Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Smári Jökull Jónsson skrifar 30. október 2026 15:49 Heimsóknir Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell í Balmoral kastala eru til skoðunar hjá lögreglu í Skotlandi. Vísir/Getty Lögreglan í Skotlandi hefur hafið athugun á ferðum Andrew Mountbatten-Windsor, Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell til Balmoral-kastala. Konungsfjölskyldan hefur um áratugaskeið notað kastalann sem sumardvalarstað sinn en rannsókn lögreglu snýr meðal annars að hvort konum hafi verið smyglað í kastalann.
Epstein og Maxwell eru talin hafa heimsótt kastalann ásamt Mountbatten-Windsor sem áður var þekktur sem Andrés prins. Epstein lést 66 ára gamall í fangelsi árið 2019 en Maxwell var dæmd í tuttugu ára fangelsi árið 2022 fyrir mansal. Var hún meðal annars sakfelld fyrir að útvega Epstein stúlkur. Lögregla segir rannsókn málsins vera á byrjunarstigi og fyrir utan að staðfesta að henni hafi borist upplýsingar um málið hafa talsmenn lögreglunnar lítið tjáð sig. Samkvæmt umfjöllun götublaðsins Daily Express er til rannsóknar hvort konum hafi verið smyglað í kastalann en lögregla segir rannsóknina byggða á sönnunargögnum og að hagsmunir þolenda séu hafðir í fyrirrúmi. Lýst sem sumarbúðum Í febrúar var óskað eftir upplýsingum frá almenningi um flug einkaþotu Epsteins til Edinborgarflugvallar. Flugskrár sýna að Mountbatten-Windsor og Maxwell flugu með þotunni frá Luton til Edinborgar þann 1. september 2006 ásamt tveimur öðrum farþegum. Þá lögðu bandarískir saksóknarar fram ljósmynd við réttarhöldin yfir Maxwell sem talin er sýna hana og Jeffrey Epstein í Balmoral. Er myndin sögð hafa verið tekin árið 1999 þegar Mountbatten-Windsor á að hafa boðið þeim í kastalann. Epstein og Maxwell eru reyndar sögð hafa verið tíðir gestir á heimilum konungsfjölskyldunnar undir lok tíunda áratugarins og í byrjun þess næsta. Í Epstein-skjölunum svokölluðu, sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti í fyrra, er tölvupóstur frá aðila sem skrifar undir nafninu „A“. Var hann stendur til Maxwell þann 16. ágúst 2001 frá Balmoral þar sem sendandinn lýsir dvölinni sem sumarbúðum konungsfjölskyldunnar og biður Maxwell um að finna fyrir sig nýja óviðeigandi vini. Mountbatten-Windsor hefur ítrekað neitað allri sök í tengslum við samskipti sín við Epstein en hann var sviptur prinstitli í október í fyrra og í kjölfarið handtekinn, grunaður um misferli í opinberu starfi.
Mál Jeffrey Epstein Bretland Kóngafólk Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira