Monaco - PSG 2-3

PSG lenti í algjörri martaðabyrjun í heimsókn sinni til AS Monaco en tókst að snúa leiknum við og vinna 2-3 sigur. Varamaðurinn Désiré Doué kom inn í stað Ousmane Dembélé í fyrri hálfleik og átti algjöran draumaleik. Doué minnkaði muninn á 29. mínútu og átti síðan skotið sem Achraf Hakimi fylgdi eftir til að jafna leikinn á 41. mínútu. Doué skoraði síðan sjálfur sigurmarkið til að kóróna sína frábæru frammistöðu.

83
03:10

Vinsælt í flokknum Fótbolti