Innlent

Feðgarnir hand­teknir í heima­húsi með al­var­lega á­verka

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Kerti og blóm hafa verið lögð við vettvang árásarinnar í dag.
Kerti og blóm hafa verið lögð við vettvang árásarinnar í dag. vísir/oddur

Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöld í tengslum við manndráp í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni leikur grunur á að um einhvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Sonurinn er grunaður um að stinga tvo menn sem hafi reynt að kúga af honum fé í einhvern tíma.

Þrír menn voru handteknir aðfaranótt sunnudags grunaðir um aðild að manndrápi og alvarlegri líkamsárás. Lögreglu barst tilkynning um málið klukkan hálftvö um nóttina og voru tveir menn fluttir á slysadeild með alvarlega stunguáverka. Annar mannanna var úrskurðaður látinn skömmu síðar en hinn liggur enn á spítala þungt haldinn með nokkra stunguáverka.

Feðgarnir illa leiknir eftir áflogin

Atvikið átti sér stað í Breiðholti á horni Hraunbergs og Austurbergs en þrír menn voru handteknir í kjölfarið skammt frá vettvangi. Einn mannanna var látinn laus stuttu síðar en ekki liggur fyrir hvaða hlut hann átti að málinu, svo virðist sem sá maður tengist ekki málinu með beinum hætti.

Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær til 9. nóvember. Sonurinn er grunaður um að stinga mennina tvo en ekki liggur fyrir hvort faðirinn sé grunaður um hlutdeild í málinu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru feðgarnir saman á vettvangi þegar atburðarásin fór af stað. Faðirinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna en hann og sonur hans voru handteknir í heimahúsi í Breiðholti.

Faðirinn hlaut alvarlega áverka á hendi við áflogin og þurfti að sauma hluta fingurs aftur á. Sonurinn var einnig með alvarlega áverka og illa leikinn eftir átökin.

Nýlega snúið aftur heim frá Spáni

Brotaþolar og sakborningar eru allir Íslendingar. Sonurinn og mennirnir tveir sem urðu fyrir árásinni eru á fertugsaldri. Faðirinn er á sextugsaldri.

Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu mennirnir tveir sem urðu fyrir stunguárásinni reynt að kúga fé af árásarmanninum um nokkurt skeið.

Hinn látni var 34 ára og var með fjölda dóma á bakinu, meðal annars fyrir fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað. Hann hafði um árabil búið á Spáni en hafði nýlega snúið heim til Íslands.

Yfirmaður hjá lögreglunni segir grun um að um einhvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Feðgarnir sæta nú einangrun í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×