Flugfreyjubúningarnir sem Þóra lét sauma fyrir pílagrímaflugið
Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin á streymisveitunni Sýn+ lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu. Hér má sjá sjö mínútna kafla.