Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar 2. nóvember 2026 20:27 Nú þegar nóvember er genginn í garð og jólin nálgast fara flest okkar að huga að undirbúningi hátíðanna. Við hlökkum til samverustunda með fjölskyldunni, góðs matar og þess að gleðja börnin okkar. En því miður eru jólin ekki jafn áhyggjulaus hjá öllum. Fyrir margar fjölskyldur í Hafnarfirði er þessi tími ársins þungur. Áhyggjur af því að eiga fyrir mat, nauðsynjum og jafnvel litlum jólagjöfum handa börnunum geta skyggt á þá gleði sem við viljum öll að fylgi hátíðunum. Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hefur um árabil staðið vörð um þá sem minnst mega sín. Þar starfar fólk af hugsjón, með hjartað á réttum stað, sem leggur tíma sinn og krafta í að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga í erfiðri stöðu. Í nýlegri færslu vekur á Facebook hjá Petreu Ómarsdóttur, sem er formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar, vekur hún athygli á alvarlegri stöðu. Þar greinir hún frá því að nefndin hafi komið til móts við efnaminni einstaklinga og fjölskyldur með matvæli, gjafir og annan stuðning, en að nú sé óvissa um hvernig hægt verði að halda þeirri aðstoð áfram. Petrea bendir jafnframt á að nefndin hafi óskað eftir aðstoð bæjaryfirvalda án þess að viðunandi lausn hafi fengist, samkvæmt frásögn hennar. Þetta eru mikil vonbrigði. Börnin mega aldrei gleymast Það sem mér finnst einna sárast við þessa stöðu er að á bak við hverja beiðni um aðstoð er manneskja, fjölskylda og oft börn sem hafa ekkert um aðstæður sínar að segja. Börn eiga ekki að þurfa að gjalda fyrir erfiða fjárhagsstöðu foreldra sinna. Þau eiga að geta hlakkað til jólanna eins og önnur börn, án þess að áhyggjur af mat á borðið eða jólagjöfum skyggi á hátíðina. Við getum verið stolt af Hafnarfirði á svo margan hátt. En styrkur samfélagsins mælist ekki eingöngu í framkvæmdum, fallegum byggingum eða fjárhagslegum árangri. Hann mælist líka í því hvernig við komum fram við þau sem þurfa mest á hjálp að halda. Áskorun til meirihlutans Ég skora á núverandi meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar að taka þessa stöðu alvarlega og setjast án tafar niður með forsvarsfólki Mæðrastyrksnefndar til að finna raunhæfa lausn. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra, óháð pólitískum skoðunum, að engin fjölskylda í Hafnarfirði þurfi að standa ein þegar mest á reynir. Hér er ekki verið að biðja um munað eða óþarfa. Hér er verið að kalla eftir því að mikilvægt mannúðarstarf geti haldið áfram og að þeir sem þurfa aðstoð fái hana. Það er vonandi enn tími til að bregðast við fyrir jólin. Að lokum vil ég þakka Petreu Ómarsdóttur og öllu því góða fólki sem stendur að Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar fyrir óeigingjarnt og mikilvægt starf. Hafnarfjörður á að vera samfélag þar sem við stöndum saman, ekki síst þegar á reynir. Gerum betur. Fyrir fjölskyldurnar. Fyrir börnin. Fyrir Hafnarfjörð. Höfundur er formaður kjördæmissambands Framsóknar í Suðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Nú þegar nóvember er genginn í garð og jólin nálgast fara flest okkar að huga að undirbúningi hátíðanna. Við hlökkum til samverustunda með fjölskyldunni, góðs matar og þess að gleðja börnin okkar. En því miður eru jólin ekki jafn áhyggjulaus hjá öllum. Fyrir margar fjölskyldur í Hafnarfirði er þessi tími ársins þungur. Áhyggjur af því að eiga fyrir mat, nauðsynjum og jafnvel litlum jólagjöfum handa börnunum geta skyggt á þá gleði sem við viljum öll að fylgi hátíðunum. Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hefur um árabil staðið vörð um þá sem minnst mega sín. Þar starfar fólk af hugsjón, með hjartað á réttum stað, sem leggur tíma sinn og krafta í að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga í erfiðri stöðu. Í nýlegri færslu vekur á Facebook hjá Petreu Ómarsdóttur, sem er formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar, vekur hún athygli á alvarlegri stöðu. Þar greinir hún frá því að nefndin hafi komið til móts við efnaminni einstaklinga og fjölskyldur með matvæli, gjafir og annan stuðning, en að nú sé óvissa um hvernig hægt verði að halda þeirri aðstoð áfram. Petrea bendir jafnframt á að nefndin hafi óskað eftir aðstoð bæjaryfirvalda án þess að viðunandi lausn hafi fengist, samkvæmt frásögn hennar. Þetta eru mikil vonbrigði. Börnin mega aldrei gleymast Það sem mér finnst einna sárast við þessa stöðu er að á bak við hverja beiðni um aðstoð er manneskja, fjölskylda og oft börn sem hafa ekkert um aðstæður sínar að segja. Börn eiga ekki að þurfa að gjalda fyrir erfiða fjárhagsstöðu foreldra sinna. Þau eiga að geta hlakkað til jólanna eins og önnur börn, án þess að áhyggjur af mat á borðið eða jólagjöfum skyggi á hátíðina. Við getum verið stolt af Hafnarfirði á svo margan hátt. En styrkur samfélagsins mælist ekki eingöngu í framkvæmdum, fallegum byggingum eða fjárhagslegum árangri. Hann mælist líka í því hvernig við komum fram við þau sem þurfa mest á hjálp að halda. Áskorun til meirihlutans Ég skora á núverandi meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar að taka þessa stöðu alvarlega og setjast án tafar niður með forsvarsfólki Mæðrastyrksnefndar til að finna raunhæfa lausn. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra, óháð pólitískum skoðunum, að engin fjölskylda í Hafnarfirði þurfi að standa ein þegar mest á reynir. Hér er ekki verið að biðja um munað eða óþarfa. Hér er verið að kalla eftir því að mikilvægt mannúðarstarf geti haldið áfram og að þeir sem þurfa aðstoð fái hana. Það er vonandi enn tími til að bregðast við fyrir jólin. Að lokum vil ég þakka Petreu Ómarsdóttur og öllu því góða fólki sem stendur að Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar fyrir óeigingjarnt og mikilvægt starf. Hafnarfjörður á að vera samfélag þar sem við stöndum saman, ekki síst þegar á reynir. Gerum betur. Fyrir fjölskyldurnar. Fyrir börnin. Fyrir Hafnarfjörð. Höfundur er formaður kjördæmissambands Framsóknar í Suðvesturkjördæmi.
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun