður í borginni ár hvert - og blessunarlega alla tíð staðið undir nafni. Gleðigangan er líka kröfuganga sem minnir okkur á hvernig samfélag við höfum byggt upp og viljum halda áfram að byggja upp. Við viljum Reykjavík þar sem fólk er frjálst og tilheyrir. Frjálst til að vera einsog það er og frjálst til að elska fólkið sem það elskar. Samfélag sem áttar sig á því að fjölbreytileiki mannflórunnar er óendanlegur og veit að einmitt í fjölbreytninni búa okkar mestu styrkleikar. Samfélag sem fagnar öllum litunum og býður þá velkomna. Enda væri þessi heimur leiðinlegt pleis ef allir væru eins.

Skoðun
Fréttamynd

Sumar­há­tíðir, rán­dýrir vextir og óopnað um­slag

Við Íslendingar vorum rétt í þessu að ljúka við eina af okkar ástælustu hefðum. Tugþúsundir landsmanna tjölduðu um helgina, sungu brekkusöngva og stunduðu almenna heilsueflingu á tjaldsvæðum landsins. Það er eitthvað dásamlegt við þessa sumardaga. Þrátt fyrir að við þekkjum varla meira en 1% landsmanna persónulega og 99% séu okkur ókunnugt fólk, þá náum við samt að skemmta okkur, sýna samstöðu og gleðjast saman.

Skoðun
Fréttamynd

Viðvörunarljós í evrópsku at­vinnu­lífi

Ég hef varið stærstum hluta starfsævi minnar í íslensku atvinnulífi. Þar lærði ég að stærstu ákvarðanirnar eru sjaldnast teknar í hita augnabliksins. Þær eru teknar þegar fólk gefur sér tíma til að horfa fram á veginn, vega og meta kosti og galla og spyrja einfaldlega: Hvað þjónar okkur best til lengri tíma?

Skoðun
Fréttamynd

Evra eða króna?

Ég er fylgjandi aðild að Evrópusambandinu þó að ég slái þann varnagla að ég myndi ekki samþykkja hvaða samning sem er. Aðalástæða skoðunar minnar eru gjaldmiðla- og gengismál. Ég gef mér þá forsendu að einhliða upptaka annars gjaldmiðils sé óraunhæfur kostur, lánveitandi til þrautarvara sé nauðsynlegur þáttur fyrir öll myntsvæði og þá á öllu svæðinu. Það er önnur umræða hvort sá möguleiki sé til staðar að semja við seðlabanka tiltekins myntsvæðis um að vera banki bankanna á Íslandi en mér finnst það óraunhæft.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðin á að njóta vafans

Kjarni heilbrigðrar og þjóðlegrar stjórnmálastefnu á okkar tímum er að skapa þannig umgjörð fyrir samfélagið að hún þjóni heildarhagsmunum þjóðarinnar en ekki aðeins afmörkuðum hagsmunum fjármagnsins. Með því er ekki horfið frá frjálsu markaðshagkerfi en þó viðurkennt að þessir hagsmunir fara ekki alltaf saman. Þegar þeir rekast á, skal þjóðin njóta vafans.

Skoðun
Fréttamynd

Smá standard, takk

Segjum nei við að fjarlægja valdið frá fólkinu og koma tugþúsundum skriffinna í Brussel á milli fólksins og valdsins. Þú kýst ekki skriffinnana í burtu.

Skoðun
Fréttamynd

Hvaða kröfur eigum við að gera?

Handan við hornið er þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðildarviðræðunum 2009-2013 var samninganefnd Íslands meðvituð um að landbúnaðarkafli viðræðanna (kafli 11) væri einn flóknasti og mest umdeildi þátturinn í aðildarviðræðum Íslands og ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Stóra leiðréttingarmálið, ein­hverjir Hollendingar og kollegar

Mikil umræða hefur farið fram um skýr svör hollenska forsætisráðherrans Rob Jettens í hollenska þinginu þar sem hann tók af öll tvímæli um að Ísland þyrfti, eins og önnur ríki sem vilja verða aðilar að ESB, að undirgangast sameiginlega stefnu sambandsins í sjávarútvegsmálum.

Skoðun
Fréttamynd

Dauðans al­vara – fölsuð lyf og ó­lög­leg lyf­sala

Ólögleg sala lyfja, sérstaklega í gegnum netið, virðist sífellt aukast og haldast í hendur við mikla og vaxandi eftirspurn. Henni er svarað af óprúttnum aðilum sem svífast einskis, en ljóst er að framleiðsla ólöglegra lyfja er vaxandi vandamál víða um heim.

Skoðun
Fréttamynd

Baldur snýr heim á Breiða­fjörð

Viðgerð á mótor Herjólfs IV er lokið og ferjan siglir á ný á báðum mótorum milli lands og Eyja. Baldur heldur því heim og hefur áætlunarsiglingar á Breiðafirði að nýju.

Skoðun
Fréttamynd

Aðildar­við­ræður eru samninga­við­ræður

Þann 29. ágúst gengur íslenska þjóðin að kjörborðinu og svarar einni spurningu: Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Hér er ekki spurt hvort þjóðin eigi að ganga inn, heldur hvort við eigum að ganga til samningaviðræðna. Sú ákvörðun verður ekki tekin fyrr en þjóðin hefur séð fullbúinn samning og fengið tækifæri til að greiða atkvæði um hann sérstaklega, í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu.

Skoðun
Fréttamynd

Dagur, bannað að plata!

Fyrrum borgarstjóri og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar dregur fram í grein á Vísi í dag tólf ára gamla skýrslu með eftirfarandi fullyrðingum: „Verður ekki önnur ályktun dregin en að upptaka evru með aðild að myntbandalagi Evrópu muni fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.“

Skoðun
Fréttamynd

Trillukarlinn og ESB

Lengi hefur legið fyrir hæstaréttardómur um að núverandi stjórn fiskveiða feli í sér ólíðandi mismunun sem ekki verður búið við til framtíðar gagnvart komandi kynslóðum og sjávarbyggðunum. Stjórnvöld hafa í gegnum tíðina lofað endurbótum á kerfinu og áttu t.d. mjög takmarkaðar strandveiðar að vera fyrsti liður í þeim.

Skoðun
Fréttamynd

Arnarnesvegur og varnaðar­orð sem voru hunsuð

Allt frá árinu 2020 barðist Flokkur fólksins með aðeins einn borgarfulltrúa ásamt Vinum Vatnsendahvarfsins og fjölmörgum íbúum gegn þeirri útfærslu Arnarnesvegar sem nú er að verða að veruleika.

Skoðun
Fréttamynd

Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst?

Ný skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um stöðu barna í fóstri er alvarleg. Hún er ekki skýrsla sem við eigum að leggja ofan í skúffu, ræða í nokkra daga og gleyma síðan. Hún kallar á viðbrögð.

Skoðun
Fréttamynd

Samfélagsmiðlar eru ekki barna­leikur

Það hefur alltaf verið eitt af mikilvægustu hlutverkum samfélagsins að vernda börn gegn alls kyns hættum. Við kennum þeim að fara varlega í umferðinni, nota bílbelti og hjálma og tala ekki við ókunnuga.

Skoðun
Fréttamynd

Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár

Frá því að ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks Fólksins tók við fyrir 18 mánuðum hefur náðst umtalsverður árangur í málaflokki útlendinga hvað varðar fjölda samþykktra frumvarpa.

Skoðun
Fréttamynd

Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum

Einn veigamikill þáttur í útgöngu Breta úr Evrópusambandinu var gríðarleg óánægja með fiskveiðistefnu sambandsins, en almenn óánægja er með stefnuna meðal sjómanna.

Skoðun
Fréttamynd

Bless toll­frjálsu Temu, Shein og Ali­baba

Fyrir nokkrum dögum ritaði ég grein á Vísir.is þar sem ég taldi upp ýmsar þær afleiðingar sem innganga í Evrópusambandið hefði í för með sér sem og umsóknarferli að sambandinu.

Skoðun
Fréttamynd

Dulinn kostnaður við kredit­kortið þitt

Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor birti í gær upplýsingar um að heimilin beri árlega allt að 20 milljarða kostnað - vegna gengismunar AUK annarra gjalda af erlendum kreditkortafærslum - og það á hverju ári. Stór hluti þessa kostnaðar félli niður ef við tækjum upp evru í stað krónu.

Skoðun
Fréttamynd

Svíkjum ekki gerða samninga

Samstarf tveggja öflugra þjónustuaðila er mjög mikilvægt og getur bæði skapað betri þjónustu fyrir notendur ásamt því að vera hagkvæmari fyrir samfélagið.

Skoðun
Fréttamynd

Heimilis­læknar og reglugerðardrög

Margir landsmenn sakna þess að hafa ekki fastan tengipunkt við heilbrigðiskerfið, ekki síst þau sem þurfa reglulega á heilbrigðisþjónustu að halda, eins og langveikt og eldra fólk. Norsk rannsókn sýndi að fólki sem hefur fastan heimilislækni farnast betur og þarf síður á innlögnum á sjúkrahús að halda.

Skoðun