„Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Edda Björgvins nýtur lífsins þessi jólin í faðmi fjölskyldunnar á Tenerife. Hún og Anna Svava Knútsdóttir eru sammála um að í raun sé fjölskyldan að koma út í „stórgróða“ með því að halda jólin frekar í útlöndum, eða svona því sem næst. Lífið 23. desember 2024 15:30
Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Jólaljósin og matseldin eru ómissandi partur af jólahaldinu og skammdeginu. Það er mikið um að vera í desembermánuði, margt að hugsa um en um leið ný handtök og oft mikið um að vera á skömmum tíma. Þá er líka mikilvægt að huga að örygginu svo jólahaldið fari ekki úr skorðum. Samstarf 23. desember 2024 14:48
„Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Varasamt ferðaveður er víða á landinu í dag, og verður einkum norðan- og norðaustanlands í kvöld. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst fram yfir hádegi og vegum gæti verið lokað án fyrirvara. Þá er spáð jólastormi á sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og hinn. Innlent 23. desember 2024 11:58
Inga tók jólalag á fyrsta fundi Fyrsti ríkisstjórnarfundur ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var haldinn nú í morgun. Glatt var á hjalla og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, var kát og brast hún í söng. Innlent 23. desember 2024 11:12
Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól! Jólin geta verið dásamlegur tími þrátt fyrir skammdegið, sem við lýsum þá upp með ljósaseríum eða kertum í faðmi fjölskyldu og vina. Þessum tíma geta líka fylgt áskoranir m.t.t loftgæði innandyra. Skoðun 23. desember 2024 11:02
„Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Sigurður Þ. Ragnarsson betur þekktur sem Siggi stormur segist hafa fundið fyrir kvíða fyrir jólunum en þetta eru þau fyrstu eftir að sonur hans Árni Þórður Sigurðarson lést í ágúst síðastliðnum. Hann segir það hafa hjálpað sér mest í sorginni að tala um son sinn. Lífið 23. desember 2024 10:37
Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Að njóta samverunnar með fjölskyldu og vinum um jólin er auðvitað aðalmálið hjá okkur flestum. Samt getur það farið ofan garð og neðan hjá sumum, að ná að kúpla sig alveg frá vinnunni um jólin. Atvinnulíf 23. desember 2024 07:00
Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Segja má að veðurspáin fyrir morgundaginn sé í ömurlegri kantinum, rigning og rok. Veðurfræðingur spáir þó hvítum jólum um mest allt land en spáin er varasöm á aðfangadag og viðbúið að færð verði slæm í einhverjum landshlutum. Gular veðurviðvaranir eru í gildi um mest allt landið í nótt og í fyrramálið og almannavarnir hvetja vegfarendur til að sýna aðgát þar sem færð getur spillst snögglega. Innlent 23. desember 2024 00:10
Hvað eru jólin fyrir þér? Góð vinkona mín kom einhverju sinni með áhugaverðan punkt varðandi jólin. Frá þeim aldri sem við hættum að fá leikföng í jólagjöf breytast jólin og verða aldrei söm. Það er nokkuð til í því. Spenningurinn fyrir gjöfunum minnkar með aldrinum og annað fer að skipta meira máli. Skoðun 22. desember 2024 12:03
Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Einungis rúmum hálftíma eftir að Aldís Amah Hamilton leikkona hafði sent inn prufu til að hreppa hlutverk í íslensk-amerísku jólamyndinni The Christmas Quest úr smiðju Hallmark bárust henni skilaboð frá framleiðendum myndarinnar um að hún hefði fengið hlutverkið. Bíó og sjónvarp 22. desember 2024 07:00
Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Kjartan Þór Ólafsson í Hveragerði kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að jólaskreytingum á húsi fjölskyldunnar því þar eru fleiri þúsund perur á húsinu og við það, sem lýsa upp hverfið hjá honum. Lífið 21. desember 2024 20:03
Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti brýnir fyrir tónleikagestum að vera meðvitað um fólkið í kringum sig á tónleikum eftir að kona um þrítugt yfirgaf tónleika hans í gærkvöld í sjúkrabíl. Innlent 21. desember 2024 20:00
Vilja ekki plast eða vír á leiðisskreytingar í kirkjugörðum Kirkjugarðar Reykjavíkur hvetja aðstandendur til að nota umhverfisvænar skreytingar á leið ástvina sinna nú fyrir jól og um jólin. Alls ekki að nota plast, vír eða teygjur í skreytingarnar. Innlent 21. desember 2024 14:06
Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Jólagestir Björgvins fara fram annað kvöld í Laugardalshöll í síðasta skipti. Hópurinn hittist á fyrstu æfingu í gær fyrir stóru stundina og Björgvin Halldórsson segir að það sé mikill hugur í honum en ljósmyndari Vísis myndaði hann á fyrstu æfingunni. Tónlist 20. desember 2024 16:00
Er janúar leiðinlegasti mánuður ársins? Nú fara hinir heilögu jóladagar að skella á. Stressið fer vonandi að minnka á flestum heimilum. Búið er að stilla upp vel skreyttum jólagjöfum undir jólatréð og fjölskyldur gefa sér tíma i að njóta samverunnar við tindrandi jólaljós, huggulega jólatónlist og lokkandi ilm úr eldhúsinu. Eða er það alltaf raunin? Skoðun 20. desember 2024 13:00
„Lágspennubókmenntir“ „Þetta er ekki hasarbók, þannig lagað, en ég hef kallað þetta „lágspennubókmenntir“,” segir Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, spurður hvort lesendur eigi von á testósterónbombu þegar þeir opna nýjustu bók hans Synir himnasmiðs, skáldsögu um tólf karlmenn. Lífið samstarf 20. desember 2024 10:30
Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Stóraukin netverslun Íslendinga skilar sér í auknu álagi hjá sendingarfyrirtækjum. Einhverjar tafir hafa verið á afhendingu sendinga sem framkvæmdastjóri dreifingarfyrirtækis segir vera vegna plássleysis í flugvélum á leið til landsins Viðskipti innlent 19. desember 2024 22:43
Helgi og Rakel með listgallerí í miðri íbúð þeirra Vala Matt fór fyrir Ísland í dag á dögunum og heimsótti hjónin Rakel Halldórsdóttur og myndlistarmanninn Helga Þorgils Friðjónsson og skoðaði þar óvenjulegar jólaskreytingar og listamanna gallerí sem er í miðri íbúðinni þeirra. Lífið 19. desember 2024 16:32
List Sísíar sameinar húmor og hjartahlýju í nýju jólahefti Jólahefti Rauða krossins, með sínum klassísku jólamerkimiðum, hefur verið fastur liður í jólaundirbúningi Íslendinga allt frá árinu 1996. Ár hvert berst heftið inn á heimili landsmanna sem táknræn áminning um þá samkennd og mannúð sem samtökin hafa staðið fyrir í heila öld. Lífið samstarf 19. desember 2024 15:15
Prinsinn kom á undan Kónginum Tónlistarmenn eru nú hver um annan þveran að senda frá sér textaverk. Hendingar úr söngtextum eru teknar, settar á pappír, rammað inn og selt. Þetta hefur á fáeinum árum orðið að stórútgerð. Lífið 19. desember 2024 13:50
Hátíðlegt en afslappað á tíu ára afmælinu Tíunda árið í röð slá Sigurður Guðmundsson og & Sigríður Thorlacius upp hátíðarveislu í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir eru fyrir löngu orðnir að ómissandi þætti margra í aðdraganda jólanna en þeir verða haldnir daginn fyrir Þorláksmessu. Lífið samstarf 19. desember 2024 12:48
Hvað er friður? Á komandi jólum mun enduróma fyrirheitið frá Betlehemsvöllum, „friður á jörðu“, enda er það þrá alls sem andar að eiga grið og frið undan ofbeldi og stríðsátökum. Skoðun 19. desember 2024 09:00
Hundrað hugmyndir að gjöf fyrir hann á Já.is Vöruleitin Já.is er stórsniðug leitarvél til að finna hina fullkomnu gjöf. Um áttahundruð innlendar vefverslanir eru inni í leitinni og í kringum tvær milljónir vara en Edda Ólafsdóttir hjá Já.is. hefur auðveldað okkur lífið með því að taka saman hugmyndalista. Lífið samstarf 19. desember 2024 08:50
Skemmtileg tískuslys og eftirminnileg jólaföt Löngum hefur verið hefð að klæða sig upp á aðfangadag og ýta þjóðsögur um jólaköttinn undir mikilvægi þess. Lífið á Vísi ræddi við nokkra tískuspegúlanta um eftirminnileg jólaklæði og hvaða föt verða fyrir valinu í ár. Virðist rauði þráðurinn vera að þeir sæki meira í þægindin nú en áður. Tíska og hönnun 19. desember 2024 07:02
Einfaldar leiðir fyrir andlega vellíðan um hátíðirnar „Desember er svo fallegur mánuður en á sama tíma erum við oft á yfirsnúningi því það er margt sem þarf að huga að. Nú þegar jólin eru á næsta leiti er mikilvægt að gera hluti fyrir okkur sjálf, róa taugakerfið og leyfa okkur að njóta hátíðarinnar sem best,“ segir Sara Snædís Ólafsdóttir, heilsuþjálfari og stofnandi Withsara. Lífið 18. desember 2024 20:02
Finndu hina fullkomnu gjöf fyrir hana með vöruleit Já.is Vöruleitin Já.is er stórsniðug leitarvél til að finna hina fullkomnu gjöf. Yfir tvær milljónir vara eru inni í Vöruleitinni en hér er búið að taka saman aðgengilegan lista. Lífið samstarf 18. desember 2024 11:53
„Hvert heldurðu að álagið sé orðið á börnin sjálf?“ Ragnar Þór Pétursson grunnskólakennari og fyrrverandi formaður Kennarasambandsins veltir fyrir sér hvert álagið sé orðið á börnin vegna skipulagðs tómstundastarfs í ljósi þess hvernig foreldrar tali um álagið sem fylgir því að fara á viðburði tengda starfinu. Lífið 18. desember 2024 10:13
Keppnisskap kemur vinum í klandur Rebekka Sif Stefánsdóttir fjallar hér um nýja bók Emblu Bachmann en Rebekka skrifar bókadóma á menningarvefinn Lestrarklefinn. Hún hefur þetta að segja um bókina. Lífið samstarf 18. desember 2024 09:37
Í aðdraganda jóla – hugleiðing Í svartasta skammdeginu höldum við upp á jólin. Fyrir suma eru þau trúarhátíð, fyrir aðra ljósahátíð. Það skiptir í rauninni ekki máli hvort er, því jólin eiga að miðla hamingju og kærleika, segir einhvers staðar, áreiðanlega á góðum stað. Skoðun 18. desember 2024 09:32
Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili fluttu jólalög í Langholtskirkju sunnudaginn 15. desember. Einsöngvari var Oddur Arnþór Jónsson. Gagnrýni 18. desember 2024 07:00