Skoðun

Fokk, ég er með ristilkrabbamein!

Matthías Freyr Matthíasson skrifar

Ég er 46 ára gamall. Hef verið almennt séð frekar heilsuhraustur þótt lítið hafi farið fyrir því að ég hafi sett líkamlega heilsu eitthvað í fyrsta sætið, því ég hef verið frekar heppinn af náttúrunnar hendi með það að vera frekar grannvaxinn allt mitt líf. Ekki það að sé merki um góða líkamlega heilsu, alls ekki.

En það var frekar mikið þungt högg í magann í Apríl síðastliðnum, eftir nokkurra vikna/mánaða vesen með reglulegum miklum kviðverkjum og læknaheimsóknum, að fá símtal þar sem mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein. Óhætt að segja að vinnudagurinn hafi tekið snöggan og óvæntan endi.

Mér var tilkynnt að ég væri heppinn því væri svo ungur. Þetta væri venjulega sjúkdómur sem eldri einstaklingar þurfa að glíma við. Mér fannst það lítil huggun á þeim tímapunkti í ferlinu. Hlutirnir urðu síðan bara enn leiðinlegri þegar kom í ljós eftir frekari rannsóknir að krabbameinið væri búið að dreifa sér í lifur.

Það er óvægnlegt að standa frammi fyrir gjörbreyttum veruleika allt í einu og hugsanir sem undir venjulegum kringustæðum koma ekki upp, líkt og hugrenningar um framtíðina, hve langa framtíð, hvernig verða næstu vikur, mánuðir, ár. Hvað með andlegu hliðina, hvað með vinina og hvað með fjölskylduna. En síðan líka, jæja ok fokk it. Þetta er staðan og ég mun gera allt sem er í mínu valdi til að berjast og sigra þetta og legg allt mitt traust á okkar færu lækna og læknavísindin.

Sumarið sem leið var undirlagt undir tvær aðgerðir og aðlögun eftir það ásamt því að njóta hvers dags með fólkinu mínu og svo öllu því fólki, samfélagi, sem ég hef kynnst í gegnum árin sem umkringdu mig með hughreystandi skilaboðum, knúsi og allskonar öðrum hætti sem ég get ekki þakkað nóg fyrir. Aðgerðir gengu vel en það kom samt bakslag er ný meinvörp fundust í lifrinni og var því fyrirhuguð lyfjameðferð breytt og gerð ,,aggresívari“ og er sú meðferð í gangi þegar þetta er ritað.

En afhverju er ég að skrifa þetta og opna mig svona?

Staðan er sú, líkt og mér var tilkynnt, að ég er ungur að greinast með ristilkrabbamein. En það breytir þeirri staðreynd ekki ég hef heyrt af mun fleiri tilvikum en ég hefði viljað, af karlmönnum sem eru á svipuðum aldri og ég og yngri, töluvert yngri, sem hafa greinst með þetta sama mein á síðustu mánuðum og árum.

Ég hef það á tilfinningunni að karlmenn séu feimnari við að tjá sig um veikindi og sækja sér sjaldnar jafningastuðning. Fyrir utan það stuðning sem ég minntist hér á að ofan frá fjölskyldu og vinum og samfélaginu, hefur jafningastuðningurinn verið mér hvað mikilvægastur í þessu ferli. Jafningastuðningurinn er í boði meðal annars í Ljósinu sem er einstakur staður og gerir svo miklu

meira en ég held að fólk sé meðvitað um fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Svo ekki sé minnst á Kraft, stuðningsfélag ungs fólks með Krabbamein. Ég sæki mér jafningstuðning á þessa staði því það er svo gott að hitta einstaklinga sem hafa gengið í gegnum eða eru að ganga í gegnum svipaða hluti og maður sjálfur, til að spegla, til að gleðjast og til að fræðast og styrkja hvert annað. Þvi get ég ekki annað en mælt með að krabbameinsgreindir kynni sér þessi úrræði. Komdu og fáðu stuðning og ef þú getur, veittu stuðning til baka. En fyrsta skrefið er að koma.

Lífið er núna!

Höfundur er með margvíslega menntun og er krabbameinsgreindur. 




Skoðun

Sjá meira


×