Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar 19. október 2026 18:02 Fjárlagafrumvarp næsta árs hefur nú verið lagt fram. Þar er að finna miklar skattahækkanir á ferðaþjónustu. Til stendur að hækka virðisaukaskatt á baðlón sem hækkar verð í baðlón um 11,7% fari það beint út í verðlagið, sett verður á nýtt náttúru- og innviðagjald sem hækkar dagsferðir um Gullna hringinn um allt að 37,5% og svo á að hækka kílómetragjald um 15,9%. Þessum sköttum ásamt hækkun olíuverðs, gríðarlega háu vaxtastigi og launahækkunum þurfum við sem störfum í ferðaþjónustu að koma út í verðlagið til okkar viðskiptavina. Á sama tíma hefur íslenska krónan verið að styrkjast gagnvart evru sem hækkar enn frekar kostnað ferðamanna við Íslandsferðina. Þá er ótalið hversu flókið innviðagjaldið verður í framkvæmd, þar sem gjaldtakan nær aðeins til afmarkaðra svæða, bílastæðagjöld eru innheimt sums staðar en ekki annars staðar og eftirlitsmenn eiga að elta ferðamenn til að innheimta gjaldið. Við öll þekkjum það að hvort sem við erum að kaupa okkur bíl, heimili, endurnýja stofuna eða að fara í frí þá setjum við okkur ramma um hvað við ætlum að eyða miklum fjármunum. Flest erum við farin að nýta gervigreindina til að aðstoða okkur við hinar ýmsu ákvarðanir og ef maður spyr hana t.d. að því hvert hún mælir með því að maður fari til að njóta náttúru og norðurljósa þá erum við oftast listuð á eftir Finnlandi og Noregi. Kostnaður við Íslandsferð hefur hækkað í evrum um 15% frá síðasta ári ef maður skoðar verðþróun á flugi, gistingu, olíuverði og öðrum kostnaði. Ef þessar hækkanir á sköttum ganga eftir mun það valda enn frekari hækkunum á Íslandsferðum. Við breytum því ekki að ferðamenn þurfa að fljúga töluverða leið til að koma til Íslands og ferðamenn velja að ferðast um landið og keyra þ.a.l. mikið. Seðlabankinn spáir lækkun verðbólgu á næsta ári en það breytir ekki þeirri staðreynd að hækkunarþörf greinarinnar er enn til staðar og nýir skattar þurfa að fara út í verðlagið. Ég hef því verulegar áhyggjur af því að þessar snörpu hækkanir á Íslandi muni hafa töluverð áhrif á eftirspurn eftir Íslandsferð. Flestir sem hafa verið að spá í fjölda ferðamanna hafa verið mjög varkárir og spá lítilli fjölgun eða smá fækkun ferðamanna. Samkvæmt spá Ferðamálastofu, sem birt er í skýrslu OECD, er gert ráð fyrir lítilsháttar fækkun erlendra ferðamanna til Íslands bæði árin 2027 og 2028. Áætlað er að íslensk ferðaþjónusta skili um 200 milljörðum króna í skatta og gjöld til hins opinbera. Tiltölulega hófleg fækkun getur því haft veruleg áhrif á tekjur þjóðarbúsins og hins opinbera. Ef ferðamönnum fækkaði um samtals 3% og tekjur hins opinbera drægjust saman um 6 milljarða króna af þeim sökum, væri tekjutapið eitt og sér á pari við þær tekjur sem stjórnvöld hyggjast afla með nýjum innviðagjöldum. Það undirstrikar hversu mikilvægt er að gjaldtaka hins opinbera grafi ekki undan samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Samtök ferðaþjónustunnar vöktu nýverið athygli á þessu með því að auglýsa “Stækkum kökuna” en það er einmitt sú vegferð sem við viljum fara með stjórnvöldum. Á undanförnum árum hefur verið mikið fjárfest í íslenskri ferðaþjónustu, ný baðlón opnuð, ný hótel byggð, ný afþreying opnuð og dreifing ferðamanna um landið haldið áfram að aukast með hagsmuni landsbyggðarinnar að leiðarljósi. Það er ekki alveg sama hvað Ísland er dýrt. Skemmtiferðaskipum hefur á þessu ári fækkað um 14% eftir að innviðagjöld voru lögð á farþega þeirra og hefur enn ekki tekist að snúa þeirri þróun við þrátt fyrir að núverandi ríkisstjórn hafi lækkað gjöldin. Ég vona því innilega að ríkisstjórnin hlusti á aðvaranir fjölmargra áður en þessar stóru ákvarðanir um enn meiri skattheimtu verði samþykktar. Það eru hagsmunir allra landsmanna að hér starfi öflug og samkeppnishæf ferðaþjónusta og þannig stækkum við kökuna saman. Höfundur er forstjóri Icelandia. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun