Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Samúel Karl Ólason skrifar 30. október 2026 09:47 Mikinn reyk ber frá Novokuybyshevsk-olíuvinnslunni í Samara eftir árás Úkraínumanna í morgun. Telegram Úkraínumenn gerðu í morgun umfangsmikla árás á stóra olíuvinnslu í Samara-héraði. Þar með bundu þeir enda á tveggja vikna árásahlé sem Úkraínumenn höfðu komið á vegna þrýstings frá ríkisstjórn Bandaríkjanna. Árásin var gerð eftir að Rússar felldu fjölda óbreyttra borgara í árásum í Úkraínu í gær.
Árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi þykja vel heppnaðar en sala á olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins og er notuð til að fjármagna stríðið gegn Úkraínu. Síðast réðust Úkraínumenn á olíuvinnslu í Rússlandi þann 15. október. Síðasta árásin sem gerð var á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi var þann 20. október. Nú réðust Úkraínumenn á Novokuybyshevsk-olíuvinnsluna í Samara og bendir myndefni þaðan til þess að árásin hafi valdið töluverðum skemmdum. More striking footage of the Novokuybyshevsk refinery burning. https://t.co/XLdPA93NXr— WarTranslated (@wartranslated) October 30, 2026 Þessi árás var gerð í kjölfar þess að Rússar felldu að minnsta kosti 27 óbreytta borgara í árásum á einum sólarhring, þar á meðal fimmtán manns sem biðu á lestarpalli í Dnípró. Gerðu hlé vegna Trumps Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur að undanförnu reynt að kenna árásum Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi um hátt eldsneytisverð. Hið rétta er að stríð hans gegn Íran spilar mun stærri rullu í hærra eldsneytisverði en þessar árásir. Trump hefur gengið mjög hart fram gegn Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, vegna þessa og talað máli Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Þá hefur hann dregið úr refsiaðgerðum gegn Rússlandi og lýst því yfir að Bandaríkin ætli að kaupa díselolíu af Rússum. Eftir að Selenskí gagnrýndi Trump vegna þessa brást hann reiður við. Hann hefur síðan þá gagnrýnt Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf. Bandaríkjamenn hafa einnig takmarkað varnir Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum, með því að takmarka það hvernig Úkraínumenn hafa getað notað móttökustöðvar Starlink-gervihnatta í Úkraínu. Elon Musk, auðugasti maður heims og forstjóri SpaceX, sem rekur Starlink, mun hafa látið setja þessar takmarkanir á. Sjá einnig: Musk segi ósatt um Starlink Selenskí hefur sagst tilbúinn til að hætta árásum á rússneskar olíuvinnslur. Rússar þurfi þó að hætta árásum á úkraínsk orkuver og spennustöðvar, sem Rússar hafa markvisst verið að ráðast á fyrir komandi vetur. Það hafa Rússar ekki viljað samþykkja. Eftir að Trump ákvað upp á sitt eindæmi að lýsa yfir orkuvopnahléi og laug því að bæði Rússar og Úkraínumenn hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars, hættu Úkraínumenn árásum sínum í nokkra daga. Það gerðu Rússar ekki. Sjá einnig: „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Evrópskir bakhjarlar Úkraínu höfðu í kjölfarið hvatt Selenskí til að draga úr árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi, þar til eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku, samkvæmt frétt Wall Street Journal.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Donald Trump Vladimír Pútín Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira