Innlent

Þriðjungur undir á­hrifum í raf­skútuslysum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Rúmlega helmingur slasaðra, eða 53 prósent, þurfti að leita tvisvar eða oftar til heilbrigðiskerfisins vegna slyssins.
Rúmlega helmingur slasaðra, eða 53 prósent, þurfti að leita tvisvar eða oftar til heilbrigðiskerfisins vegna slyssins. Vísir/Vilhelm

Áfengi og önnur vímuefni koma við sögu í um þriðjungi rafskútuslysa meðal 17 ára og eldri. Rafskútuslysum sem leiða til komu á bráðamóttöku Landspítala hefur þó fækkað verulega á undanförnum árum, þrátt fyrir aukna notkun rafskútna á höfuðborgarsvæðinu. Fækkunin er sérstaklega áberandi meðal barna og ungmenna.

Rannsakendur telja niðurstöðurnar benda til þess að fræðsla og forvarnir gegn rafskútuslysum séu að skila árangri. Í júlí 2024 tóku gildi breytingar á umferðarlögum sem meðal annars bönnuðu börnum yngri en 13 ára að nota rafskútur.

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem unnin af Hjalta Má Björnssyni, Helgu Margréti Þorsteinsdóttur, Dagbjörtu Guðbrandsdóttur og Þórði Líndal Þórssyni, læknum á bráðamóttöku Landspítala og er að finna í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.  Rannsóknin náði til allra þeirra 513 einstaklinga sem leituðu á bráðamóttökuna vegna rafskútuslysa yfir sumarmánuðina árin 2023, 2024 og 2025.

Hlutfall slasaðra undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna eftir dögum. Læknablaðið

Sumarið 2023 leituðu 232 einstaklingar á bráðamóttöku vegna rafskútuslysa en þeim hafði fækkað í 135 sumarið 2025. Í umfjöllun um greinina á vef Landspítalans kemur fram að það jafngildi um 42 prósenta fækkun á tímabilinu. Að meðaltali fækkaði komum úr 2,52 á dag í 1,47.

Fækkun áberandi meðal barna og ungmenna

Í greininni kemur fram að fækkunin sé sérstaklega áberandi meðal barna og ungmenna yngri en 18 ára. Komum þeirra á bráðamóttöku vegna rafskútuslysa fækkaði úr 64 sumarið 2023 í 27 sumarið 2025. Meðal barna 12 ára og yngri fækkaði komum úr 25 í sjö á sama tímabili.

Myndin sýnir hvar slysin áttu sér stað, hvar áverkar voru helst og uppgefna ástæðu slyss. Læknablaðið

Rannsakendur telja að þrátt fyrir fækkun slysa sé áfengis- og vímuefnaneysla áfram verulegt áhyggjuefni. Alls gáfu 34 prósent slasaðra 17 ára og eldri upp að hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar slysið varð. Hlutfallið breyttist lítið milli ára.

Slysin algengari um helgar

Slysin voru einnig mun algengari um helgar en á virkum dögum. Um helmingur þeirra sem slösuðust á laugardögum og sunnudögum og voru spurðir um vímuefnaneyslu reyndist hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.

Niðurstöðurnar sýna jafnframt að afleiðingar rafskútuslysa geta verið alvarlegar. Um 43 prósent þeirra sem leituðu á bráðamóttökuna hlutu beinbrot eða liðhlaup og 32 prósent hlutu áverka á höfði eða andliti.

Alls þurftu 40 einstaklingar að gangast undir skurðaðgerð vegna áverkanna og 27 þurftu að dvelja á sjúkrahúsi í að minnsta kosti 12 klukkustundir. Rúmlega helmingur slasaðra, eða 53 prósent, þurfti að leita tvisvar eða oftar til heilbrigðiskerfisins vegna slyssins.

Sextán prósent með hjálm

Athygli vekur einnig að aðeins 16 prósent þeirra sem slösuðust voru með hjálm þegar slysið varð.

Rannsakendur telja að árangur hafi náðst í að draga úr rafskútuslysum, meðal annars með aukinni fræðslu, forvörnum og breytingum á regluverki. Þeir leggja þó áherslu á að slysatíðnin sé enn umtalsverð og að áfram þurfi að vinna markvisst að því að fækka slysum.

Í greininni kemur jafnframt fram að rannsakendur telji líklegt að ef sama frambvoð væri á rafmagnshjólum til leigu í staðinn fyrir rafskúframboð hægt að ná sama árangri í vistvænum samgöngum en með mun minni slysatíðni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×