Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkveikju á Akranesi. Innlent 12. ágúst 2025 11:57
Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Hjónin, Eva Laufey Kjaran, dagskrárgerðarkona og markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups, og Haraldur Haraldsson deildarstjóri Icelandair Cargo, hafa fest kaup á 230 fermetra einbýlishúsi við Birkiskóga á Akranesi. Kaupverðið nam 145 milljónum króna. Lífið 12. ágúst 2025 10:15
Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Lögreglan á Vesturlandi hefur handtekið mann á Akranesi vegna gruns um íkveikju. Eldur kviknaði í gömlu timburhúsi nálægt miðbæ Akraness fyrir hádegi í dag, búið er að ráða niðurlögum eldsins en miklar skemmdir urðu á húsinu. Innlent 10. ágúst 2025 16:36
Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Eldur kviknaði í gömlu timburhúsi nálægt miðbæ Akraness fyrir hádegi í dag. Búið er að ráða niðurlögum eldsins, en miklar skemmdir urðu á húsinu. Innlent 10. ágúst 2025 13:26
„Komið nóg af áföllum“ Fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis segir nóg komið af áföllum fyrir atvinnulífið á Akranesi og biðlar til utanríkisráðherra að beita sér af fullum krafti gegn yfirvofandi verndartollum Evrópusambandsins. Ef úr tollunum verður sé það enn eitt reiðarslagið fyrir samfélagið. Innlent 31. júlí 2025 20:30
Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Bæjarstjórinn á Akranesi segir fyrirhugaða tolla Evrópusambandsins á kísiljárn og járnblendi áfall fyrir bæjarfélagið og sveitir norðan Hvalfjarðar. Þetta sé stórmál sem fylgja þurfi fast eftir og setja verði mikinn þunga í hagsmunagæslu Íslands. Innlent 28. júlí 2025 21:40
Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir þungum áhyggjum af áformum Evrópusambandsins um að leggja toll á kísiljárn frá Íslandi en eini kísiljárnframleiðandi Íslands er í sveitarfélaginu. Sveitarstjórnin skorar á íslensk stjórnvöld að leggja allt kapp í að afstýra fyrirhuguðum áformum og ná samkomulagi við ESB. Innlent 28. júlí 2025 13:35
Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Bæjarráð Akraness vill að ríkisstjórnin geri allt sem hún getur til að stöðva „óskiljanlega“ tolla sem Evrópusambandið hyggst leggja á ál frá Íslandi. Ráðið krefst fundar með ráðherrum og segir atvinnu og afkomu hundruða vera ógnað. Innlent 28. júlí 2025 11:47
Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni KR sækir ÍA heim á Elkem-völlinn á Akranesi í 15. umferð Bestu deildar karla annað kvöld. Heimferð Vesturbæinga af Skaganum lengist um 45 mínútur eða svo, þar sem Hvalfjarðargöngin verða lokuð vegna framkvæmda. Íslenski boltinn 13. júlí 2025 12:25
Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Dósent í félags og afbrotafræði telur skýrt að fleiri hafi gerst brotlegir við lög í kynferðisbrotamáli gagnvart fatlaðri konu en sá sem hlaut dóm. Hún vill að ríkissaksóknari skýri ákvörðun sína. Innlent 8. júlí 2025 20:13
Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Þrír karlmenn, á sextugs- og sjötugsaldri, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að smygla rétt rúmum þremur kílóum af kókaíni til landsins frá Spáni í apríl á þessu ári. Þeim er gefið að sök að smygla efnunum, hvers styrkleiki hafi verið á bilinu 78 til 80 prósent, í þremur pottum frá Spáni til Íslands. Innlent 8. júlí 2025 13:41
Myndaveisla frá Írskum dögum - Bylgjulestin 2025 Veðrið lék heldur betur við gesti bæjarhátíðarinnar Írskir dagar sem fór fram á Akranesi um helgina. Bylgjulestin lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og bauð upp á fjölbreytta dagskrá á laugardag. Lífið samstarf 7. júlí 2025 14:57
Bíll í ljósum logum á Skaganum Bíll stóð í ljósum logum fyrir utan blokk við Holtsflöt á Akranesi um sexleytið í kvöld. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en bíllinn er ónýtur. Innlent 6. júlí 2025 18:48
Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Steinar Orri Fjeldsted, einn meðlima rappsveitarinnar Quarashi, segir ekkert annað hafa komið til greina en að sveitin sameinaðist eftir áratugarhlé þegar boð barst frá Lopapeysunni á Akranesi. Allir meðlimir sveitarinnar eiga þangað rætur að rekja og lofar hann miklu stuði í kvöld. Tónlist 5. júlí 2025 14:08
Stór ferðahelgi framundan og bæjarhátíðir víða um land Ein stærsta ferðahelgi ársins er framundan og stórir viðburðir haldnir víða um land. Goslokahátíð í Vestmannaeyjum nær hápunkti á morgun og þá er búist við fjölmenni á Akranesi í tengslum við Írska daga. Innlent 4. júlí 2025 13:01
Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Næsti viðkomustaður Bylgjulestarinnar er Akranes en fjölskylduhátíðin Írskir dagar fer þar fram dagana 3.-6. júlí. Það má því búast við miklu fjöri alla helgina en Bylgjulestin verður í beinni á laugardaginn milli kl. 12 og 16. Lífið samstarf 4. júlí 2025 08:59
Magnús Þór lést við strandveiðar Strandveiðimaðurinn sem lést þegar bátur hans sökk út af Patreksfirði í gær hét Magnús Þór Hafsteinsson og var 61 árs. Hann var fyrrverandi þingmaður og gerði út á bátnum Orminum langa AK-64 frá Patreksfirði. Innlent 1. júlí 2025 14:11
Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Vala Grand Einarsdóttir og Brynjólfur Gunnarsson hafa fest kaup á einbýlishúsi á Akranesi. Um er að ræða 150 fermetra einbýlishús á einni hæð með bílskúr, staðsett innst í rólegri botnlangagötu. Ásett verð eignarinnar var 89,5 milljónir króna. Lífið 1. júlí 2025 11:13
Sjáðu allan þáttinn um Norðurálsmótið Gleðin var við völd á Norðurálsmótinu á Akranesi, þar sem strákar og stelpur í 7. og 8. flokki skemmtu sér í fótbolta. Andri Már Eggertsson var á svæðinu og ræddi við krakkana í nýjasta þætti Sumarmótanna sem nú má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 27. júní 2025 10:32
Hvalfjarðargöng eru lokuð Hvalfjarðargöngin voru tímabundið lokuð á meðan verið er að fjarlægja bíl. Innlent 22. júní 2025 18:00
Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Terra hafa hafið formlegt samstarf um markvissari úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum. Byrjað verður á Norðurálsmótinu sem fer fram á Akranesi í vikunni og um helgina. Viðskipti innlent 20. júní 2025 06:54
Quarashi aftur á svið Íslenska hljómsveitin Quarashi stígur á svið á tónlistarhátíðinni Lopapeysan sem fer fram fyrstu helgina í júlí á Akranesi. Sveitin starfaði í átta ár og lagði upp laupana árið 2004. Lífið 18. júní 2025 11:15
Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona hefur verið ráðin í starf upplýsingafulltrúa Akraneskaupstaðar. Viðskipti innlent 18. júní 2025 11:10
Ungmenni réðust á varnarlaust fórnarlamb í skógræktinni á Akranesi Tveir ungir menn hafa verið sakfelldir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem beindist að einum manni við skógræktina við Klapparholt á Akranesi. Innlent 2. júní 2025 14:25
Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Árekstur varð á Vesturlandsvegi á fjórða tímanum í dag. Umferð um veginn í báðar áttir var lokað um tíma en opnað hefur verið fyrir umferð í suðurátt. Bílaröðin teygir sig marga kílómetra í suður. Enginn er alvarlega slasaður. Innlent 30. maí 2025 16:52
Eva Laufey og Haraldur selja húsið á Skaganum Hjónin, Eva Laufey Kjaran, dagskrárgerðarkona og markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups, og Haraldur Haraldsson deildarstjóri Icelandair Cargo, hafa sett fallegt einbýlishús við Reynigrund á Akranesi á sölu. Ásett verð er 119 milljónir. Lífið 23. maí 2025 16:21
Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Síðan á miðnætti hafa verið fimm útköll á sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu segir að það sé óvenju mikið miðað við árstíma. Fyrsta útkallið var frá fólki sem var á siglingu á miðjum Seyðisfirði og hin fjögur vegna strandveiðibáta í vandræðum. Innlent 19. maí 2025 12:48
Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir býr á Akranesi ásamt eiginmanni sínum Jóni Þór Haukssyni knattspyrnuþjálfara og sonum þeirra þremur. Lífið 16. maí 2025 10:31
„Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugsson tóku óvænt við þjálfun ÍA eftir nokkrar umferðir sumarið 2006. Nálgun þeirra á þjálfarahlutverkið var nokkuð óvenjuleg en þeir áttu sér hauk í horni í verkalýðsleiðtoganum Vilhjálmi Birgissyni. Íslenski boltinn 23. apríl 2025 09:01
Missti vélarafl suður af Snæfellsnesi Áhafnir björgunarskipanna Bjargar á Rifi og Jóns Gunnlaugssonar voru kallaðar út klukkan 9:30 í morgun vegna fiskibáts sem misst hafði vélarafl suður af Snæfellsnesi, skammt vestur af Landbrotavík. Báturinn var dreginn til hafnar á Akranesi. Innlent 22. apríl 2025 17:51