Wolves - Arsenal 2-2

Arsenal fékk draumabyrjun þegar Bukayo Saka skallaði boltann í markið strax á fimmtu mínútu leiksins eftir fyrirgjöf frá Declan Rice. Þannig var staðan þar til á í upphafi seinni hálfleiks þegar varnarmennirnir Piero Hincapié og Gabriel unnu vel saman. Gabriel kom boltanum á vinstri bakvörðinn og Hincapié skoraði laglega. Úlfarnir áttu aftur á móti svar og Hugo Bueno minnkaði muninn í 2-1 aðeins fimm mínútum síðar með skoti fyrir utan teig. Liðið vann sig vel inn í leikinn eftir erfiða byrjun og stríddi toppliðinu það sem eftir var leiksins. Úlfarnir uppskáru síðan jöfnunarmark í uppbótartímanum þegar skot Tom Edozie fór af Riccardo Calafiori og í eigið mark. Þeir sem áttu þó mesta sök á því voru David Raya og Gabriel sem voru afar klaufalegir eftir fyrirgjöf og boltinn datt fyrir Edozie. Arsenal hafði verið að tefja í aðdraganda jöfnunarmarksins og tókst ekki að skipta aftur í sóknargírinn og sækja sigur. Niðurstaðan er því tvö töpuð stig á móti lélegasta liði deildarinnar.

997
03:44

Vinsælt í flokknum Enski boltinn