Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Kjartan Kjartansson skrifar 20. október 2026 09:48 Mynd sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, (t.v.) birti í tengslum við óeirðirnar í Frakkland virðist í raun frá Svíþjóð. Vísir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir óheftan straum innflytjenda, sérstaklega múslima, „valda skaða“. Ummælin lét hann falla í tengslum við mótmæla- og óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland.
Óeirðir blossuðu upp í Frakklandi um helgina þar sem óeirðaseggir fóru ránshendi um verslanir og lögðu eld að byggingum og bílum. Þær komu í kjölfar þriggja vikna af mótmælum sem hófust hjá námsmönnum sem andæfðu fjársvelti í menntakerfinu. Verkalýðsfélög slógust síðan í för með námsmönnum og mótmæltu dýrtíð og niðurskurði stjórnvalda. Atburðirnir hafa verið vatn á myllu fjarhægriflokka í Evrópu sem hafa stimplað mótmælin sem kynþáttaóeirðir innflytjenda. Fylgismenn þeirra hafa meðal annars deilt gervigreindarfölsuðum myndum sem eiga að sýna innflytjendur með skrílslæti. Einnig hefur myndum af innflytjendum verið deilt í samhengi við atburðina í Frakklandi sem tengjast þeim þó ekki á nokkurn hátt. Elliði deildi þannig mynd af hópi karlmanna sem virðist af arabískum eða afrískum uppruna með orðunum „Hér má sjá nemendafélag framhalsskóla [svo] í Frakklandi kalla eftir betri aðstöðu í skólanum sínum, .....eða hvað?“ í færslu á samfélagsmiðli. Skjáskot af færslu Elliða Vignisson. Myndin virðist þó ekki frá Frakklandi heldur Svíþjóð og tengjat ekki óeirðunum um helgina. Myndaleit bendir til þess að myndin hafi birst á sænskum vefmiðli fyrr á þessu ári áður en henni var svo víða deilt á samfélagsmiðlum síðustu daga. Eldur Smári Kristinsson, frambjóðandi Lýðræðisflokksins í síðustu þingkosningum, deildi sömu mynd með orðunum „frönsk skólabörn að mótmæla“ á öðrum samfélagsmiðli í fyrradag. French schoolchildren protesting https://t.co/g9sf1DIjMM— Eldur - The Icelandic Gay Guy (@justgayice) October 18, 2026 Afleiðing af stefnu þjóðkirkjuprests Þegar Bjarni Karlsson, prestur, gagnrýndi Elliða fyrir að að nota gamla mynd frá öðru landi, sagðist Elliði vita að myndin væri ekki frá Frakklandi en beindi ábyrgðinni að Bjarna. Atburðirnir í Frakklandi væri afleiðing stefnu Bjarna og skoðanasystkina hans. „Ég veit að fyrir ykkur vakir ekkert illt en það gerir afleiðingarnar af þessu ekki bærilegri. Óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, er að valda skaða,“ skrifaði bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins. Sakaði Elliði Bjarna og aðra einnig um að hafa útvatnað hugtakið „rasisti“ og notað það um alla sem væru þeim ekki sammála.
Ölfus Innflytjendamál Frakkland Trúmál Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira