Skoðun

Nýtum betur gagnreyndar að­ferðir í skólum

Skúli Helgason skrifar

Íslenskt skólakerfi stendur frammi fyrir áskorunum sem við þurfum að mæta. Niðurstöður alþjóðlegra mælinga á borð við PISA vekja eðlilega áhyggjur af námslegri stöðu íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum sem hefur hrakað verulega á undanförnum árum. Á sama tíma glíma kennarar við aukið álag og sífellt fjölbreyttari nemendahóp. Við þessar aðstæður er eðlilegt að við spyrjum okkur: Hvernig getum við best stutt við nemendur og kennara til að ná betri árangri? Þar er að mörgu að hyggja, t.d. þarf að stórefla vandaða námsgagnaútgáfu og létta af kennurum þeirri byrði að þurfa sjálfir að verja stórum hluta vinnutíma síns í að útbúa námsefni. Huga þarf að samsetningu nemendahópa, innra og ytra mati og efla til muna íslenskukennslu barna með annað móðurmál til að auka jöfnuð meðal barna eins og við í Samfylkingunni lögðum til í borgarstjórn á dögunum. Mörg þessara viðfangsefna og fleiri eru ávörpuð í áherslum Kennarasambands Íslands sem kynntar voru á dögunum sem grundvöll að víðtæku samtali í samfélaginu og er mikilvægt að við tökum sem flest þátt í því samtali með lausnamiðað upplegg.

Í þessu samhengi umbóta í menntamálum eru mikil tækifæri fólgin í því að nýta betur gagnreyndar aðferðir í skólum. Það er inntak nýrrar tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar um að skóla – og frístundaráð samþykki þá stefnu að grunnskólar borgarinnar leggi sérstaka áherslu á að nýta gagnreyndar kennsluaðferðir í undirstöðugreinum s.s. íslensku, stærðfræði og náttúruvísindum með það að markmiði að bæta námsárangur og auka faglegan stuðning við kennara í skólum. Tillögunni var vel tekið af fulltrúum meirihlutans á fundi skóla- og frístundaráðs sl. mánudag og var vísað áfram til yfirstandandi vinnu borgarinnar við að móta sóknaraðgerðir í menntamálum.

Hvað eru gagnreyndar aðferðir?

Gagnreyndar aðferðir eru kennsluhættir og úrræði sem hafa verið rannsökuð með kerfisbundnum hætti í endurteknum samanburðarrannsóknum, sem staðfest hafa jákvæð áhrif viðkomandi aðferða á nám og þroska nemenda.

Þegar kemur að grunnfærni barna eigum við að byggja ákvarðanir okkar á bestu þekkingu sem völ er á hverju sinni. Rétt eins og við væntum þess að heilbrigðiskerfið byggi á gagnreyndri læknisfræði er eðlilegt að við gerum kröfu um að menntakerfið nýti gagnreyndar aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt fram á að skili börnum betri árangri en aðrar aðferðir.

Skylda okkar samkvæmt lögum

Höfum í huga að hugmyndin um gagnreyndar aðferðir er ekki ný eða framandi í íslensku regluverki.

Í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er sérstaklega kveðið á um að uppbygging, skipulag og framkvæmd þjónustu taki mið af gagnreyndri þekkingu.

Í reglugerð um hæfni kennara er sömuleiðis vísað til þess að kennarar nýti gagnreyndar aðferðir við kennslu og bekkjarstjórnun.

Tillaga um aukna áherslu á gagnreyndar kennsluaðferðir í grunnskólum Reykjavíkur felur því ekki í sér eiginlega stefnubreytingu frá sjónarmiðum sem þegar hafa verið lögfest en hún felur sannarlega í sér að skerpt verði á þeirri framkvæmd í skólum borgarinnar að nýta betur þær rannsóknir sem við eigum innanlands sem utan til að bæta skólastarf í góðu samstarfi við kennara og skólastjórnendur.

Nýlegar rannsóknir og fordæmi

Rannsóknir sem kynntar voru á Menntakviku Menntavísindasviðs Háskóla Íslands á dögunum sýna meðal annars fram á sterk tengsl milli gagnreyndra kennsluhátta og betri námsárangurs í íslenskum grunnskólum. Ég nefni hér þrjú dæmi. Í fyrsta lagi kom fram að nemendur sem fengu skýra og markvissa kennslu náðu að jafnaði mun betri árangri í lesskilningi, stærðfræði og náttúrufræði en þeir sem byggðu námið fremur á sjálfstæðu leitarnámi. Munurinn mældist allt að 50 stig í nýjustu PISA mælingu eða sem svarar til námsframvindu rúmlega tveggja skólaára í öllum þremur greinunum.

Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif gagnreyndra aðferða í lestrarkennslu á fyrstu skólaárunum. Þar hafa m.a. aðferðir á borð við PALS (félagalestur) vakið athygli. Þar vinna nemendur saman í skipulögðu félagalæsi og rannsóknir benda til þess að slíkar aðferðir geti bæði aukið lestrarfærni og dregið úr ójöfnuði í námi.

Þá var kynnt ný innlend rannsókn sem sýnir að gagnreyndar aðferðir í bekkjarstjórnun geti stutt við velferð kennara í starfi. Það er mikilvægt sjónarmið á tímum þegar kennaraskortur og kulnun í starfi eru meðal stærstu áskorana skólakerfisins.

Góðu heilli er hægt að horfa til ýmissa fordæma um grunnskóla í borginni sem beitt hafa gagnreyndum aðferðum í lestrarkennslu og stærðfræðikennslu með góðum árangri og nærtækt er að horfa til þeirra við innleiðingu gagnreyndra aðferða í framhaldinu.

Áframhaldandi stuðningur við faglegt sjálfstæði kennara

Hlutverk kjörinna fulltrúa er að móta stefnuna og varða leiðina fyrir menntakerfið í borginni. En það er mikilvæg forsenda tillögunnar að kjörnir fulltrúar og yfirstjórn borgarinnar stýri því ekki miðlægt hvaða aðferðir verði fyrir valinu heldur hafi kennarar og skólastjórnendur síðasta orðið varðandi val gagnreyndra aðferða sem henti best þeirra nemendahópum og stefnuáherslum viðkomandi skóla. Það er áréttað í tillögunni að áfram verði stutt við að grunnskólar hafi svigrúm til að þróa aðferðir og verklag sem leiði til framþróunar og nýsköpunar í skólastarfi. Þar hafa starfendarannsóknir kennara gegnt vaxandi hlutverki og er mikilvægt að veita þeim áframhaldandi stuðning.

Forystuhlutverk borgarinnar

Reykjavík er stærsta skólasamfélag landsins. Borgin hefur því bæði tækifæri og ábyrgð til að leiða þróun menntamála á Íslandi.

Fyrsta skrefið er að afla heildstæðrar yfirsýnar yfir stöðuna í grunnskólum borgarinnar. Hvar eru gagnreyndar aðferðir þegar í notkun? Hvaða árangri hafa þær skilað? Hvernig má styðja betur við kennara og skóla sem vilja tileinka sér slíkar aðferðir? Það er hluti tillögunnar að afla slíkra upplýsinga.

Í framhaldinu þarf að móta raunhæfa innleiðingaráætlun í nánu samstarfi við skóla-og fræðasamfélagið. Þar skiptir mestu að sviðið tryggi gott aðgengi og miðlun upplýsinga um gagnreyndar aðferðir til kennara og skóla með vísan í innlendar og erlendar rannsóknir og alþjóðlega gagnagrunna um gagnreyndar aðferðir. Háskólasamfélagið er mikil auðlind rannsókna og þekkingar sem hægt er að nýta í því sambandi ásamt fyrirmyndum í grunnskólunum sjálfum.

Þetta er sannarlega ekki tillaga að skyndilausn heldur langtímaverkefni. En ef við setjum okkur skýra stefnu, byggjum á rannsóknum og vinnum saman að lausnum getum við náð miklum árangri.

Þegar öllu er á botninn hvolft snýst málið um rétt barna til að fá bestu mögulegu menntun og rétt kennara til að njóta faglegs stuðnings í afar mikilvægum störfum sínum og sá stuðningur byggi á þekkingu sem studd er vönduðum rannsóknum.

Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar




Skoðun

Sjá meira


×