ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar 17. október 2026 20:32 Ég hef unnið í áfengisbransanum í 50 ár og kynnst honum frá „fine dining“ veitingastöðum, skemmtistöðum sem gátu tekið á móti yfir 1.000 manns á kvöldi, og síðan heildsölu með áfengi frá fyrsta degi sem það var leyfilegt. Ég byrjaði að vinna fyrir fyrirtæki sem var í raun að selja mjög takmarkað magn til ÁTVR, þannig að í upphafi var lítill birgi, en var orðin einn af 3 stærstu birgjum ÁTVR þegar ég hætti ásamt því að vera með um 35% markaðshlutdeild í kútabjórssölu á Íslandi. Það sem var kannski mest sérstakt var að það fyrirtæki var ekki með neinn Íslenskan bjór. Þetta fyrirtæki sem ég vann hjá gerði samninga eins og tíðkast í dag, þar sem afsláttur er greiddur fyrir fram, en þetta fyrirtæki setti engin skilyrði um viðskipti við aðra birgja. Þetta fyrirtæki var komið með sérstöðu í þjónustu og tækjum fyrir dreifing á bjór innan veitinga- og skemmtistaðanna, einnig með mikið af vörum sem fáir aðrir voru að bjóða upp á. Þetta fyrirtæki vann með sínum viðskiptavinum og þurfti því ekki að setja ströng skilyrði varðand samkeppni. Nú er annar tími. Stóru aðilarnir á áfengismarkaði hafa ekki reynt að skap sér sérstöðu í þjónustu eða vörum. Þvert í móti eru þeirra helstu tekjur komnar af svokölluðum magn vörum (entry level) þar sem samkeppni er mjög mikil og þess vegna þurfa þessi fyrirtæki að setja einhver skilyrði þegar þau skaffa tæki og fyrir fram greidda afslætti. Þau geta einfaldlega ekki greitt einhverjum veitingamanni X milljónir í fyrir fram greiddan afslátt og látið síðan reyna á hvort viðkomandi versli einhvern tímann nægilega mikið til að afslátturinn raungerist. Kannski gleymir starfsfólk þessara fyrirtækja sér stundum og krefst of mikils og þess vegna er samkeppniseftirlitið svo mikilvægt, því misnotkun á markaði er ekki endilega af illum hug, heldur hlutum sem gerast í hita leiksins. Ég nefni ÁTVR hér fyrst í fyrirsögninni. Einhverjum árum áður en heildsala með áfengi var gefin frjáls á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi lagði þáverandi forstjóri Finnsku einkasölunnar til að allar einkasölurnar í þessum löndum mundu breyta sér frá afgreiðslu (á áfengi) til þjónustu fyrirtækja, þar sem starfsfólk fengi rétta og góða þjálfun, verslanir yrðu sjálfsafgreiðsluverslanir og verslanir yrðu huggulegar. Það var á þessu stigi að ef þessi lönd gengu í EES samstarfið (Svíþjóð og Finnland gengu fyrst í EES áður en þau urðu fullgildir meðlimir ESB) gætu þessi lönd haldið áfram með einkasölu á áfengi vegna lýðheilsusjónarmiða þessara landa (gildir enn í Svíþjóð og Finnlandi, þrátt fyrir að vera orðin fullgildir meðlimir ESB) Til þess að almenningur héldi áfram að vera þessum einkasölum hliðholl, þurftu þau að aðlagast breyttum tímum. ESB setti í raun engin ströng skilyrði fyrir þessar einkasölur aðrar en þær að smásölurnar yrðu að vera aðskildar frá heildsölunum. Þáverandi fjármálaráðherra, Friðrik Sophusson, ákvað að vegna smæðar Íslenska markaðsins, léti hið opinbera einkageirann um að verða birgjar ÁTVR og heildsalar til fríhafnarinnar og veitingahúsa Höskuldur Jónsson, þáverandi forstjóri, gerði gríðarlegar breytingar á ÁTVR; verslanir voru endurbyggðar, starfsfólk á gólfi var þjálfað og svokallaðir „vín ráðgjafar“ voru sérstaklega vel þjálfaðir. Stærst breytingin var að það var ekki lengur í valdi innkaupastjóra að ákveða hvaða vörur yrðu fáanlegar hjá ÁTVR og mikil áhersla var lögð á samvinnu við birgja með reglulegum birgjafundum. Allir gátu sótt um að koma sínum vörum í sölu og svokölluð sérlistaverslun var opnuð í versluninni Heiðrúnu, þetta kerfi hefur síðan þróast í núverandi stöðu sem er: Reynslusala: Allir geta sótt um að koma sinni vöru í reynslusölu, eftir að hafa greitt reynslusölugjald sem á að standa undir kostnaði við að setja vöru í reynslusölu. Einnig þarf að afhenda að lágmarki 50 cl sýnishorn (líka fyrir 