Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. nóvember 2026 16:11 Íris Helga hefur neitað hinum ýmsu ásökunum en játað í einhverjum tilvikum. Vísir/Vilhelm Sölvi Guðmundsson sem segir Írisi Helgu Erlingsdóttur hafa setið um sig og eltihrellt segir áhrifin hafa verið mjög mikil og valdið óöryggi og vanlíðan á heimi fjölskyldu hans. Eftir að ákæra var gefin út birtist dánartilkynning um Sölva í Morgunblaðinu sem var ekki fótur fyrir.
Salurinn var orðinn svo troðfullur eftir að fyrsti brotaþolinn, sambýliskona hans og fjölskylda báru vitni, að einhverjir þurftu að standa við innganginn. Þegar einhver lauk að bera vitni fyrir dómara sat viðkomandi eftir og fylgdist með því sem fram fór. Annað var uppi á teningnum í gær þegar Íris ein gaf vitni. Þá voru blaðamenn og örfáir aðrir sem fylgdust með. Það var erfitt að heyra það sem Sölvi Guðmundsson, einn brotaþolanna í máli Írisar Helgu, hafði um málið að segja. Hann talaði lágt, en virtist þó öruggur, og sneri sér langt til vinstri. Honum á hægri hönd sat Íris Helga við hlið verjanda síns. Sölvi leit ekki einu sinni þangað, jafnvel þegar verjandinn spurði hann spurninga. Sölvi sagði þau Írisi hafa kynnst á stefnumótaforriti og verið í sambandi frá því í mars 2023 til ársins 2024. Þau hafi ekki búið saman en varið miklum tíma saman og hafi hann gist á heimili hennar ásamt dætrum sínum. Forvitinn um hrellibrögð Íris Helga sagði í máli sínu í gær að þegar leið á samband þeirra Sölva hafi hann orðið mjög upptekinn af málinu sem varðar fyrsta brotaþolann og fjölskyldu hans. Sölvi sagðisthafa heyrt af málinu frá öðrum en vildi ekki nefna hver sagði honum frá því. Það hafi þó ekki verið fyrsti brotaþolinn. „Ég hafði áhuga á því máli því hún var búin að segja mér allt sambandið, að þau hefðu verið að hrella og ég vildi vita hvernig það hefði staðið yfir,“ sagði Sölvi. Þegar sambandi þeirra lauk hafi Sölva farið að berast skilaboð frá fölskum reikningum. Einn reikninganna bar nafn sonar annars brotaþola. Hvað varðar ásakanirnar á hendur Írisi um að hún hafi verið að birta færslur á samfélagsmiðlum þar sem hún sagðist ólétt eftir Sölva og hann myndi aldrei fá að hitta barnið, sagðist Sölvi bara hafa fengið send skjáskot og annað af færslunum. Hann hafi því aldrei séð færslurnar áður. Sölvi ræddi einnig meinta TikTok-reikninga Írisar og myndskeið sem hún á að hafa birt þar. Þar var hann sakaður um að vera kynferðisafbrotamaður og annað álíka. Skilaboð milli Sölva og Írisar voru borin undir hann og staðfesti hann þau. Skilaboðin voru send þeirra á milli í gegnum TikTok en Íris hélt því staðfastlega fram að hún notaði ekki og kynni ekki á miðilinn. Umtöluð dánartilkynning Sölvi var spurður hvort hann hefði orðið fyrir einhverju áreiti eftir að ákæran var lögð fram og svaraði hann játandi. Þremur dögum eftir að Íris Helga var formlega ákærð birtist fölsk dánartilkynning í Morgunblaðinu. Íris var spurð út í tilkynninguna við skýrslutöku og neitaði því að hafa nokkuð með hana að gera. Hún myndi aldrei verja fjörutíu þúsund krónum í slíka tilkynningu. Dóttir Sölva bar vitni Dóttir Sölva bar einnig vitni. Hún segir að þær Íris Helga hafi verið í góðum samskiptum og vinkonur á meðan samband þeirra stóð yfir. Hins vegar hafi þær tekið að rífast eftir að sambandinu lauk og taldi dóttirin að Íris Helga hefði skorið á dekk á bíl föður síns. Íris hafi þá einnig tekið upp á því að senda henni sjálfri skilaboð á Facebook frá sínum eigin reikningum. „Hún var að ásaka pabba minn um að hafa haldið fram hjá og síðan sagði hún mér að yngsti bróðir minn væri rangfeðraður,“ sagði dóttirin. Einnig hafi hún fengið skilaboð frá fölsuðum aðgöngum, fjölda símhringinga úr leyninúmerum og tilkynningar um að verið væri að reyna að nota rafrænu skilríkin sín. Óvænt heimsókn á Breiðdalsvík Atvik á Breiðdalsvík kom einnig til umræðu en í ákærunni er Írisi Helgu gefið að sök að hafa komið þangað, ekið að vinnustað Sölva og síðar vinnustað dóttur hennar þar til dóttirin sagði henni að fara. Rök Írisar voru sú að hún var á ferðalagi um Austfirði að heimsækja vinkonu sína sem bjó skammt frá. Hún hefði verið með börnunum sínum, stoppað á bensínstöðinni á Breiðdalsvík en aldrei farið út úr bílnum. Börnin hennar hafi séð um að dæla bensíninu. Sölvi sagði að Íris hefði keyrt um og ætlað að senda börnin sín inn á vinnustaðinn hans. Börnin hefðu ekki fengið að koma inn en endað inni á vinnustað dóttur hans og hún hefði sagt þeim að fara burt. Einnig er Íris sökuð um að hafa sent tölvupóst á framhaldsskóla stúlkunnar og sagt hana vera að áreita aðra nemendur. Þá áttu Sölvi og kærasta hans að vera að bera fíkniefni inn í skólann. Íris neitaði öllu hvað varðaði þessar ásakanir. Vanlíðan á eigin heimili „Áhrifin eru mjög mikil, óöryggi og vanlíðan inni á eigin heimili,“ segir Sölvi. Málið hafi einnig haft áhrif á atvinnuöryggi hans þar sem Íris hafði tvisvar sinnum haft áhrif á möguleika hans á starfi. Vinnuveitendur hans hafi fengið fjölda sendinga og skilaboða. Dóttir Sölva tekur undir að málið hafi vakið mikið óöryggi, hræðslu og valdið vanlíðan. Hún er í dag hrædd við Írisi Helgu.
Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Dómsmál Reykjanesbær Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira