Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Áróra L Davíðsdóttir skrifar 31. október 2026 09:08 Á laugardaginn síðastliðinn voru þúsund hið minnsta handteknir í Frakklandi í mótmælum. AP Sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf víða í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að búa sig undir þriðju helgi mótmæla þar í landi. Lestarstöðvum í París hefur verið lokað og víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana. Þá eru þýsk yfirvöld með varann á vegna mótmæla í yfir þrjátíu borgum Þýskalands í dag.
Síðustu helgi var sami viðbúnaður lögreglu í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að stemma stigu við óeirðum og ofbeldi sem fylgdu mótmælunum sem náðu hápunkti sínum laugardaginn 17. október. Þá hafa þúsundir verið handteknir á síðustu vikum í tengslum við óeirðir mótmælanna. Sjá einnig: Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Innanríkisráðherra Frakklands Laurent Nunez varaði við mikilli „hættu á óeirðum“ og að mótmæli yrðu leyfð, þó ekki í miðsvæðis í stórborgum, að því er kemur fram í umfjöllun Le Monde. Síðustu helgi bannaði lögregla mótmæli víða í París og rýmdi meðal annars Bastillutorgið þar í borg. Lögreglumenn rýmdu Bastillutorgið í París síðasta laugardag.AP Le Monde greinir frá því að fjörutíu lestarstöðvum verði lokað í París og einnig megi búast við truflunum á öðrum samgöngum. Útgöngubann muni gilda í sumum hverfum borgarinnar frá klukkan 23 í kvöld til klukkan 6 í fyrramálið. Sjá einnig: Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Mótmælin bera upp á hrekkjavöku og hefur Nunez varað við því að mótmælendum yrði ekki heimilt að bera grímur sem hyldu andlit þeirra. Þýsk ungmenni fylgja Sömuleiðis er búist við á annað hundrað mótmælenda í þrjátíu og fjórum borgum í Þýskalandi, meðal annars Berlín, Frankfurt og Munchen að því er kemur fram í umfjöllun Reuters. Mótmælin eru skipulögð af ungliðahreyfingunni Gen Z-regelt, sem mætti lauslega þýða sem „Z-kynslóðin kemur á reglu.“ Á heimasíðu samtakanna segjast þau mótmæla herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefjast aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerðum í loftslagsmálum. Þýsk stjórnvöld búast við því að mótmælin fari friðsamlega fram en vara við tilraunum öfgahópa til að nýta sér hreyfinguna. Í höfuðborginni Berlín hefur verið neglt fyrir glugga ýmissa lúxusverslana á verslunargötunni Kurfuerstendamm vegna áhyggna um mögulegar óeirðir. Verslunareigendur búa sig undir mögulegar óeirðir mótmæla í Berlín.AP Þá komu tugir þúsunda saman í yfir fjörutíu borgum á Ítalíu í gær til að krefjast betri kjara og mótmæla háum framfærslukostnaði og auknum útgjöldum hins opinbera til hernaðarmála.
Frakkland Mótmælaalda í Evrópu 2026 Þýskaland Ítalía Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira