Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2026 09:02 Starfsmaður hefur fengið áverka í 55 skráðum atvikum í grunnskólum Reykjavíkur frá því í febrúar. Borgin undirbýr nú breytingar á aðgangi að skólunum til að auka öryggi nemenda og starfsfólks. Vísir/Vilhelm Í 55 skráðum atvikum í grunnskólum Reykjavíkur frá því í febrúar hefur starfsmaður fengið einhvers konar áverka. Þrjú atvik hafa leitt til fjarveru frá vinnu. Borgin undirbýr breytingar á aðgangi að skólunum en tímasetning framkvæmda liggur ekki fyrir.
Þetta kemur fram í svörum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Vísis um ofbeldi og hótanir gagnvart starfsfólki grunnskóla. Alls hafa 77 atvik verið skráð frá því miðlæg atvikaskráning hófst í febrúar. Vísir greindi frá því 14. október að einstaklingar eða hópar hefðu komið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, sagði kennara óttast um öryggi sitt og hafa heyrt af skólum þar sem kennslustofum væri læst meðan kennt væri. Atvik við inngrip starfsfólks Í svörum borgarinnar kemur fram að um 15.500 nemendur séu í grunnskólum Reykjavíkur. Áhersla hafi verið lögð á að starfsfólk skrái bæði minni og alvarlegri atvik til að fá sem gleggsta mynd af stöðunni. Sami nemandi geti tengst fleiri en einu atviki og sum börn séu í sértæku úrræði vegna hegðunarfrávika. „Atvik geta meðal annars komið upp þegar starfsfólk þarf að grípa inn í aðstæður þar sem barn er í miklu uppnámi,“ segir í svarinu. Ásetningur er ekki skráður sérstaklega í kerfinu. Sviðið segir lýsingar á aðstæðum og atburðarás sýna að í mörgum tilvikum grípi starfsfólk inn í til að róa barn eða ungmenni í uppnámi eða koma í veg fyrir að aðstæður þróist frekar. Í fyrri svörum sviðsins kom fram að sambærileg gögn fyrir árin 2024 og 2025 lægju ekki fyrir. Því væri ekki hægt að meta út frá skráningunum hvort atvikum hefði fjölgað eða þau orðið alvarlegri. Lögregla kölluð til vegna óviðkomandi aðila Lögregla hefur verið kölluð til í einu skráðu tilviki frá því í febrúar. Það var á haustmánuðum eftir að óviðkomandi aðilar komu inn í grunnskóla. „Starfsfólk brást við aðstæðum og kom í veg fyrir að þær þróuðust frekar,“ segir í svarinu. Borgin veitir ekki nánari upplýsingar um atvikið eða hvaða skóli átti í hlut með vísan til persónuverndar og öryggis. Gestir fari um skilgreindan aðalinngang Borgin vinnur nú að verkefninu „Einn inngangur“. Þar er horft til þess að foreldrar og aðrir gestir komi inn um skilgreindan aðalinngang, láti vita af komu sinni og erindi og fái þaðan aðgang að þeim svæðum sem þeir þurfa að fara á. Meðal hugmynda eru vel merktur aðalinngangur, skýrar leiðbeiningar og móttaka við eða sem næst innganginum. Móttakan verði mönnuð eða vöktuð og aðgangi gesta að öðrum svæðum skólans stýrt þaðan. Þar sem móttaka er ekki til staðar eða ómönnuð er horft til búnaðar sem gerir gestum kleift að hafa samband við skrifstofu. Jafnframt verði hægt að sjá hver óskar eftir aðgangi áður en viðkomandi er hleypt inn. Þarfagreiningu ljúki snemma á næsta ári Stefnt er að því að þarfagreiningu ljúki snemma árs 2027. Hún verði grunnur að frekara kostnaðarmati og ákvörðunum um næstu skref. „Tímasetning framkvæmda liggur því ekki fyrir á þessu stigi,“ segir í svarinu. Aðgangi er þegar stýrt með einhverjum hætti í hluta grunnskólanna en borgin hefur ekki heildaryfirlit yfir fyrirkomulagið. Ekki liggur heldur fyrir samantekin tala um hversu margir skólastjórar hafi óskað eftir aðgangsstýringu eða öðrum öryggisúrbótum. Samtal við skólastjórnendur stendur yfir og segir sviðið almennt hafa komið fram jákvæða afstöðu til markvissari aðgangsstýringar. Vísir hefur einnig fjallað um óskir skólastjóra í Hafnarfirði um að takmarka aðgang að skólum. Þeir hafa kallað eftir fjármagni til meðal annars aðgangsstýringa og mynddyrasíma eftir öryggisúttekt á skólabyggingum bæjarins.
Skóla- og menntamál Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Reykjavík Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Sjá meira