Erlent

Nóg sé komið af Trump

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, beindi spjótum sínum að Donald Trump Bandaríkjaforseta á fundi til stuðnings frambjóðendum Demókrata í komandi þingkosningum.
Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, beindi spjótum sínum að Donald Trump Bandaríkjaforseta á fundi til stuðnings frambjóðendum Demókrata í komandi þingkosningum. AP

Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi núverandi Bandaríkjaforseta harðlega á kosningafundi í Ohio í gær í aðdraganda þingkosninga. Donald Trump gæti engum kennt nema sjálfum sér um hátt verðlag og nú væri nóg komið.

„Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““ sagði Obama í gær en hann ávarpaði kjósendur Demókrata í Cleveland í Ohio-ríki á laugardaginn.

Hann hefði samúð með kjósendum sem höfðu hafnað Demókrataflokknum í forsetakosningum 2024 vegna áhyggna sinna af efnahagi Bandaríkjanna í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Trump gæti þó engum kennt nema sjálfum sér vegna hækkandi verðlags.

Obama gagnrýndi Trump fyrir stríðsrekstur sinn í Íran og sagði að átökin hefðu fært Írönum „neitunarvald“ yfir Hormússundi.

Trump hefur sætt gagnrýni vegna hækkandi eldsneytisverðs. Hann hefur á undanförnum vikum lagt mikla áherslu á að kenna árásum Úkraínumanna á rússneska orkuvinnsluinnviði um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum og um heiminn allan. 

Sérfræðingar í þeim málum eru þó sammála um að stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í háu eldsneytisverði í heiminum en árásir Úkraínumanna.

Þingkosningar vestanhafs fara fram þann 3. nóvember næstkomandi og munu þær ráða því hver fer með vald á Bandaríkjaþingi það sem eftir er kjörtímabils Trumps. Kannanir benda til þess að hátt verðlag muni koma sérstaklega mikið niður á Repúblikönum.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er þegar hafin og Trump greiddi atkvæði í gær í Flórída ásamt eiginkonu sinni, forsetafrúnni Melaniu Trump.


Tengdar fréttir

Styður Repúblikana með tugum milljarða

Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði.

Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demókrata

Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×