Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Agnar Már Másson skrifar 20. október 2026 20:15 Mennirnir eru úkraínskir ríkisborgarar en tala rússnesku að móðurmáli. Þeir eru 18 og 21 árs. Mynd/AFP Tveir ungir menn í Álaborg í Danmörku hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að njósna um danskt varnarmálafyrirtæki í þágu rússneskra stjórnvalda. Lögregla leitar enn að þriðja manninum.
Saksóknarayfirvöld í Danmörku hafa gefið út að mennirnir tveir hafi í gær tekið myndir af höfuðstöðvum varnarmálafyrirtækisins MyDefence á Norður-Jótlandi og síðan miðlað þeim áfram til notanda á Telegram. Saksóknari telur að ljósmyndirnar hafi verið ætlaðar rússnesku leyniþjónustunni og að rússnesk stjórnvöld tengist þannig málinu. Dómstóll í Álaborg úrskurðaði í kvöld mennina tvo, sem eru 18 ára og 21 árs, í þriggja daga gæsluvarðhald. Þeir neituðu sök fyrir dómi, að sögn TV2. Danska ríkisútvarpið segir að þriðji maður gangi enn laus. Rasmus Amandusson, verjandi 21 árs mannsins, segir við TV2 að sakborningarnir séu báðir úkraínskir ríkisborgarar en að þeir hafi talað rússnesku fyrir dómi í dag. Hann sagði að ásakanirnar væru alvarlegar. Um 10 til 15 prósent Úkraínumanna tala rússnesku að móðurmáli, aðallega í austurhluta landsins. „Það er sjaldgæft að svona gerist. Því er mikilvægt að málið verði rannsakað svo að við vitum hvort það sé eitthvað í þessu máli,“ segir verjandinn. Nicolai Wammen, dómsmálaráðherra Dana, segir við miðilinn að ógn frá rússneskum stjórnvöldum hafi aukist í Evrópu undanfarin ár. Hann líti málið alvarlegum augum. „Það er þess vegna mikilvægt að ekki nokkur Dani verði að nytsamlegu fífli eða styðji með nokkrum hætti við vinnu rússnesku leyniþjónustunnar í þessu landi,“ segir Wammen við TV2. MyDefence er tæknifyrirtæki á sviði varnarmála sem sérhæfir sig í útvarpsbylgjutækni og drónavörnum. Félagið hefur ekki tjáð sig um málið. Í byrjun september sagði Emil Græsholm, yfirmaður hjá leyniþjónustu dönsku lögreglunnar (PET), við Berlingske að danska leyniþjónustan hefði komið upp um meint áform rússneskra stjórnvalda um að vinna skemmdarverk á dönskum varnarmálafyrirtækjum. Hann sagði Rússa setja sig í samband við danska ríkisborgara – til dæmis í gegnum Telegram, tölvuleiki eða aðra samfélagsmiðla – og síðan fá þá til að sinna því sem virtust „saklaus“ verkefni, eins og að taka myndir af fyrirtækjum.
Danmörk Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira