Innlent

Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm

Birgir Olgeirsson skrifar
Rauði klukkuturninn fær aftur stað við mathöllina á Hlemmi. Hönnun klukkuverksins stendur enn yfir.
Rauði klukkuturninn fær aftur stað við mathöllina á Hlemmi. Hönnun klukkuverksins stendur enn yfir. Reykjavík

Klukkuturninn sem áður stóð við strætóbiðstöðina á Hlemmi verður settur upp á ný. Við mathöllina verður aðstaða fyrir töskugeymslu og Norðurpólnum verður að hluta sökkt niður til að bæta aðgengi.

Þetta kemur fram í nýrri kynningu á framkvæmdum og hönnun Hlemms sem lögð var fyrir umhverfis- og skipulagsráð á miðvikudag. Reykjavíkurborg hefur nú birt myndir af fyrirhuguðu útliti svæðisins.

Klukkuverkið enn í hönnun

Verkhönnun vesturhluta Hlemms er lokið og útboðsgögn eru í vinnslu. Þar er meðal annars gert ráð fyrir endurkomu klukkuturnsins, en hönnun klukkuverksins er enn ólokið verkefni.

Aðstaða fyrir sorp mathallarinnar verður bætt og komið fyrir töskugeymslu. Þá verður gróðri og setaðstöðu komið fyrir við húsið.

Norðurpóll lækkaður til að komast hjá römpum

Nánari útfærsla á svæðinu við Norðurpól felur í sér að húsinu verður að hluta sökkt niður. Þannig á að uppfylla aðgengiskröfur og komast hjá óþörfum römpum á torginu. Fyrir framan húsið verður aðstaða fyrir útiveitingar.

Norðurpóll er fyrir miðju, sviðsgrind vinstra megin og leikhöllin hægra megin. Fyrir framan húsið verður rými fyrir útiveitingar.Reykjavík

Leikhöllin verður austan við Norðurpól. Grunnurinn er kominn og leiktækin eru á leið til landsins. Inni í stálgrindinni verða meðal annars gular rennibrautir og leiksvæði fyrir yngstu börnin á jarðhæð.

Grindverk verður milli leikhallar og Norðurpóls til að gæta öryggis barna, enda mun Borgarlínan liggja meðfram byggingunum.

Leikhöllin verður með gulum leiktækjum og rennibrautum innan stálgrindar. Möskvanet verður í römmunum utan um leiksvæðið.

Áætlað er að framkvæmdum við rýmið umhverfis leikhöllina og við Þverholt ljúki fyrir komandi áramót, samkvæmt kynningunni.

Tölvugerð yfirlitsmynd sýnir fjölmenni á torginu. Stór hópur stendur framan við bláu sviðsgrindina, leikhöllin er vinstra megin og mathöllin hægra megin.Reykjavík

Á torginu verður einnig svið fyrir viðburði og uppákomur.

Hjólahús við Gasstöðina

Við Gasstöðina á Rauðarárstíg verður hjólahús. Byggingin verður einnar hæðar skýli með hjólastæðum á tveimur hæðum innandyra.

Borgin hyggst kanna áhuga mögulegra rekstraraðila á húsinu.

Gasstöðin sést fyrir miðri mynd og fyrirhugað hjólahús hægra megin. Myndin sýnir einnig göngu- og hjólaleiðir um svæðið.Reykjavík

Stálklætt mannvirki á torginu

Á torginu verður einnig reist mannvirki fyrir stjórnbúnað lagna og snjóbræðslu. Það verður með áferð úr póleruðu stáli og á kynningarmynd sést hvernig lýsing og setaðstaða verða hluti af umhverfi þess.

Stálklætt mannvirkið mun hýsa stjórnbúnað fyrir lagnir og snjóbræðslu. Setbekkur liggur meðfram því og lýsing endurkastast af yfirborðinu.

Norðurhlutinn tilbúinn í lok næsta árs

Framkvæmdir við norðurhluta Hlemms og aðstöðu fyrir Borgarlínu eiga að hefjast á næstu dögum. Samið hefur verið við Gröfu og grjót um verkið og áætlað er að þessum áfanga ljúki í lok árs 2027.

Þar verða stöðvar og sérrými fyrir almenningssamgöngur ásamt endurgerðu torgsvæði. Samhliða verða lagnir endurnýjaðar og gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu endurgerð.

Fyrirhugaðar Borgarlínustöðvar norðan við mathöllina. Myndin sýnir biðsvæði, gönguleiðir, hjólastæði og gróður ásamt klukkuturninum við mathöllina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×