Ákæra Comey enn eina ferðina Samúel Karl Ólason skrifar 27. október 2026 10:23 James Comey á þingnefndarfundi árið 2017. AP/Alex Brandon James Comey, fyrrverandi yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), hefur verið ákærður. Að þessu sinni er hann sakaður um að hafa lekið leynilegum upplýsingum fyrir rúmum áratug en þetta er í þriðja sinn sem hann er ákærður síðan Donald Trump varð aftur forseti fyrir tæpum tveimur árum. „
Jæja, þeir eru mættir aftur, enn eina ferðina,“ sagði Comey í myndbandi sem hann birti í gær. „Þetta væri næstum því fyndið ef þetta væri ekki svo gróf misnotkun á dómsmálaráðuneytinu, sem við megum ekki verða ónæm fyrir.“ Comey sagðist ekki hafa brotið af sér og að hann væri ekki hræddur við handbendi Trumps. Hann trúði enn á sjálfstætt réttarkerfi. Lögmenn hans hafa þegar kallað eftir því að málið verði fellt niður, þar sem það sé fyrnt. Saksóknarar segja hins vegar að þeir hafi lagt fram kröfu um að fyrningin gildi ekki og slíkt sé algengt. Þessi nýjasta ákæra, sem sjá má hér, snýr að grein í New York Times frá 2016. Sú grein fjallaði um leynilegan dómsúrskurð um að Yahoo þyrfti að skanna tölvupósta í leit að skilaboðum um mögulega hryðjuverkastarfsemi. Málið var rannsakað af tveimur mismunandi saksóknurum á fyrra kjörtímabili Trumps, samkvæmt AP-fréttaveitunni, en báðir komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til ákæra. Nú segja saksóknarar að Comey hafi skipað starfsmönnum sínum að ræða við blaðamann NYT um mögulega leiðréttingu og þannig hafi hann dreift leynilegum upplýsingum. Hefur kallað eftir ákæru fyrir landráð Trump hefur lengi haft horn í síðu Comeys og hann hefur um árabil verið fyrirlitinn af Trump-liðum. Forsetinn rak Comey árið 2017, þegar FBI var að rannsaka afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 og meinta aðkomu framboðs Trumps að þeim afskiptum. Trump var einnig reiður út í Comey fyrir að rannsaka ekki Hillary Clinton, mótframbjóðanda hans árið 2016, fyrir hina ýmsu glæpi sem Trump hefur sakað hana um og þá sérstaklega notkun hennar á einkavefþjóni fyrir opinbera tölvupósta. Trump hefur eins og frægt er lengi haldið því fram að hún hefði átt að fara í fangelsi vegna þessa. Enn ein ástæða þess að Trump er illa við Comey er að í bók sem sá síðarnefndi gaf út árið 2018, gagnrýndi Comey Trump harðlega. Hann líkti honum við raðlyginn mafíósa. Trump hefur kallað eftir því að Comey verði ákærður fyrir landráð. Starfsmenn dómsmálaráðuneytisins hafa lagt mikið kapp á að ákæra Comey, og aðra sem Trump telur andstæðinga sína eða er illa við, á undanförnum tæpum tveimur árum. Sjá einnig: Keppast við að ákæra Comey Fyrst var Comey ákærður fyrir að hafa logið að þingmönnum árið 2020. Dómari felldi það mál niður þar sem saksóknarinn hafði verið ranglega skipaður í embætti. Svo var hann ákærður fyrir að eiga að hafa hvatt til þess að Trump yrði myrtur með því að birta myndir af skeljum sem búið var að stilla upp svo þær mynduðu „86 47“. Með myndinni skrifaði Comey: „Flottar skeljar í göngutúrnum mínum.“ Það mál var einnig fellt niður en dómsmálaráðuneytið ákærði hann svo aftur og eiga réttarhöldin í því máli að hefjast á næsta ári. Ákæran í nýja málinu var opinberuð í gær, nokkrum klukkustundum eftir að alríkisdómari í New York komst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórnin hefði rekið Maurene Comey, dóttur James, á ólöglegan máta. Hún starfaði sem ríkissaksóknari í New York og hafði komið að réttarhöldunum gegn Jeffrey Epstein, Ghislaine Maxwell og Sean „Diddy“ Combs. Hún var rekin í fyrra og heldur því fram að eina ástæðan fyrir því hafi verið hver faðir hennar væri. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að brottrekstur hennar hefði ekki verið löglegur. Nokkrar umdeildar aðgerðir Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytisins, sem er stýrt af Todd Blanche, fyrrverandi einkalögmanni Trumps, hafa gripið til margra umdeildra aðgerða að undanförnu. Þar á meðal má nefna húsleit hjá Ilhan Omar, þingkonu sem Trump hefur lengi gagnrýnt harðlega og talað um með rasískum og meiðandi hætti. Þá voru tveir fyrrverandi starfsmenn FBI ákærðir vegna gruns um að þeir hefðu ekki gengið nægilega hart fram gegn Hunter Biden, syni Joes Biden, forvera Trumps.
Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira