Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Smári Jökull Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 07:34 Fyrstu kjörstaðir opna fyrir hádegi að íslenskum tíma. Vísir/Getty Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag í kosningum sem gætu haft mikil áhrif á seinni tvö ár kjörtímabils Donalds Trump. Samkvæmt könnunum hafa kjósendur mestar áhyggjur af auknum kostnaði í samfélaginu en kosningarnar koma á erfiðum tíma fyrir Repúblikanaflokkinn.
Á tíma þegar verð á matvöru og eldsneyti hefur rokið upp úr öllu valdi, meðal annars vegna ákvarðana Trump um tolla og átakanna í Íran, má búast við að margir muni kjósa með veskinu. Trump hefur tekið virkan þátt í kosningabaráttunni en vinsældir hans hafa aldrei verið minni. Hefur hann oft á tíðum valið að mæta í kosningafundi í ríkjum þar sem búist er við sigri Repúblikana en hann var á fundum í Iowa og Kansas síðustu daga. Þá hafa Repúblikanir eytt hundruðum milljónum dollara í herferðir í ríkjum þar sem Repúblikanir hafa í sögulegu samhengi oftast unnið þægilega sigra. Samkvæmt könnunum er nánast öruggt að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins en spennan er öllu meiri í öldungadeildinni en Demókratar hafa þó verið sjónarmun á undan í mörgum ríkjum þar. Fari svo að Demókratar nái meirihluta í báðum þingdeildum mun það hafa töluverð áhrif á seinni hluta kjörtímabils Trump. Alls er kosið um öldungadeildarsæti í 35 ríkjum þar sem þrettán eru núna í höndum Demókrata en 22 í höndum Repúblikana. Í mörgum þeirra þykja úrslitin nánast örugg en spálíkön fjölmiðla benda til þess að mest spennandi ríkin séu nokkur. Demókratar þurfa meðal annars að halda sætum sínum í Georgíu, Minnesota, New Hampshire og Michigan og það þykir ekki algjörlega öruggt. Auk þessara ríkja þurfa þeir að ná sætum af Repúblikönum í að minnsta kosti fjórum ríkjum en meðal þeirra ríkja sem Demókratar telja sig eiga séns eru Norður-Karólína, Maine, Alaska, Iowa, Texas, Ohio og Kansas. Fyrstu kjörstaðir munu opna í Vermont klukkan 10 að íslenskum tíma en kjósendur í fleiri ríkjum á Austurströndinni, New Jersey, Virginíu, Connecticut og Kentucky geta byrjað að kjósa klukkan 11. Yfir 230 milljón kjósendur eru á kjörskrá í landinu öllu en auk kosninga til beggja deilda þingsins fara fram kosningar um ríkisstjóra í fjölmörgum ríkjum.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Tengdar fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans. 1. nóvember 2026 14:32 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Sjá meira
„Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans. 1. nóvember 2026 14:32