Skoðun

Náms­mat í 10. bekk skóla­árið 2026-2027

Gauti Eiríksson skrifar

Ég hef kennt raungreinar á unglingastigi grunnskóla í 25 ár og er foreldri barns sem er í 10. bekk í vetur.

Í grunninn er þetta ekki spurning um hvaða kvarða við notum í námsmati og geri ég engar athugasemdir við að taka upp talnakvarða í sjálfu sér. Þetta er meira spurning um að matið sé faglegt og það liggi ljóst fyrir í upphafi vetrar hvernig þessu er háttað. Einnig þarf matið að vera í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla. Hvorugt þessa á við í vetur. Það er verið að breyta kvarðanum á miðju skólaári og kennarar, nemendur og foreldrar vita ekki alveg hvernig þetta endar. Þar að auki er verið að leggja mikla vinnu á kennara sem er líklega bara til þess að nota í vetur. Tilgangur þessa er alls ekki ljós og ávinningurinn er enginn.

Börn fædd árið 2011 eru stærstu fórnarlömbin í þessu því það er stutt í að skólaárið sé að verða hálfnað og ekki alveg ljóst hvernig þessu verður háttað. Matskvarðinn eins og hann lítur út núna er mjög óljós sér í lagi þegar kemur að einkunnunum 9 og 10.

Það virðist vera þannig að okkur sé ætlað að vinna með tvo talnakvarða þar sem við gefum hlutfallseinkunn annars vegar og hæfnimiðaða einkunn hins vegar. Eins og oft hefur komið fram þá þýða tölurnar á þessum tveimur kvörðum ekki það sama. Hvaða skilaboð erum við þá að senda nemendum og foreldrum?

Það á að vera markmið með þessu að auka samræmi einkunna en ég get ekki með nokkru móti séð að þessi breyting ein og sér geri nokkuð í því markmiði.

Ég legg því til að þessari tilraunastarfsemi verði hætt nú þegar og málið unnið frá grunni með því að endurskoða námskrána fyrst og byggja námsmatið á þeirri námskrá en ekki öfugt.

Að gera þetta eins og við erum að gera núna er eins og spila íþróttaleik en það er stöðugt verið að breyta reglunum og hvernig stig eru talin. Hver er til í að keppa á þeim grundvelli?

Þetta er samt ekki leikur heldur er verið að framkvæma tilraunastarfsemi á námi og framtíð barna sem fædd eru árið 2011.

Höfundur er grunnskólakennari og foreldri.




Skoðun

Sjá meira


×