Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Áróra L Davíðsdóttir skrifar 18. október 2026 21:47 Trump hefur farið hörðum orðum um Selenskí undanfarna daga. Myndin er frá fundi forsetanna tveggja í Hvíta húsinu í febrúar 2025. EPA/JIM LO SCALZO Bandaríkjaforseti segir að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið Rússa frá samningaborðinu og að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn.
Á föstudaginn undirritaði Donald Trump Bandaríkjaforseti forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Sjálfur hafði hann undirritað lögin í síðasta mánuði en ákvað hann að fresta gildistökunni tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út samkvæmt lögunum sjálfum. Í færslu á Truth Social sem birt var í kvöld segir Trump að undirritun laganna gæti hrakið Rússa frá samningaborðinu. Sjálfur vinni hann að því að koma á friði milli ríkjanna tveggja. „Ákvörðun mín varðandi Rússland er mjög einföld. Ég er að semja um frið í stríðinu milli Rússlands og Úkraínu og vil ekki gera neitt sem gæti, á heimskulegan hátt, hrakið Rússland frá samningaborðinu. Mikill árangur er að nást og það á meðal annars við um yfirstandandi samningaviðræður um gísla! Að undirrita þetta skjal á þessum tímapunkti myndi gera einmitt það, og ég get undirritað það síðar, eða hvenær sem ég vil!,“ skrifar Trump. Löggjöfin var kennd við Lindsey Graham, öldungadeildarþingmann frá Suður-Karólínu sem lést í sumar, og átti að herða aðgerðir gegn fjármagnsflæði sem stendur undir stríðsrekstri Rússa gegn Úkraínu. Markmiðið með aðgerðunum var að svipta Vladimír Pútín forseta Rússlands þeim fjármunum sem Moskva þarf til að halda áfram stríðinu í Úkraínu. Árásir Selenskí valdi verulegum skaða á heimsvísu Trump sakar Vólódímír Selenskí um að beina spjótum sínum að dísilhreinsunarstöðvum í Rússlandi, vitandi að árásirnar valdi verulegum skaða á olíumarkaði heimsins. „Að lokum notar Selenskí dísilhreinsunarstöðvar í Rússlandi sem skotmörk, vitandi að þessar árásir skaða alvarlega dísilmarkaði heimsins, þar á meðal í Bandaríkjunum. Bændur, búgarðseigendur og fyrirtæki af ýmsum toga líða mjög fyrir þetta, en Rússland sendir engu að síður milljónir tunna af dísilolíu út í heim á lágu verði.“ Trump vakti athygli í síðustu viku þegar hann tilkynnti að samkomulag hefði náðst milli Bandaríkjamanna og Rússa um útflutning á hundruðum þúsunda tonna af dísilolíu í því skyni að lækka orkuverð á heimsvísu. Hann hefur ítrekað haldið því fram að það sé Úkraínumönnum að kenna að eldsneytisverð sé hátt en ekki vegna stríðs hans gegn Íran og meðfylgjandi takmarkana á flæði olíu og olíuafurða frá Mið-Austurlöndum. Steve Rosenberg, blaðamaður BBC sem staddur er í Rússlandi, fer meðal annars yfir umræðuna í rússneskum fjölmiðlum í myndbandi sem má sjá hér að neðan. „Hefði getað gert betri samning fyrir tveimur árum“ Trump segir Selenskí ekki vilja semja um frið og binda enda á stríðið. Undanfarið hefur Trump í auknum mæli gagnrýnt Selenskí opinberlega og kennt honum um að hafa ekki náð samkomulagi við Pútín. „Zelenskyy er alveg sama, og satt að segja, með öllum þeim peningum sem Evrópa er alræmd fyrir að gefa honum og sem Svikuli Joe Biden gaf honum áður, vill hann ekki binda enda á þetta stríð og vildi það líklega aldrei. Hann hefði getað gert betri samning fyrir tveimur árum en hann getur nú. Land hans er í rúst, stór hluti lands hans er tapaður, höf hans og sjór eru horfin, og karlkyns íbúar hans eru fáir, særðir og/eða látnir. ÉG VIL AÐ ÞESSU STRÍÐI LJÚKI!,“ skrifar Bandaríkjaforseti.
Bensín og olía Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Úkraína Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira