Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar 19. október 2026 15:02 Nú er fótbolta tímabili ársins að ljúka á Íslandi og spennan er eftir því. Rýnt er í ákvarðanir tímabilsins, stór sem smá mistök og hvort þau séu leikmönnum, undirbúningi, leikskipulagi eða þjálfurum að kenna. Glæsileg tilþrif eru rifjuð upp og öllu gefin einkunn. Það er einfalt að hafa skoðun á því sem liðið er. Það er þó á fárra höndum að hafa raunveruleg áhrif á það sem er framundan. Sumir fæðast inn í þá fjölskylduhefð að halda með Fylki, fylgjast með öðru auganu, mæta á stórleiki en sjá önnur úrslit á fótbolti.net. Einhverjir flytjast búferlum og þá er það eina í stöðunni að halda með ÍBV. Svo eru þeir sem eru svo miklir Þórsarar að þeir myndu frekar kveikja í húsinu sínu en að ráða pípara sem er KA maður. Fótboltinn gefur fólki endalaust umræðuefni og er gott umræðuefni í þá líffræðilegu þörf manneskjunnar að eiga í samskiptum við annað fólk. Samtöl úti á götu hafa þó tæplega áhrif á ákvörðun þjálfara um uppstillingu næsta byrjunarliðs. Að vera í stjórnmálaflokki er ekki ólíkt því að halda með fótboltaliði. Þú getur gengið um í Víkingstreyju, fylgst með öllum fréttum, mætt tímanlega í Víkina og orðið hluti af heildinni. Þú sérð allt sem gert er á hlut Víkings, átt auðvelt með að afsaka gengið og andleg líðan þín og sjálfsmynd byggir að einhverju leyti á því hvernig leikurinn fer. Dómarinn heldur að sjálfsögðu með mótherjanum, þú fagnar eins og enginn sé morgundagurinn þegar Víkingur vinnur og finnur allskonar afsakanir þegar liðið tapar. Mitt lið er Viðreisn Ég hef haldið með Viðreisn síðan 2017. Ég hef mætt á leiki, verið á sjoppuvöktum, grillað hamborgara, öskrað í stúkunni, farið heim og bölvað liðinu og meira að segja æft linnulaust og gert tilraun til að komast í liðið. Ég hef fyllt á vatnsbrúsa og þrifið klefana. Ég hef sinnt þessum hlutverkum í uppbyggingarfasa flokksins og gat lengi afsakað misgóðar ákvarðanir þjálfarateymis og leikmanna með því að flokkurinn væri ungur. Við hefðum aldrei spilað í efstu deild og til þess að komast þangað þyrfti að taka áhættu. Allir yrðu að leggja hönd á plóg. Allt þetta borgaði sig. Þingstyrkur Viðreisnar þrefaldaðist í kosningunum 2024 og sama hvað þér finnst um flokkinn þá hefur vörumerkið aldrei verið eins stórt og einmitt núna. Svekkt Ég er þó svekkt. Ég er svekkt yfir forgangsröðun og ákvarðanatöku ríkisstjórnarinnar. Liðið mitt er komið í efstu deild og á blaði ætti ég að vera glöð með stöðuna. En ég er hvorki fædd með flokkshollustu í blóðinu né mun ég standa með liðinu mínu sama hvað. Ég er kona sem bý á landsbyggðinni, móðir ungra barna, fasteignaeigandi, betur þekkt sem lánaskuldari, og kennari ungmenna sem reyna sitt allra besta á hverjum degi, mörg hver með flóknar stuðningsþarfir. Ég hef farið fyrir landshlutaráði og svæðisfélagi og sit í stjórn Viðreisnar. En fyrst og síðast er ég manneskja með mín eigin gildi og gekk til liðs við Viðreisn því gildi mín spegluðust í gildum flokksins. Og mér finnst flokkurinn minn hafa brugðist þeim að einhverju leyti. Ég hef saknað fyrirsjáanleika í málflutningi og ákvarðanatöku, skýrari upplýsingamiðlunar og meiri áræðni í frelsismálum. Mér finnst hagsmunir almennings um land allt ekki hafa fengið það vægi sem þeir eiga skilið og ég hef saknað samstöðu þess sterka teymis sem ég taldi okkur vera. Það verður að mega gagnrýna sitt eigið lið Við hvern er þá að sakast? Ég ber ábyrgð á stöðunni, alveg eins og allir þeir sem gegna trúnaðarstörfum fyrir flokkinn um allt land. Forysta er ekki bara formaður og varaformaður, þingflokksformaður eða framkvæmdastjóri. Forysta er líka fólkið sem heldur starfinu gangandi, mætir á fundina, vinnur sjálfboðavinnuna og stendur í stúkunni þegar illa gengur. Kjörnir fulltrúar eru hins vegar leikmenn liðsins. Þeir spila leikinn og það eru þeir sem tapa og vinna leiki. Það verður að mega gera kröfur til þeirra, ekki síður þegar þeir eru komnir í efstu deild. Ég hef upplifað máttleysi, skort á því að láta verk fylgja orðum inni á Alþingi og þróttleysi gagnvart því sem Viðreisn lagði upp með í kosningabaráttunni 2024. Mér finnst við hafa verið of upptekin af því að vera ábyrg og skynsöm til þess að muna eftir því að vera líka hugrökk. Að einhverju leyti má skrifa það á þá staðreynd að Viðreisn situr í ríkisstjórn með tveimur flokkum til vinstri og forgangsröðunin byggir á samningaviðræðum. Að einhverju leyti má skrifa það á sterkan vilja Viðreisnar til að rétta af ríkisfjármálin og greiða niður skuldir í stað þess að hlaupa hratt inn í uppbyggingarfasa. En ekki er hægt að skrifa allt á samstarfsflokkana eða ríkissjóð. Og það er ekki hægt að biðja stuðningsfólk endalaust um þolinmæði án þess að sýna því hvert ferðinni er heitið. Hvað gerist í klefanum? Viðreisn hefur að mínu mati fjarlægst mikilvægan hluta af sínu eigin erfðamengi. Við höfum gleymt að halda góðri stemningu í klefanum. Viðreisn er flokkur gleðinnar, mennsku og hlýjunnar. Eða það er að minnsta kosti flokkurinn sem ég gekk til liðs við. Flokkur þar sem fólk með ólíkar skoðanir gat tekist á, hlegið saman og fundið sameiginlega leið áfram. Flokkur sem átti að þora að hugsa öðruvísi, taka áhættu og standa með frelsi einstaklingsins, líka þegar það er óþægilegt. Ég vil fá þann flokk aftur. Þetta er ekki ákall um að skipta út leikmönnum eða reka þjálfarann. Ég hef engan áhuga á að fara í manninn þegar boltinn liggur fyrir framan okkur. En það er heldur engin ástæða til að klappa fyrir slæmri sendingu bara af því að hún kemur frá okkar eigin leikmanni. Nú er fyrri hálfleikur búinn. Við erum komin inn í klefa og staðreyndin er sú að við byrjum síðari hálfleik manni færri. Það þýðir ekki að leggjast í gólfið, bölva dómaranum og bíða eftir lokaflautinu. Það þýðir að það þarf að breyta leikskipulaginu. Ég ætla að mæta í síðari hálfleik Ég viðurkenni það hér með að síðustu vikur og mánuði hef ég verið tilbúin til að kasta inn handklæðinu. Ég hef velt því alvarlega fyrir mér hvort ég nenni yfirhöfuð að halda áfram að halda með liðinu mínu. Hvort orkan sem fer í þetta sé þess virði og hvort ég geti enn staðið með því sem verið er að gera. En ég hef komist að niðurstöðu. Ég er ekki tilbúin að sitja í stúkunni og horfa á leikinn renna okkur úr greipum. Þessi grein er því fyrst og fremst persónuleg yfirlýsing. Ég ætla að mæta í síðari hálfleik af meiri krafti en áður. Taka meiri áhættu, vera óþægileg þegar þess þarf, gera meiri kröfur og láta meira að mér kveða. Ekki vegna þess að ég skuldi Viðreisn blinda hollustu heldur vegna þess að ég trúi enn á þau gildi sem urðu til þess að ég gekk í flokkinn. Ég ætla að leggja mitt af mörkum til þess að Norðausturráð Viðreisnar verði sterkara, styðja við bakið á þingmanninum okkar, Ingvari Þóroddssyni, og berjast fyrir því að hagsmunir Norðausturkjördæmis verði ekki aukaatriði í leikskipulagi síðari hálfleiks. Því það er ekki nóg að eiga leikmann inni á vellinum ef við ætlum ekki að koma boltanum til hans. Nú er að duga eða drepast Ég er ekki ein um þessar tilfinningar. Víða um land situr fólk í sömu treyju og ég, fólk sem hefur lagt á sig ómælda vinnu, trúir enn á málstaðinn en hefur verið að velta því fyrir sér hvort það nenni að mæta á næsta leik. Við höfum val. Við getum setið áfram í stúkunni, bölvað spilamennskunni og vonað að einhver annar breyti henni. Við getum líka farið heim, hengt treyjuna inn í skáp og fundið okkur eitthvað annað að gera. Eða við getum staðið upp, látið í okkur heyra og tekið þátt í að breyta leiknum. Ég ætla að velja síðasta kostinn. Og ef það eru fleiri þarna úti sem eru komnir með nóg af því að horfa á leikinn án þess að hafa áhrif, þá er þetta ágætis tímapunktur til að láta sjá sig. Það er síðari hálfleikur að byrja. Nú er að duga eða drepast. Við spyrjum að úrslitum að leik loknum. Áfram Viðreisn. Á auðveldum og erfiðum dögum. Höfundur er formaður Norðausturráðs Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun