Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar 19. október 2026 20:02 Ímyndaðu þér tvo einstaklinga með sömu fötlun og sömu þörf fyrir akstur. Annar fatlast 66 ára og fær akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Hinn fatlast 68 ára og fær ekki sama aðgang að þjónustunni. Munurinn liggur ekki í fötluninni, samgönguhindruninni eða þörfinni. Munurinn er aldurinn. Fólk sem fatlast eftir 67 ára aldur getur lent í því að falla undir þjónustu við aldraða en ekki þjónustu við fatlað fólk hjá sveitarfélögum. Afleiðingin getur orðið sú að einstaklingur með mikla hreyfiskerðingu fær ekki sömu akstursþjónustu og yngri einstaklingur í sambærilegri stöðu. Hvernig getur það talist réttlátt? Í sumum sveitarfélögum er akstur eldra fólks aðeins tengdur dagdvöl eða annarri fyrir fram skilgreindri þjónustu. Stundum er sú þjónusta ekki einu sinni í boði í sveitarfélaginu. Einstaklingurinn á þá að nafninu til möguleika á akstri í þjónustu sem er ekki til staðar. Niðurstaðan er einföld og grimm. Einstaklingurinn situr heima. Fólk kemst ekki í matvöruverslun, til læknis, í endurhæfingu, til fjölskyldu eða í félagsstarf nema með aðstoð ættingja, vina eða leigubíla. Ferðir sem flest okkar telja sjálfsagðar verða að verkefni sem krefst aðstoðar annarra, mikils kostnaðar eða flókins skipulags. Þetta snýst því ekki aðeins um akstur. Þetta snýst um frelsi, sjálfstæði og réttinn til að taka þátt í samfélaginu. Akstursþjónustan Pant í Reykjavík er mikilvægt úrræði en mikill munur er á fargjöldum eftir því undir hvaða þjónustukerfi einstaklingur fellur. Fargjald eldra fólks er 1.690 krónur fyrir hverja ferð en 207 krónur fyrir yngri notendur. Ferð fram og til baka getur því kostað eldri einstakling 3.380 krónur. Þótt einstaklingarnir búi í sömu borg og glími við sambærilegar samgönguhindranir fá þeir þjónustuna á ólíkum kjörum. Íslensk lög banna mismunun vegna aldurs og fötlunar, meðal annars í félagsþjónustu og við aðgang að þjónustu. Mismunandi meðferð vegna aldurs getur aðeins talist réttlætanleg ef hún byggist á málefnalegum rökum, þjónar lögmætu markmiði og gengur ekki lengra en nauðsynlegt er. Aldurinn einn getur því ekki verið fullnægjandi svar. Ef fólk með sambærilega fötlun og sambærilega þjónustuþörf fær ólíka þjónustu verður að vera hægt að skýra hvers vegna. Hvaða lögmæta markmið krefst þess að sá sem fatlast 68 ára fái lakari aðgang en sá sem fatlast 66 ára? Hvers vegna á tímasetning fötlunarinnar að ráða meira en raunveruleg þörf einstaklingsins? Lög um þjónustu við fatlað fólk leggja áherslu á einstaklingsbundnar stuðningsþarfir, sjálfstætt líf og þátttöku til jafns við aðra. Það ættu því að vera fötlunin, samgönguhindrunin og raunveruleg þörf fyrir aðstoð sem ráða niðurstöðunni, ekki fæðingardagurinn. Reykjavíkurborg og öll sveitarfélög á landinu þurfa að tryggja að umsóknir um akstursþjónustu séu metnar með einstaklingsbundnum hætti. Ef áfram verða reknar tvær þjónustuleiðir verða þær að tryggja fólki með sambærilegar þarfir sambærilegan aðgang, raunhæft þjónustuumfang og viðráðanleg kjör. Ráðuneytið sem fer með félagsmál þarf jafnframt að skoða hvort framkvæmd sveitarfélaga samræmist jafnræði, meðalhófi og markmiðum laganna. Sérstaklega hjá minni sveitarfélögum. Ekki er nóg að réttindi séu til á pappír ef fólk kemst ekki út af eigin heimili. Við getum fatlast á morgun. Spurningin er aðeins hvort kerfið telur að það hafi gerst nógu snemma. Fötlun verður ekki léttvægari eftir 67 ára aldur og þörfin fyrir frelsi, sjálfstæði og þátttöku hverfur ekki heldur. Rétturinn til að komast ferða sinna má ekki ráðast af því hvenær á ævinni fólk fatlast. Höfundur er aðstandandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Ímyndaðu þér tvo einstaklinga með sömu fötlun og sömu þörf fyrir akstur. Annar fatlast 66 ára og fær akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Hinn fatlast 68 ára og fær ekki sama aðgang að þjónustunni. Munurinn liggur ekki í fötluninni, samgönguhindruninni eða þörfinni. Munurinn er aldurinn. Fólk sem fatlast eftir 67 ára aldur getur lent í því að falla undir þjónustu við aldraða en ekki þjónustu við fatlað fólk hjá sveitarfélögum. Afleiðingin getur orðið sú að einstaklingur með mikla hreyfiskerðingu fær ekki sömu akstursþjónustu og yngri einstaklingur í sambærilegri stöðu. Hvernig getur það talist réttlátt? Í sumum sveitarfélögum er akstur eldra fólks aðeins tengdur dagdvöl eða annarri fyrir fram skilgreindri þjónustu. Stundum er sú þjónusta ekki einu sinni í boði í sveitarfélaginu. Einstaklingurinn á þá að nafninu til möguleika á akstri í þjónustu sem er ekki til staðar. Niðurstaðan er einföld og grimm. Einstaklingurinn situr heima. Fólk kemst ekki í matvöruverslun, til læknis, í endurhæfingu, til fjölskyldu eða í félagsstarf nema með aðstoð ættingja, vina eða leigubíla. Ferðir sem flest okkar telja sjálfsagðar verða að verkefni sem krefst aðstoðar annarra, mikils kostnaðar eða flókins skipulags. Þetta snýst því ekki aðeins um akstur. Þetta snýst um frelsi, sjálfstæði og réttinn til að taka þátt í samfélaginu. Akstursþjónustan Pant í Reykjavík er mikilvægt úrræði en mikill munur er á fargjöldum eftir því undir hvaða þjónustukerfi einstaklingur fellur. Fargjald eldra fólks er 1.690 krónur fyrir hverja ferð en 207 krónur fyrir yngri notendur. Ferð fram og til baka getur því kostað eldri einstakling 3.380 krónur. Þótt einstaklingarnir búi í sömu borg og glími við sambærilegar samgönguhindranir fá þeir þjónustuna á ólíkum kjörum. Íslensk lög banna mismunun vegna aldurs og fötlunar, meðal annars í félagsþjónustu og við aðgang að þjónustu. Mismunandi meðferð vegna aldurs getur aðeins talist réttlætanleg ef hún byggist á málefnalegum rökum, þjónar lögmætu markmiði og gengur ekki lengra en nauðsynlegt er. Aldurinn einn getur því ekki verið fullnægjandi svar. Ef fólk með sambærilega fötlun og sambærilega þjónustuþörf fær ólíka þjónustu verður að vera hægt að skýra hvers vegna. Hvaða lögmæta markmið krefst þess að sá sem fatlast 68 ára fái lakari aðgang en sá sem fatlast 66 ára? Hvers vegna á tímasetning fötlunarinnar að ráða meira en raunveruleg þörf einstaklingsins? Lög um þjónustu við fatlað fólk leggja áherslu á einstaklingsbundnar stuðningsþarfir, sjálfstætt líf og þátttöku til jafns við aðra. Það ættu því að vera fötlunin, samgönguhindrunin og raunveruleg þörf fyrir aðstoð sem ráða niðurstöðunni, ekki fæðingardagurinn. Reykjavíkurborg og öll sveitarfélög á landinu þurfa að tryggja að umsóknir um akstursþjónustu séu metnar með einstaklingsbundnum hætti. Ef áfram verða reknar tvær þjónustuleiðir verða þær að tryggja fólki með sambærilegar þarfir sambærilegan aðgang, raunhæft þjónustuumfang og viðráðanleg kjör. Ráðuneytið sem fer með félagsmál þarf jafnframt að skoða hvort framkvæmd sveitarfélaga samræmist jafnræði, meðalhófi og markmiðum laganna. Sérstaklega hjá minni sveitarfélögum. Ekki er nóg að réttindi séu til á pappír ef fólk kemst ekki út af eigin heimili. Við getum fatlast á morgun. Spurningin er aðeins hvort kerfið telur að það hafi gerst nógu snemma. Fötlun verður ekki léttvægari eftir 67 ára aldur og þörfin fyrir frelsi, sjálfstæði og þátttöku hverfur ekki heldur. Rétturinn til að komast ferða sinna má ekki ráðast af því hvenær á ævinni fólk fatlast. Höfundur er aðstandandi.
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun