Enski boltinn

Ó­lík­legt að leik­menn Man United séu með fallákvæði í samningum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Carrick getur ekki leynt vonbrigðum og svekkelsi sínu í tapleiknum á móti Chelsea á Stamford Bridge um helgina.
Michael Carrick getur ekki leynt vonbrigðum og svekkelsi sínu í tapleiknum á móti Chelsea á Stamford Bridge um helgina. AP/Ian Walton

Manchester United sat um tíma í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en liðið endaði umferðina í einu sæti ofar en fallsæti þökk sé betri markatölu en liðið fyrir neðan.

Þótt knattspyrnustjórinn Michael Carrick vilji ekki tala um að liðið sé komið í fallbaráttu blasa staðreyndir málsins við og Simon Stone hjá breska ríkisútvarpinu fór að velta fyrir sér hugsanlegum fjárhagslegum áhrifum falli United niður um deild næsta vor.

Hann bendir á það að í maí hafi hinn virti bloggari um fjármál knattspyrnunnar, Paul Quinn, reiknað út að „algert tekjutap“ Tottenham yrði á bilinu 197–235 milljónir punda ef liðið félli. Það eru á bilinu 32,2 til 38,5 milljarðar króna.

Stone tekur það þó fram að þar sem United er eitt þeirra félaga í deildinni sem fá hæstar sjónvarpstekjur myndu fallhlífargreiðslurnar sem standa föllnum félögum til boða við fall úr ensku úrvalsdeildinni ekki vera nálægt því að dekka tapið.

Svo eru það samningar stórstjarnanna. „Ólíklegt þykir að margir, ef nokkrir, leikmenn í hópnum séu með fallákvæði í samningum sínum, og þótt United hafi gríðarlegar viðskiptatekjur er ekki vitað að hve miklu leyti þær yrðu fyrir áhrifum af ákvæðum sem virkjast við fall,“ skrifaði Simon Stone.

Það yrði auðvitað mjög slæmt að þurfa að standa við þessa stóru launasamninga þegar tekjutapið yrði svo mikið. Nógu erfitt hefur verið fyrir félagið að losna við leikmenn á slíkum risasamningum síðustu ár. Samningarnir myndu kannski standa eftir en styrktaraðilar gætu nýtt sér fallið úr deildinni til að lækka styrki sína.

United skuldar einnig 1,15 milljarða punda, sem samanstanda meðal annars af skuldabréfum sem endursamið var um í júní á hærri vöxtum. Sú slæma staða er líka ástæða til að hafa áhyggjur komi upp tími þar sem tekjurnar hrynja.

Félagið er einnig að setja saman áætlanir um fjáröflun fyrir nýjan leikvang en þær á að leggja fram annaðhvort síðla árs 2027 eða snemma árs 2028. Fall úr deildinni gæti einnig komið í veg fyrir slík plön.

Einhverjir stuðningsmenn hafa bent á að það eina jákvæða við fall úr deildinni væri að þá myndu þeir loksins losna við Glazers-fjölskylduna sem eigendur. Það yrði samt margra ára verk að koma United aftur á stall sem eitt besta lið Englands færi allt á versta veg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×