Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson, Jóhann Steinar Ingimundarson og Þórður Á. Hjaltested skrifa

Að fá að vera með skiptir máli. Í íþróttum fá börn tækifæri til að hreyfa sig, eignast vini, takast á við áskoranir og finna sinn stað í hópnum. Þar verða til tengsl og tilfinning fyrir því að tilheyra. Þessi tækifæri eiga öll börn að hafa.

Íþróttir eru stærsta fjöldahreyfing landsins og á Íslandi er sterk hefð fyrir þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi. Um allt land bjóða íþróttafélög upp á öflugt og metnaðarfullt starf. Skipulagt íþróttastarf eflir líkamlega, andlega og félagslega heilsu og er þannig öflug forvörn og mikilvægur þáttur í lýðheilsu. Börn fá þar tækifæri til að þroskast, finna styrkleika sína og vera hluti af hópnum.

En þessi mikla þátttaka nær ekki jafnt til allra barna. Aðeins eitt af hverjum tíu börnum með fötlun stundar skipulagðar íþróttir.

Þessu getum við breytt.

Vitundarvakningin Allir með sýnir hvað hægt er að gera þegar ólíkir aðilar taka höndum saman. Með aðkomu ÍSÍ, UMFÍ, ÍF og þriggja ráðuneyta hefur þátttaka barna með fötlun í íþróttum aukist úr 3–4% í rúmlega 10%.

Þetta er umtalsverður árangur sem sýnir hverju samstillt átak getur skilað. En við getum gert enn betur og gert fleiri börnum kleift að vera með.

Næsta skref er að ná til enn fleiri barna. Til þess þurfum við að auðvelda börnum með fötlun og fjölskyldum þeirra að finna íþróttastarf við hæfi og styðja íþróttafélögin við að taka á móti fleirum. Þannig getum við fjölgað tækifærum til þátttöku og gert íþróttir að raunhæfum kosti fyrir fleiri börn.

Markmiðið er skýrt: Enginn standi fyrir utan. Allir með.

Höfundar eru Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður Ungmennafélags Íslands, og Þórður Á. Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra.




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×