Erlent

Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Elvis Presley lést þann 16. ágúst árið 1977.
Elvis Presley lést þann 16. ágúst árið 1977. Getty

Eigendur tónlistar Elvis Presley hafa stefnt gervigreindarrisanum Anthropic fyrir að hafa notað lög listamannsins í þjálfun á gervigreindarlíkönum. 

Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru heimsfræg lög á borð við Can't Help Falling in Love og Don't Be Cruel.

„Stefnendur fyrir hönd Elvis höfða þetta mál til að framfylgja þessum einkarétti gagnvart stefnda, sem hefur byggt allt viðskiptalíkan sitt á höfundarréttarbrotum í áður óþekktum mæli,“ skrifar Richard Busch, lögmaðurinn á bak við málsóknina.

Málið var höfðað af dótturfélagi Authentic Brand Groups sem fer að mestu með hugverkarétt Presley, þar á meðal stóran hluta lagasafns hans, vörumerki, og réttinn að nafni hans, ímynd og svipmóti. 

Billboard greindi frá málinu. Þar segir að tónlistarfyrirtæki hafi þegar ítrekað stefnt gervigreindarfyrirtækjum fyrir að stela hugverkum þeirra. Anthropic og önnur gervigreindarfyrirtæki standa þegar frammi fyrir fjölmörgum málsóknum vegna þjálfunarinnar. Þegar gervigreindarmállíkön eru þjálfuð eru þau mötuð af milljónum af fyrirliggjandi verkum, oft á tíðum án þess að hugað sé að höfundarréttinum.

Lögmaðurinn Busch er reyndur þegar kemur að höfundarrétti tónverka en hann var meðal annars lögmaður dánarbús Marvins Gaye. Þá vann hann umdeilt höfundarréttarmál sem höfðað var gegn Robin Thicke og Pharrell Williams um að lag þeirra „Blurred lines“ bryti gegn laginu „Got to Give It Up“ eftir Gaye.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×