200 ml einingar) og vörugreiningu. Varan fer síðan í 4 verslanir í allt að 12 mánuði. Ef varan á einhverju stigi þessara 12 mánaða nær lágmarksviðmiði ÁTVR, þá færist varan í 7 verslanir og þar er varan varin fyrir samkeppni í 12 mánuði á meðan varan er að sanna sig. Kjarnasala: Kjarni er allt frá 7 verslunum upp í 48 verslanir og vöruval einstakra verslana er miðuð við eftirspurn eftir einstökum vörum. Lítil eftirspurn þýðir fáar verslanir, mikil eftirspurn er þá margar verslanir. Ofangreint kerfi er í eðli sínu mjög gott og rétt hugsað, þar sem þarna er gert ráð fyrir því að viðskiptavinir (neytendur) ákveða hvað fæsti í kjarna ÁTVR og í hversu mörgum verslunum. Ef þetta kerfi væri að virka eins og því er ætlað, þá væru hlutirnir kannski í betra lagi, en því er alls ekki þannig varið. Eitt af stóru skrefunum til hins verra var eftir að 1 birgi fór í mál við ÁTVR. Ástæðan var að tvær bjórtegundir sem hann hafði verið með í reynslusölu náðu ekki inn í kjarna þegar miðað var við þáverandi kerfi þar sem framlegð var mælieiningin. Hann taldi að bjórarnir frá honum hefðu átt að ná inn, því samkvæmt lítrum hefðu þeir náð inn. Þetta mál fór alla leið til Hæstaréttar og niðurstaðan varð sú að lítrar ættu að telja frekar en framlegð. Hér virðast einhverjir hjá ÁTVR hafa farið í fýlu og hugsað að fyrst „þið“ á meðan þetta var „hann“ viljið þetta þá fáið þið þetta. ÁTVR hefur marga verðflokka t.d. í víni, en velur að setja öll rauðvín, hvítvín, rósavín og freyðivín í sama stærðarflokki undir sama hatt. Kampavín sem kostar til dæmis +/- 8.000 krónur keppir núna í lítrum við freyðivín sem kostar +/- 2.000 krónur. Þetta á við alla hina flokkana. Hér getur hver sem vill, séð að einhver er ekki að sinna vinnu sinni og viðkomandi er ekki heldur að hugsa um hag viðskiptavina ÁTVR eða afkomu ÁTVR, þar sem allar dýrari vörur sem gefa meira af sér eru hægt og rólega að detta út úr vöruvali. Fyrir nokkru sagði Innkaupastjóri ÁTVR mér, með mikilli áherslu að þau væru að vinna með 140 birgjum, þar sem gefið var mjög skýrt í ljós að þeir væru allt of margir. Síðan þá virðist það hafa verið markmið hjá ÁTVR að fækka birgjum. Mig langar að benda hér á Siðareglur ÁTVR: JAFNRÆÐI Við erum sanngjörn og réttsýn í samskiptum við önnur fyrirtæki og stofnanir. Við leggjum okkur fram um að veita öllum framúrskarandi þjónustu. Við gætum hlutleysis í þjónustu og mælum ekki með tiltekinni vöru umfram aðra. Við ráðgjöf veitum við viðskiptavinum val um fleiri en eina vörutegund eins og kostur er. Einkasala / Einkarekstur. Þetta eru tvö mjög aðskilin mál, þar sem einkasala er vernduð frá samkeppni en einkarekstur er í fullri samkeppni. Það virðist eins og ÁTVR hafi fengið utanaðkomandi ráðgjöf eða nýjan starfsmann sem fór að hugsa rekstur ÁTVR sem rekstur í almennri samkeppni, þar sem ÁTVR gæti sett reglurnar, en það er auðvitað ekki svo. Þar sem ÁTVR er með einkasöluleyfi á áfengi, ber þeim að gæta 100% hlutleysis og þau hafa ekki einu sinni rétt til að „spara vinnu“ á kostnað annara birgja til dæmis með því að velja ákveðnar vörur, gefa þeim mun stærra hillupláss en öðrum vörum, til þess eins að „spara vinnu“. ÁTVR verður að tryggja jafnræði og þótt það þurfi að ráða auka starfsmenn til þess, þá er það þeirra skylda. Innkaup og dreifing. Í gegnum árin voru það verslunarstjórar sem pöntuðu inn fyrir þá verslun sem þeir voru yfir, síðan fyrir nokkrum árum var þessu breytt og þessar ákvarðanir verslunarstjóra aflagðar. Núna eru það 5 starfsmenn innkaupadeildarinnar sem sjá bæði um að panta inn og síðan ákveða þessar sömu manneskjur hvaða magn fer í hvaða verslanir. Verslunarstjórar hafa sagt mér að þeir hafi oft fengið mörg hundruð flöskur sem þeir höfðu enga þörf fyrir en einhver í innkaupdeildinni hafði ákveðið að senda þetta. Ég hef margsinnis reynst að benda á hvað þetta væri rangt kerfi og sérstaklega eftir að Ölgerðin fór á markað því þar með gátu aðilar með völd innan ÁTVR verið beint eða óbeint tengdir afkomu Ölgerðarinnar. Þessar ábendingar hafa verið algjörlega hundsaðar. Ég hef fjölmörg dæmi um lagerstöðu á sunnudögum (vikulok) þar sem margra vikna og jafnvel mánaða magn er á innri lager í ákveðnum verslunum. Í núverandi kerfi ákveða sölutölur hversu margar raðir hvert vín fær í hillum og hversu margar flöskur eru í hverri röð. Þetta kerfi gæti verið notað til að ákveða innri lager í hverri verslun, en nei, þau vilja halda áfram að ákveða innri lager með geðþóttaákvörðun. Ríki í ríki. Ég heyrði einn nefna nýlega í umræðu um Ölgerðina að Ölgerðin væri orðin ríki í ríkinu, en ég vil heldur meina að nú sé komið „ríki í ríkinu“. Það eru orðin völd þar sem engin ræður við. Birgjafundir hafa ekki verið í mörg ár og kvartanir birgja eru oftast ekki teknar til greina og skriflegum erindum ekki svarað. Stundum kemur kurteisissvar þar sem þakkað er fyrir ábendingu, en síðan gerist ekki neitt. Hér get ég talið upp nánast óteljandi hluti sem ég hef upplifað og aðrir sem ég hef heyrt af og auðvitað get ég lagt fram pósta orðum mínum til staðfestingar, ef þess væri óskað. Ég ætla að leggja fram 1 dæmi um mestu ósvífni sem birgjar ÁTVR hafa upplifað nánast frá upphafi samstarfs við ÁTVR Þetta varðar vöruna STD jarðarberja daiquiri vnr 60950 sem Ölgerðin framleiðir Þessi var fór í reynslusölu 1 maí 2026. Sala í maí var í 4 verslunum samtals 68.770 dósir / 22.694 lítrar 5. júni koma út sölutölur sem sýna að þessi vara hefur náð í kjarna og dreifing eigi að fara í 7 verslanir Verslunarstjórar mega núna óska eftir þessari vöru á „sérlista“ hjá sér Sunnudaginn 28. júní (vikulok) var lagerstaða í verslunum eftirfarandi: Höfuðborgarsvæðið: 13.133 dósir Vesturland: 7.599 dósir Norðurland: 4.229 dósir Austurland: 1.461 dósir Suðurland: 6.772 dósir Samtals lager í verslunum sunnudaginn 28 júní var 33.194 dósir Sala á öllu landinu í júní var samtals 59.881 dósir í 48 verslunum ÁTVR Sala í september 2026 var samtals 22.151 dós í 48 verslunum ÁTVR Meðaltalssala í Maí fyrir hverja verslun (68.770 / 4) var 17.192,5 Meðaltalssala í September fyrir hverja verslun (22.151 / 48) var 461 dós Margir birgjar hafa sent inn athugasemd til ÁTVR vegna ofangreinds dæmis. Mér skilst að enginn hafi fengið svar annað en að verið sé að svara eftirspurn. Ég leyfi mér að efast um þetta hraða eftirspurn, þar sem öllum verslunarstjórum tókst að óska eftir þessari vöru á cirka viku og varan komin um allt land viku seinna. Ég minntist á þetta við einn æðsta mann vöruvals og dreifingar, svar hans var að Ölgerðin væri einstaklega dugleg í markaðssetningu. Ef þetta er rétt, þá er þar á ferð einn mesti markaðssnillingur Íslands, síðan Eiríkur Rauði endurskírði Grænland. Ég held að hver einasta manneskja sem vill sjá sannleikann geti séð að þarna er eitthvað óeðlilegt að gerast og við þetta má bæta að um miðjan júní kom ég inn í vínbúðina á Selfossi, þar sem heilt bretti af STD stóð á miðju gólfinu í versluninni. Ég á erfitt með að sjá að þetta geti samræmst yfirlýsingu ÁTVR: „Við gætum hlutleysis í þjónustu og mælum ekki með tiltekinni vöru umfram aðra. Við ráðgjöf veitum við viðskiptavinum val um fleiri en eina vörutegund eins og kostur er.” Birgjar ÁTVR eru almennt ekki að fara fram á meira en réttlæti þar sem allir njóta sömu þjónustu og réttinda. Það hlýtur því að vera réttlát krafa allra, og þar með neytenda, að 100% hlutleysis sé gætt hjá einkasölu áfengis á Íslandi sem er í eigu þjóðarinnar, en ekki í eigu útvalinna starfsmanna ÁTVR. Hér með skora ég á stjórn ÁTVR og viðkomandi ráðuneyti að taka í alvöru á þessu máli og ekki láta það dankast eins og svo margt annað á Íslandi og hefur lengi verið gert með ÁTVR, nánast frá því að Höskuldur Jónsson hætti störfum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Páll Haraldsson Ölgerðin (Bera) Áfengi Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun