Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar 17. október 2026 07:32 Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni. Gróska á umbrotatímum Frá stofnun Landssamtakanna Þroskahjálpar fyrir fimmtíu árum var það eitt af baráttumálum samtakanna að þjónusta við fatlað fólk væri nærþjónusta á ábyrgð þess sveitarfélags þar sem fólk var búsett í samræmi við það sem almennt gerðist í samfélaginu. Árið 2011 varð þetta baráttumál samtakanna að veruleika, ábyrgðin á framkvæmd félagsþjónustu við fatlað fólk fluttist frá ríki til sveitarfélaganna. Breytingin átti sér langan aðdraganda en í kjölfar efnahagshrunsins 2008 komst skriður á umræðuna. Í tengslum við efnahagslegar þrengingar þjóðarinnar beindust sjónir okkar sem störfuðum hjá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks og einnig leiðandi stjórnmálamanna að því hvernig best mætti tryggja þjónustu við fatlaða einstaklinga til framtíðar. Á sama tíma var mikil umræða um mannréttindi fatlaðs fólks og hugmyndafræðina um sjálfstætt líf sem byggir á því að fatlaðir einstaklingar skuli ráða eigin lífi og njóta þjónustu í samræmi við þarfir sínar og óskir. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafði verið undirritaður árið 2007 og Landssamtökin Þroskahjálp lögðu mikla áherslu á að öll þjónusta tæki mið af ákvæðum og anda samningsins. Mikil gróska var í umræðu um málefni fatlaðs fólks og lag til breytinga. Nærþjónusta og samskipan Landssamtökin Þroskahjálp lögðu áherslu á að eðlilegt væri að sveitarfélög landsins tækju ábyrgð á framkvæmd þeirrar sértæku félagsþjónustu sem fatlað fólk þyrfti vegna fötlunar sinnar þannig að öll sú félagsþjónusta sem fólk þarfnaðist væri á hendi eins aðila. Samtökin töldu gæði þjónustu betur borgið í nærþjónustu samfélagsins og þannig væri samskipan betur tryggð. Samtökin tóku virkan þátt í undirbúningi þessara breytinga í samstarfi við ríkið og fulltrúa sveitarfélaganna. Þau lögðu til ákveðið verklag við yfirfærsluna sem fól í sér þriggja ára aðlögunarferli með faglegri og fjárhagslegri endurskoðun í lok tímabilsins. Yfirfærsla þjónustunnar kom til framkvæmda í janúar 2011. Við yfirfærsluna var þáverandi fjármagn varðveitt í þjónustunni, það síðan tryggt í gegnum útsvarstekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna og því dreift í samræmi við þjónustuþarfir. Bættur hagur samfélagsins næstu árin leiddi til þess að fjármagn til þjónustunnar jókst og hefur síðan verið endurskoðað í samræmi við aukin verkefni. Réttarbætur og þróun þjónustu Í tengslum við yfirfærsluna voru sett ákvæði og síðan lög um réttindagæslu við fatlað fólk sem voru mikil réttarbót. Má þar nefna lög um persónulega talsmenn, réttindagæslumenn og bann við beitingu nauðungar. Þá voru sett ákvæði um þróun Notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og tryggt fjármagn til slíkrar þjónustu. Ábyrgð á atvinnumálum fatlaðs fólks var flutt yfir til Vinnumálastofnunar. Fjármagn var sett í að fækka fólki á biðlistum eftir þjónustu. Fljótlega varð ljóst að þjónustan sem sveitarfélögin tóku að sér að sinna hafði verið vanfjármögnuð og því reyndist vel að við framkvæmd yfirfærslunnar var gert ráð fyrir þriggja ára aðlögunartímabili og síðan endurskoðun í lok árs 2014 sem leiddi til frekari aukningar fjármagns inn í þjónustuna. Á þessum árum var mikil umræða um nýja þjónustuþætti sem nauðsynlegir væru í nútíma samfélagi en áttu sér ekki samastað í eldri lögum um þá þjónustu sem ríkinu bæri að sinna. Má þar nefna frítímatilboð eftir skóla fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10-20 ára sem foreldrar fatlaðra barna og ungmenna höfðu barist fyrir, þjónusta sem okkur þykir í dag vera sjálfsögð en var það ekki fyrir 15 árum. Við flutninginn til sveitarfélaga landsins þróaðist þessi þjónusta eins og önnur frítímaþjónusta fyrir ófötluð börn og þykir nú sjálfsögð. Við yfirfærsluna varð sú augljósa réttarbót að veiting þjónustu og eftirlit með henni var aðskilið. Í tengslum við yfirfærsluna varð því ekki einungis þjónusta við fatlað fólk nærþjónusta eins og önnur félagsþjónusta við íbúa landsins og því aukin samskipan með öllum þeim verðmætum sem í því fylgir, heldur náðust fram margvíslegar réttarbætur og gæðamál sem urðu til góðs fyrir þá sem þjónustunnar nutu. Frumkvæði til farsældar Landssamtökin Þroskahjálp tóku frumkvæði og voru mjög virk í þróun þeirrar umræðu og tillagna sem síðar urðu að veruleika í samfélagi okkar við yfirfærsluna. Samtökin lögðu mikla áherslu á að vinna að góðum viðhorfum í samfélaginu, að fatlað fólk tæki virkan þátt í umræðu um eigin mál og nyti virðingar. Þá var grundvallaratriði í umræðunni réttur hins fatlaða einstaklings til sjálfstæðs lífs og þjónustu í samræmi við eigin þarfir og óskir. Réttur til slíkrar þjónustu var að sönnu tryggður í lögum en var ekki auðsóttur í raunveruleikanum. Það er bjargföst skoðun mín að sú ákvörðun að fela sveitarfélögum landsins ábyrgð á framkvæmd sértækrar félagsþjónustu við fatlað fólk árið 2011 hafi verið farsælt skref fyrir okkur öll sem samfélag. Það hafa þó verið ýmsir hnökrar á þjónustu sveitarfélaganna og stundum óttast ég bakslag tengt viðhorfum og hugmyndafræði í þjónustunni, og vegna skorts á fagþekkingu og fjármunum. Það stendur þó óhaggað að fatlað fólk er í dag mun sýnilegra í samfélaginu, nýtur meiri virðingar og viðhorfin hafa breyst mikið. Þjónustan hefur þróast og batnað á þessum árum þó víða megi gera betur. Málefni fatlaðs fólks eru í dag málefni okkar allra sem byggjum sveitarfélög landsins, breyting sem skiptir sköpum. Landssamtökin Þroskahjálp hafa á fimmtíu ára vegferð sinni haft gríðarlega mikil áhrif á stöðu og líf fatlaðs fólks, ekki síst fólks með þroskahömlun sem í reynd er einn viðkvæmasti hópur hvers samfélags. Það er þakklátt hlutskipti að hafa fengið að taka þátt í að móta og breyta samfélagi til betri vegar, það hafa Landssamtökin Þroskahjálp sannarlega gert með baráttu sinni. Höfundur er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar 2005-2013. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Tímamót Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun