Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar 17. október 2026 15:01 Til mín kom kona sem er að slíta sambúð. Hún sagðist í rauninni ekki þurfa lögfræðiþjónustu heldur bara upplýsingar. Þau væru bæði ákveðin í að skilja í góðu en að þau vissu ekki hvaða reglur giltu um eignaskipti. Annað þeirra hefði fengið arf á sambúðartímanum en hitt skömmu áður en þau hófu sambúð. Annað hafði fengið slysabætur. Annað ætti íbúð, hitt ætti fyrirtæki og það fyrirtæki ætti eignir. „Við fórum í lagasafnið en fundum ekkert um það hvernig á að skipta eignum við sambúðarslit, og gervigreindin segir að það séu ekki til nein lög um það heldur bara dómar,“ sagði konan og hafði greinilega efasemdir um að „kötturinn“ (Chat GPT) hefði rétt fyrir sér. Hver hefur sett reglur um eignaskipti við sambúðarslit? Lítið vafamál er að meirihluti hjóna á Íslandi hefur verið í óvígðri sambúð í einhvern tíma áður en hjónavígsla fór fram. Á bilinu 25%-30% þeirra para sem búa saman eru í óvígðri sambúð og fjöldi barna fæðist í óvígðri sambúð. Þrátt fyrir þetta hefur Alþingi ekki sett sérstök lög um réttindi og skyldur sambúðarfólks. Það er hægt að finna einhverjar upplýsingar í nokkrum lagabálkum (t.d í lögum um skipti á dánarbúum, lögum um almannatryggingar og húsaleigulögum) en fólk þarf helst að vita í hvaða lögum það á að leita til að finna þær upplýsingar. Listinn sem kemur upp ef maður skráir "sambúð" í leitarglugga lagasafnsins er ekki sérlega hjálplegur. Þótt lagasafnið geymi nokkrar upplýsingar um sambúð eru þar engar leiðbeiningar um meðferð eigna og skulda við sambúðarslit. Það þýðir ekki að engar reglur gildi um þessi mál en það eru í reynd dómstólar sem hafa sett þær reglur. Það er bagalegt því í okkar réttarkerfi er hlutverk dómara að dæma eftir lögum sem Alþingi setur, en ekki semja lög sjálfir. Samt er það nú svo að þegar dómari fær mál til meðferðar, og lög eru óljós eða ekki til, getur hann ekki bara sagt aðilum máls að leysa málið sjálfir. Dómstólum ber skylda til að finna lausn og þá með því að líta til annarra laga og reyndar líka augljósra sanngirnissjónarmiða. Með tímanum hafa dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að þegar fólk hefur rekið saman heimili í mörg ár, eignast saman börn og hjálpast að við að auka verðgildi eignanna, þá standist það ekki þau réttindi sem stjórnarskrá er ætla að tryggja borgurunum að fara eingöngu eftir skráðum eignarheimildum. Alþingi ber ábyrgðina Það er ekki við því að búast að ólöglært fólk sem er að slíta sambúð með öllum þeim vandamálum sem fylgja leggist í dómalestur til að átta sig á stöðu sinni. Og þar sem reglur um þessi mál eru hvorki afdráttarlausar né aðgengilegar verður afleiðingin stundum sú að annar aðilinn semur af sér og stundum sú að fólk, sem stendur frammi fyrir þeim áföllum sem fylgja því að leysa upp heimili, neyðist til að leita sér lögfræðiaðstoðar með tilheyrandi kostnaði. Lög koma ekki alltaf í veg fyrir illdeilur. En það er góð ástæða fyrir því að lög er sett, rituð og birt almenningi og það er skylda löggjafans að ákveða og skýra hvaða reglur gilda í landinu. Alþingi hefur að því leyti brugðist fólki í óvígðri sambúð og börnum þess. Það er tímabært að þingmenn fari að hysja upp um sig og setja lög um þessi mál, í stað þess að ýta skyldum sínum yfir á dómstóla. Höfundur er lögmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ástin og lífið Eva Hauksdóttir Fjölskyldumál Alþingi Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun