Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum. Innlent 19. júlí 2022 22:01
Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls. Innlent 9. júlí 2022 08:25
Eldur kviknaði í Elkem í nótt og slökkvilið kallað til Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað til vegna bruna í járnblendiverksmiðjunni Elkem á Grundartanga á þriðja tímanum í nótt. Innlent 5. júlí 2022 06:39
Fjórtán hvalir komnir á land í Hvalfirði og fjórir við skipshlið Fjórtán langreyðar hafa verið dregnar á land til vinnslu í hvalstöðinni í Hvalfirði á þeim tólf dögum sem liðnir er frá því hvalbátarnir tveir héldu til veiða. Auk þeirra eru fjórar langreyðar til viðbótar veiddar, komnar að skipshlið, og á leið til lands. Innlent 4. júlí 2022 11:48
Rauðhærðasti Íslendingurinn krýndur á Írskum dögum Lilja Björk Sigurðardóttir er rauðhærðasti Íslendingurinn. Rauðhærðasti Íslendingurinn var krýndur í 23. sinn á Akranesi þar sem nú er haldið upp á Írska daga. Lífið 2. júlí 2022 22:17
Helstu bæjarhátíðirnar um helgina: Bryggjusöngur, brennur, sveitaböll og sápubolti Þá er komið því, einni af stærstu ferðahelgum sumarsins; fyrstu helginni í júlí og eflaust eru einhverjir nú þegar samviskusamlega búnir að pakka, troðfylla bílinn af útileigubúnaði og smyrja flatkökur og rækjusamlokur í tonnavís. En hvert skal halda? Lífið 30. júní 2022 07:17
Ég styð veiðar og vinnslu hvalaafurða Ég fagna því innilega að hvalveiðar séu nú stundaðar við Íslandsstrendur að nýju, enda hafa þær mjög jákvæð áhrif á allt samfélagið hér á Akranesi og nærsveitir. Skoðun 28. júní 2022 14:01
Sjáðu Norðurálsmótið á Akranesi: Gleðin við völd er stjörnur framtíðarinnar stigu sín fyrstu skref Það var nóg um að vera á Akranesi þegar Norðurálsmótið fór þar fram á dögunum, þar sem strákar í 7. flokki léku listir sínar. Þeir sýndu einnig tilþrif utan vallar og voru laufléttir í bragði í samtölum sínum við Guðjón Guðmundsson, Gaupa, sem gerði mótinu góð skil í þætti á Stöð 2 Sport. Fótbolti 25. júní 2022 12:00
Running Tide semur um uppbyggingu á Akranesi Bandaríska loftslagsfyrirtækið Running Tide hefur undirritað samning við Breið - þróunarfélag og Brim hf. um leigu húsnæðis á Akranesi undir aðstöðu fyrir rannsóknir og framleiðslu á þörungum til kolefnisbindingar í hafi. Viðskipti innlent 9. júní 2022 15:08
Kannar hug fólks til breytinga á tveimur köflum hringvegarins Samgöngufélagið leitar eftir afstöðu almennings til þess hvort breyta eigi legu hringvegarins á tveimur köflum á Vesturlandi. Frestur til að taka þátt í skoðanakönnun félagsins rennur út 10. júní. Innlent 7. júní 2022 22:30
Sævar Freyr áfram bæjarstjóri á Akranesi í nýjum meirihluta Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar kjörtímabilið 2022 – 2026, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá flokkunum. Innlent 27. maí 2022 10:28
Tíðinda að vænta á Akranesi á morgun Tíðinda er að vænta af meirihlutaviðræðum Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar á Akranesi á morgun. Þetta segir Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna á Akranesi, í samtali við fréttastofu. Innlent 24. maí 2022 12:06
„Framsókn setti okkur afarkosti sem við gátum ekki sætt okkur við“ Samfylkingin sleit viðræðum við Framsóknarflokkinn um áframhaldandi meirihlutasamstarf á Akranesi í gær. Valgarður Lyngdal Jónsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir að Framsókn hafi sett flokknum afarkosti sem hann hafi ekki getað gengið að. Innlent 20. maí 2022 11:01
Slitnar upp úr viðræðum á Skaganum Meirihlutaviðræður Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar á Akranesi hafa siglt í strand. Innlent 20. maí 2022 09:00
Lokatölur á Akranesi: Framsókn stal manni frá Sjálfstæðisflokknum Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega. Innlent 15. maí 2022 00:30
Holóttir vegir plaga kjósendur á Akranesi Holóttir vegir plaga kjósendur á Akranesi sem vilja úrbætur á vegakerfinu. Oddvitar allra framboðslista boða sókn í samgöngu- og atvinnumálum og segja fyrsta skref að ráða Sævar Frey Þráinsson aftur sem bæjarstjóra. Innlent 12. maí 2022 21:31
Oddvitaáskorunin: Á enn Hondu Civic sem hann keypti sautján ára Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 12. maí 2022 21:00
Garðar snýr aftur í ÍA Garðar Gunnlaugsson hefur gengið í raðir ÍA frá Kára og tekur slaginn með uppeldisfélagi sínu í Bestu deild karla í sumar. Íslenski boltinn 11. maí 2022 16:30
Grænn iðngarður byggður á hringrásarhugsun á Grundartanga Í dag fögnum við enn einum áfanga öflugs atvinnusvæðis Grundartanga sem fyrirtæki og sveitarfélög hafa byggt upp sameiginlega. Þá verður undirrituð sérstök viljayfirlýsing um uppbyggingu græns iðngarðs byggðum á hringrásarhugsun. Skoðun 11. maí 2022 08:31
Margfalt minni sveitarfélög skiluðu mun meiri fjármunum en borgin í fyrra Einungis tvö af tíu stærstu sveitarfélögum landsins skiluðu minna veltufé frá rekstri í fyrra en Reykjavíkurborg þrátt fyrir að borgin sé langstærsta sveitarfélagið. Innherji 11. maí 2022 08:25
Oddvitaáskorunin: Kosningabaráttan búin að stela dýrmætum tíma frá snókeráhorfi Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 9. maí 2022 12:01
Sjöhundruð bátar á strandveiðum færa fjör í sjávarbyggðir landsins Strandveiðarnar hófust í dag. Búist er við að um 700 bátar stundi veiðarnar í sumar en í morgun voru um 450 bátar þegar komnir með leyfi. Leiðindaveður hamlaði þó sjósókn víða um land á þessum fyrsta degi. Innlent 2. maí 2022 23:10
Oddvitaáskorunin: Fór fjórtján ára í sirkus-skóla í Sviss Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 1. maí 2022 15:00
Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins Baráttudagur verkalýðsins er í dag og af því tilefni standa verkalýðsfélög landsins fyrir fjölbreyttri dagskrá víða um land. Innlent 1. maí 2022 12:29
Innlit Skreytum hús á antíkmarkaðinn á Akranesi Soffía Dögg Garðarsdóttir leit við á antíkmarkaðinn á Akranesi. Í pistli vikunnar sýnir hún brot af úrvalinu í þessum gullmola á Skaganum. Við gefum henni orðið. Lífið 23. apríl 2022 11:52
Guðríður komin í hald lögreglu Lögreglan á Vesturlandi hefur lagt hald á styttuna af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var af stöpli á Laugarbrekku og komið fyrir inni í listaverki fyrir framan Nýlistasafnið í Reykjavík. Innlent 22. apríl 2022 17:49
Ofvaxnir skyndibitar og sælgætisskúlptúrar Tinnu á Akranesi Ofvaxnir skyndibitar, sælgætisskúlptúrar, pínulitlir og risa Royal búðingar, svo ekki sé minnst á Hubba Bubba og bláan ópal, eru meðal verka hjá listakonu, sem eru til sýnis á Akranesi. Sjón er sögu ríkari. Matur 17. apríl 2022 20:46
Hefur saumað ellefu þjóðbúninga á Akranesi Þjóðbúningar og allt í kringum þá er í miklu uppáhaldi hjá húsmóður á Akranesi en hún hefur saumað ellefu slíka búninga og á eftir að sauma einn í viðbót. Hún hvetur, sem flesta að læra að gera sér þjóðbúning og klæðast þeim við hátíðleg tækifæri. Innlent 15. apríl 2022 19:21
Byrjaði sautján ára með eigin rekstur og réð pabba sinn í vinnu Það er mikið meira en nóg að gera hjá Alexander Degi, 18 ára strák á Akranesi, sem er með sína eigin bílaþvottastöð. Vegna mikilla anna hefur hann ráðið pabba sinn í vinnu til sín. Alexander Dagur er líka kattliðugur. Innlent 14. apríl 2022 23:00
Kjörstjórnir í stökustu vandræðum víða um land Ljóst er að kjórstjórnir víða um land eru í stökustu vandræðum vegna nýrra hæfisviðmiðna nýrra kosningalaga. Formenn kjörstjórna syrgja ekki síst vana starfsmenn hafa gegnt lykilhlutverki á kjördag en hafa nú þurft að víkja sæti. Innlent 11. apríl 2022 11:45