Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar 8. júlí 2026 08:32 Frá 24. ágúst næstkomandi verða almenningssamgöngur skertar á landsbyggðinni. Ferðum fækkar á nokkrum leiðum og enn meiri niðurskurður hefur þegar verið boðaður á næsta ári. Ef þú, samlandi góður, býrð í Þorlákshöfn, uppsveitum Árnessýslu eða á Selfossi, Ísafirði, Hólmavík eða Kjalarnesi eða sækir þjónustu þangað, getur þessi breyting haft áhrif á þig. Skerðing þvert á markmið Þessi skerðing á þjónustu hefur ekki farið hátt. Þvert á móti kemur ítrekað fram í nýsamþykktri samgönguáætlun 2026–2040 að efla eigi almenningssamgöngur bæði sem lið í aukinni þjónustu við íbúa, til að ná lýðheilsumarkmiðum og sem hluta af orkuskiptum. Raunveruleikinn sem birtist í fjármögnun er einfaldlega ekki í fullu samræmi við markmið samgönguáætlunar. Þrátt fyrir umtalsverða aukningu fjárheimilda til samgöngumála árin 2025 og 2026, sem var vissulega jákvætt, sýnir fjármálaáætlun 2027 til 2031 lækkun framlaga til samgöngumála á hverju einasta ári. Það sem vekur enn meiri athygli er að framlög til almenningssamgangna á landsbyggðinni, svonefndra landsamgangna, voru skorin niður á þessu ári og samkvæmt gildandi samgönguáætlun skerðast þau áfram, úr rúmum 1,5 milljörðum króna í um 1,36 milljarða árið 2030. Þá liggur fyrir, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, að almenningssamgöngur á landsbyggðinni eru vanfjármagnaðar um 660 milljónir króna á þessu ári sem birtist í niðurskurði í leiðarkerfi og að öllu óbreyttu eykst sá vandi enn meira á næsta ári þar sem minna fjármagn er til ráðstöfunar. Enginn veit hvernig frekari skerðing verður útfærð. Þetta þarf að ræða. Niðurskurðurinn bitnar á landsbyggðinni Athygli vekur að framlag til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu hækkar á tímabilinu í samgönguáætlun. Niðurskurðurinn lendir því nánast allur á landsbyggðinni, þrátt fyrir að Vegagerðin hafi ítrekað bent á að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu verulega undirfjármagnaðar. Hvernig eiga yfirlýst markmið að nást þegar enn minna fjármagn er til ráðstöfunar? Afleiðingar niðurskurðarins hafa þegar haft áhrif. Ferðum Grímseyjarferjunnar hefur verið fækkað tímabundið, áætlunarakstur milli Ísafjarðar og Hólmavíkur var lagður af í sumar og þjónusta hefur verið skert á Suðurlandi. Allt þetta hefur þegar raungerst og þó hefur skerðingin sem nú er boðuð frá og með 24. ágúst ekki tekið gildi. Almenningssamgöngur þurfa að þróast í takt við samfélög Horfum nánar á Suðurland í samhengi við skerðingu fjármagns. Fá svæði hafa verið í jafn mikilli sókn í byggðaþróun. Íbúum hefur fjölgað langt umfram landsmeðaltal og Árborg hefur verið á meðal örast vaxandi sveitarfélaga landsins. Selfoss er miðja þjónustu á svæðinu og kannanir sýna að hlutfall þeirra sem sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins frá Hveragerði og Þorlákshöfn er yfir fimmtungur. Það er ljóst að almenningssamgöngur þurfa að vera hluti af þessum vexti og styðja við hann. Það er eina sjálfbæra leiðin. Svæðið er jafnframt hjarta ferðaþjónustunnar, enda heimsækja um átta af hverjum tíu erlendum ferðamönnum Suðurland. Vilji menn auka umferðaröryggi með færri bílum á vegunum eru öflugar almenningssamgöngur augljós kostur. Þær geta jafnframt styrkt tekjugrunn kerfisins á háannatíma. Almenningssamgöngur eiga að jafna leikinn Síðast en ekki síst eru almenningssamgöngur lífæð skólafólks. Fyrir ungmenni getur ein niðurfelld ferð þýtt að nám heiman frá sé ekki lengur jafn raunhæfur kostur. Aðgengi að almenningssamgöngum á að jafna stöðu íbúa óháð aldri og efnahag, en skerðingar sem þessar grafa undan því markmiði. Almenningssamgöngur á landsbyggðinni eru ekki lúxus. Þær eru leiðin í vinnuna, til læknisins eða í skólann. Vissulega tekur tíma að byggja upp notkun almenningssamgangna á sjálfbæran hátt um allt land, en það tekur skamma stund að glata henni ef fyrirsjáanleika skortir og breytingar á leiðakerfi eru tíðar. Hin ósagða saga: Orkuskiptin Niðurskurður í almenningssamgöngum á landsbyggðinni bitnar einnig á framsæknum fyrirtækjum sem hafa tekið áhættu með stjórnvöldum og fjárfest í vistvænum bílaflota. Gott dæmi er fyrirtækið kennt við Guðmundur Tyrfingsson (GTS) á Selfossi sem hefur byggt upp hleðsluinnviði og markvisst rafvætt hópbifreiðaflotann sérstaklega í samvinnu við þjónustuhlutverk sitt í almenningssamgöngum á metnaðarfulla vegu. Frumkvöðlar af þessu tagi hafa leitt orkuskipti af því að stjórnvöld hvöttu þá í ferðalagið en sitja nú uppi með rýrari samninga í haust vegna niðurskurðar. Höfum úthald í umbreytingar Ef við viljum fleiri jákvæðar sögur af orkuskiptum og sókn þurfum við að hafa úthald til að fjárfesta í umbreytingunni og skapa traust atvinnulífsins á vegferðinni. Það kallar á að fjármálaáætlun, samgönguáætlun, Orkusjóður og Vegagerðin vinni í takt og að framkvæmdin sé samstillt til langs tíma. Orkuskipti eru ekki aukaverkefni. Þau spara gjaldeyri, auka orkuöryggi á tímum sveiflna í olíuverði, draga úr losun og styrkja samkeppnishæfni Íslands á marga vegu. Það er enn tækifæri til að bregðast við Það er ósanngjarnt að íbúar landsbyggðarinnar þurfi að búa við verri stöðu þvert á yfirlýsingar um aukna áherslu á orkuskipti og almenningssamgöngur. Samgönguáætlun má ekki vera leikrit yfirlýsinga heldur verður að innihalda fjármögnuð markmið, skapa stöðugleika og sókn á vaxandi svæðum. Fjárlagafrumvarp næsta árs verður lagt fram í september næstkomandi og þar fær ríkisstjórnin dýrmætt tækifæri til að gera breytingar. Það er mikilvægt að nýta það tækifæri vel. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í umhverfis- og samgöngunefnd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Hrund Logadóttir Samgöngumál Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar