Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar 8. október 2026 13:32 Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025 - 2040 hefur nú verið formlega samþykkt. Aðalskipulag er eitt mikilvægasta verkfæri sveitarfélaga. Það setur okkur ramma um hvar fólk býr, hvar börnin okkar ganga í skóla, hvernig við ferðumst, hvar atvinnulíf fær að þróast og hvernig við verndum náttúru og útivistarsvæði. Þess vegna skiptir máli hvernig við vinnum að slíku skipulagi Vinna við aðalskipulag Hafnarfjarðar hófst snemma á síðasta kjörtímabili og öll sú vinna var að mestu leyti unnin í þverpólitískri og góðri samvinnu allra kjörinna fulltrúa í skipulags- og byggingaráði, sem og í bæjarstjórn. Eins var virkt og gott samráð við íbúa snemma í ferlinu, afar mikilvægur hluti af vinnu við aðalskipulagið. Fjölmargir íbúar og hagsmunaaðilar komu að vinnunni og athugasemdir bárust við auglýsta tillögu. Samráð á að skipta máli Gott dæmi um að samráð og þátttaka íbúa í vinnu við aðalskipulag sveitarfélagsins skiptir máli kemur mjög skýrt fram við breytingu á tillögum í vinnsluferli, eins og raungerðist með endanlegri útfærslu á uppbyggingu í Vatnshlíð. Þar var tekið tillit til athugasemda íbúa, en sjá má að í upphaflegri tillögu var gert ráð fyrir 64,6 hektara svæði og allt að 1.400 íbúðum. Eftir athugasemdir og samtal var tillagan endurskoðuð. Svæðið var minnkað í 39,1 hektara og íbúum fækkað í um 1.100. Byggðin verður jafnframt lægri þegar nær dregur Hvaleyrarvatni og mikilvægar tengingar við græn svæði verða skýrari. Bætt lífsgæði á að vera leiðarstef okkar allra Við þurfum á uppbyggingu að halda. Íbúum er að fjölga og ákveðnum þörfum þarf að svara. Hafnarfjörður þarf fleiri íbúðir, fjölbreytt húsnæði og öflug hverfi þar sem fólk getur búið, starfað og alið upp börn. En uppbygging má aldrei vera markmið í sjálfu sér. Hún þarf að fylgja innviðum, skólum, leikskólum, samgöngum, grænum svæðum og góðum almenningsrýmum. Og þá mikilvægu ábyrgð þurfa allir kjörnir fulltrúar ávallt að hafa að sínu leiðarstefi, í öllu okkar skipulagi: Að bæta lífsgæði bæjarbúa. Við eigum líka að þora að hugsa til lengri tíma. Hafnarfjörður á að vera sveitarfélag þar sem miðbærinn lifnar við, atvinnulíf fær svigrúm til að vaxa, almenningssamgöngur verða raunhæfur valkostur og náttúran fær að njóta sín. Aðalskipulagið er því ekki bara kort af Hafnarfirði. Það er framtíðarsýn. Því Hafnarfjörður verður ekki betri með því að skipuleggja fyrir Hafnfirðinga. Hann verður betri með því að skipuleggja með Hafnfirðingum. Höfundur er formaður Skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar og oddviti Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karólína Helga Símonardóttir Hafnarfjörður Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar