Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar 8. júlí 2026 16:31 Samstarf tveggja öflugra þjónustuaðila er mjög mikilvægt og getur bæði skapað betri þjónustu fyrir notendur ásamt því að vera hagkvæmari fyrir samfélagið. Þetta átti vel við þegar Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkisstjórn Íslands gerðu með sér samkomulag um þjónustu fyrir börn með fjölþættan vanda þann 19.mars árið 2025. Samkomulag sem ríkið er nú að einhliða að endurskilgreina án faglegra skýringa með samþykkt á nýrri reglugerð. Skýr skilgreining á ábyrgð Samkomulagið frá mars 2025 felur í sér að ríkið taki að sér framkvæmd og ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem þarfnast búsetu utan heimilis. Virkilega jákvætt skref að einfalda verkaskiptingu milli ríkis- og sveitarfélaga ásamt því að styrkja fjárhag sveitarfélaga sem geta þá staðið betur undir annarri þjónustu. Það má nefnilega ekki gleyma að ríki og sveitarfélög hafa það sameiginlega hlutverk að þjónusta íbúa landsins. Eðlilega voru samningsaðilar ánægðir þann 19.mars 2025 og orð ráðherra endurspegluðu skilning og framtíðarsýn. Verið væri að binda enda á áratugadeilur um skiptingu ábyrgðar og kostnaðar við málefni barna með fjölþættan vanda og allir sammála um að þessi viðkvæmi hópur fái þjónustu við hæfi og jafnræði sé gætt til að veita slíka þjónustu. Einhliða breyting í þveröfuga átt Á undanförnum árum hafa verið um 34 börn á landinu sem hafa fengið mat sérfræðinga á þörf fyrir sérhæfða þjónustu og áttu að falla undir samkomulagið. Nú hefur barna- og menntamálaráðuneytið hins vegar birt reglugerð sem gengur þvert á bak samkomulagsins frá 2025. Ráðuneytið endurskilgreinir einhliða þann hóp barna sem á rétt á þjónustunni. Af þeim um 34 börnum sem áður fengu mat um þjónustu hafa, samkvæmt umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, nú aðeins 10 börn fengið mat á þessu ári. Það er óásættanlegt að annar samningsaðili breyti einhliða skilgreiningu og túlkun á samkomulagi sem áður hefur verið gert í góðri trú Vil ég skora á ráðherra og ríkisstjórnina að endurskoða ákvörðunina og veita nægu fjármagni til verkefnisins svo ríkið geti veitt þessum viðvæma hópi þá þjónustu sem samið var um. Það má svo ekki gleyma að ríki og sveitarfélög eru sameiginlega að þjónusta íbúa landsins og mikilvægt að traust sé á milli aðila. Göngum í takt og stöndum við gerð samkomulög. Höfundur er bæjarstjóri Árborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveitarstjórnarmál Rekstur hins opinbera Bragi Bjarnason Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar