Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar 17. október 2026 11:00 Samfélag okkar gerir fáránlegar kröfur til karlmanna. Þeir eiga að vera sterkir, en ekki of sterkir, karlmannlegir, en ekki of karlmannlegir, viðkvæmir, en ekki veikgeðja. Þeir eiga að sýna konum áhuga, en helst án þess að horfa á þær. Umfram allt er þeim harðbannað að segja eitt einasta orð sem gæti mögulega sært tilfinningar einhverrar konu einhvers staðar. Bandaríski grínistinn Shane Gillis gerði nýlega þau mistök að segja brandara um klæðaburð kvenna í líkamsræktarstöðvum. Hann lýsti því hvernig sumar konur mæta til æfinga í svo þröngum og efnislitlum fatnaði að lítið er eftir fyrir ímyndunaraflið. En auðvitað mega karlmenn ekki horfa. Gillis er grínisti, ekki siðapostuli. Hann gerði einfaldlega grín að fyrirbæri sem margir kannast við. Engu að síður var hann sakaður um kvenfyrirlitningu og því jafnvel haldið fram að slíkir brandarar stuðluðu að „menningu kynferðislegs ofbeldis“ gegn konum. Viðbrögðin eru lýsandi fyrir sérkennilega hugmyndafræði okkar tíma: Konur eiga að mega sýna sig, ögra, vekja athygli og jafnvel hneyksla, en aðrir mega helst ekki hafa skoðanir á því sem þær gera. Þegar kona ákveður að sýna líkama sinn opinberlega, lætur taka af sér myndir og birtir þær á samfélagsmiðlum, eru aðeins ákveðin viðbrögð leyfileg. Það má dást að henni, hrósa henni og kalla hana hugrakka, sjálfsörugga og valdeflda, en gagnrýni á framkomuna eða klæðaburðinn er afgreidd sem kvenfyrirlitning. Það er leyfilegt að vekja athygli, en ekki að gera athugasemdir við það hvernig athyglin er vakin. Þau okkar sem ekki eru blind taka eftir útliti annarra, hvernig fólk klæðir sig og hvernig það kemur fram. Karlmönnum er kennt að sýna tillitssemi í klæðaburði, framkomu og samskiptum, lesa aðstæður, virða félagsleg mörk og skilja að ekki er allt viðeigandi alls staðar. Hvers vegna á annað að gilda um konur? Annað rannsóknarefni út af fyrir sig er hvernig fjölmiðlar fjalla um svokallaða valdeflingu kvenna. Hvenær varð það sérstakt afrek að vekja athygli með því að ögra og (jafnvel) hneyksla og hvers vegna er fjallað um slíka sjálfsframsetningu eins og slík framkoma sé merki um hugrekki, sjálfstæði eða samfélagslegar framfarir? Þegar karlmaður sýnir af sér athyglissýki er auðvelt að gera hann að athlægi, en þegar konur gera það sama verður að finna hátíðlegra orð yfir fyrirbærið: Sjálfsást. Valdefling. Hugrekki. List. Hljómar miklu virðulegra en athyglissýki.Fjölmiðlar taka þátt í þessum orðaleik. Fáklædd kona er ekki einfaldlega fáklædd heldur „djörf“. Ögrandi framkoma er ekki bara ögrandi heldur „valdeflandi“. Og þegar kona afklæðist fyrir framan myndavél er það allt í einu orðið að listrænni yfirlýsingu um sjálfstæði hennar. Grein Vísis um Unni Borg er ágætt dæmi. Hún segist stolt af því að hafa setið fyrir nakin. „Ég er svo stolt af mér að hafa gert þetta. Ég er meistari,“ segir hún og útskýrir að þetta sé fyrst og fremst list, þótt hún viðurkenni jafnframt að þetta sé „easy money.“ List, tíska, narsissismi og auðfengnir peningar. Allt í einum pakka. Það er ekkert nýtt að fólk fái greitt fyrir að sýna líkama sinn. En í umfjöllun fjölmiðla hefur exhibitionismi breyst í einhvers konar hetjudáð, sjálfstæðisyfirlýsingu og framlag til framfara kvenna. Hvað nákvæmlega er svona hugrakkt við að sitja fyrir nakin og hvers vegna þarf að gefa því sérstakt hugmyndafræðilegt gildi þegar ung kona gerir það? Það er fínt að vera ung, djörf og óhrædd við að ögra. En frelsinu til að ögra fylgir líka frelsi annarra til að láta í ljós skoðanir sínar á ögruninni. Unnur segir að „fullorðið fólk sé svo fáránlega leiðinlegt.“ Það er skondið viðhorf hjá ungri konu sem vill sjálf fá að vera nákvæmlega eins og henni sýnist, en virðist ekki hafa mikla þolinmæði gagnvart skoðunum þeirra sem eldri eru. Kannski mun hún síðar uppgötva að fullorðið fólk hefur líka verið ungt. Það hefur meira að segja lifað nógu lengi til að átta sig á því að ekki er allt sem vekur athygli merkilegt og ekki allt sem gefur peninga er eftirsóknarvert. Sú hugmynd að samfélagið eigi að hætta að gera til kvenna sömu kröfur og til karlmanna á meðan þær njóta allra réttinda – og forréttinda – er ein fáránlegasta birtingarmynd nútímafemínisma og er þó af nógu að taka. Jafnrétti felst ekki í því að konur fái öll réttindi, jafnvel sérstök forréttindi, en séu síðan undanþegnar gagnrýni og ábyrgð á eigin ákvörðunum. Það felst heldur ekki í því að gera minni kröfur til kvenna en karla og kalla það framfarir. Unnur segir frá viðbrögðum föður síns: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu.“ Kannski er faðir hennar ósammála þeirri hugmynd að allt sem hægt er að gera fyrir peninga sé eitthvað til að vera stoltur af. Kannski er hann einn af þessu „fáránlega leiðinlega fullorðna fólki“ sem gerir greinarmun á því að vekja athygli og því að eiga hana skilið. Höfundur er fjölmiðlafræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun