Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar 17. október 2026 10:15 “Alltaf þegar þeir finna upp á einhverju nýju til þess að losna úr snörunni, lokum við þeirri útgönguleið,” sagði Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í ágúst s.l., harðákveðinn í að rústa efnahagslífi Kúbu og knésetja íbúana. Þetta er maðurinn sem drap hér niður fæti um daginn og var hampað af íslenskum stjórnvöldum sem hafa hamrað á mikilvægi þess að alþjóðalög séu virt, lykilatriði fyrir smáþjóðir segja þau – en á sennilega bara við um sum lönd. Utanríkisráðherra Kúbu Bruno Rodríguez lýsti ástandinu í landinu á blaðamannafundi fyrir skömmu þar sem hann kynnti skýrslu sem lögð verður fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 27.-28. október n.k. Þar á enn á ný að afgreiða ályktun um nauðsyn þess að binda enda á efnahags- og viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Kúbu. Slík ályktun hefur verið samþykkt á þinginu ár eftir ár með miklum meirihluta atkvæða. Andstætt þessum ályktunum hefur Bandaríkjastjórn hert þvinganirnar ár eftir ár, óháð því hver situr í embætti forseta. Núverandi ríkisstjórn gengur fram með miklu offorsi. “Þetta eru langir, erfiðir mánuðir þegar rafmagn er einungis í 2-3 tíma á dag eða skemur, matur skemmist, það er erfitt að sofa vegna hita, foreldrar vaka yfir kornabörnum, skólabörn vinna heimavinnuna sína í myrkri, ungt fólk er án aðgangs að interneti og tómstunda, afar og ömmur án sjónvarps og stundum jafnvel útvarps – allt fjölskyldulífið er í lamasessi,” sagði Bruno Rodríguez. “Þessar þvinganir koma ekki niður á ríkisstjórninni,” sagði hann. “Þær koma niður á daglegu lífi fólks á ótal vegu.” Ungbarnadauði hefur aukist, var 4 af hverjum 1.000 fæddum börnum árið 2018 en fór í 9,9 árið 2025. „Þetta eru börn ekki tölur. Þetta eru andlát sem þurftu ekki að eiga sér stað,” sagði hann, en urðu vegna þess að “Kúba og heilsugæslukerfi landsins er nú án nauðsynlegs tækjabúnaðar.” Af 350 algengustu lyfjum í heilsugæslunni á Kúbu skortir nú 300 vegna þess að hráefni vantar eða íhluti til að framleiða þau. Það skortir lyf og tækjabúnaður virkar ekki, vannæring eykst, fæðingarþyngd barna minnkar. Þetta eru beinar afleiðingar ráðstafana Bandaríkjastjórnar. Fyrir byltinguna á Kúbu var ungbarnadauði yfir 70 af 1.000 fæddum börnum. Ári síðar hafði talan helmingast og árið 2012 var talan komin í 4,8. Almennt er viðurkennt að árangur Kúbu á sviði heilsugæslu, sem markast ekki hvað síst af lágum ungbarnadauða sem er algengur mælikvarði á ástand heilsugæslu landa, sem og útrýming ólæsis, er einstakur. Nú skortir lyf og lækningavörur, hreinlætisvörur og aðrar nauðsynlegar heimilisvörur. Samgöngukerfið er lamað – strætó, lestar, flutningabílar, þar á meðal farartæki til þess að flytja mat úr sveitum til borganna þar sem meirihluti fólks býr. Þess vegna er kreppa Hafnbann Bandaríkjastjórnar hefur upp á síðkastið leitt til stöðnunar og hraðminnkandi framleiðslu á Kúbu. Samkvæmt hagtölum stjórnarinnar á Kúbu dróst verg landsframleiðsla (Gross Domestic Product, GDP) saman um 11% milli áranna 2019 og 2025. Framleiðsla féll um 23% og enn frekar í landbúnaði og námavinnslu eða um 53%. Íbúum landsins hefur fækkað um nálægt 2 milljónir frá 2022. Ungt, vel menntað fólk hefur flutt til Spánar og ýmissa landa Ameríku í leit að atvinnu, betri lífsskilyrðum og tekjum sem gerir þeim fært að senda peninga heim til aðstoðar ættingjum sem standa frammi fyrir óðaverðbólgu. Raunar algengt mynstur víða í heiminum. Bandaríkjastjórn gerir nú hvað hún getur til þess að koma í veg fyrir peningasendingar til aðstandenda á Kúba frá hvaða landi sem er, hótar viðkomandi bönkum refsingum af ýmsu tagi. Kreppan á Kúbu dýpkaði hressilega í byrjun þessa árs þegar stöðvaðar voru skipaferðir til og frá landinu nema með samþykki Bandaríkjanna. Með þessari aðgerð ætlar Bandaríkjastjórn að sjá til þess að engin olía berist til landsins. Afleiðingin er sú að raforkukerfi Kúbu er sem næst hrunið og nær rafmagnslaust í öllu landinu allt að 20 tíma á dag. Án rafmagns er ekkert rennandi vatn; símar þagna, verksmiðjur loka, sjúkrahúsaðgerðir til bjargar mannslífum verða hættulegar og ungbarnadauði eykst. Aðgangur ríkisstjórnarinnar að hinu alþjóðlega bankakerfi hefur verið lokaður um nokkurt skeið og viðskipti með hráefni, tækjabúnað og orkugjafa þannig heft. Erlendar fjármálastofnanir eru varaðar við að eiga viðskipti við Kúbu en kunna að sæta sektum eða öðrum refsingum ella. Sú alvarlega kreppa sem Kúba stendur nú frammi fyrir hefur ekkert að gera með mistök eða rangar áætlanir sem stjórnvöld kunna að hafa gert á umliðnum árum. Ef svo væri hefði Bandaríkjastjórn ekki þurft að koma á hafnbanni og viðskiptaþvingunum, hún gæti bara beðið með hendur í skauti og látið kreppuna um að fella stjórnina. Ráðastéttin og flokkar hennar vita vel eftir nærri 70 ára miskunnarlausar efnahags- og viðskiptaþvinganir að svo er ekki. Kreppan á Kúbu er sköpunarverk bandarísku ráðastéttarinnar sem ætlar að koma aftur á heimsvaldasinnuðum yfirráðum á eyjunni og hefja á nýjan leik rányrkju á náttúruauðlindum landsins og arðrán á vinnandi fólki. Í stuttu máli endurvekja það ástand sem ríkti áður en bundinn var endi á það með byltingu verkafólks og bænda árið1959. Fyrst og fremst er ætlunin að rústa því fordæmi sem byltingin er fyrir allan þann gífurlega fjölda sem sætir kúgun og arðráni um allan heim. Nýta kapítalískar aðferðir Í júní s.l. samþykktu stjórnvöld, þ.e. miðstjórn kommúnistaflokksins, þing og ríkisstjórn, víðtækar aðgerðir sem þegar var byrjað að innleiða og snerta meðal annars eignarhald, miðstýringu efnahagsáætlana og ríkiseinokun í utanríkisverslun. Þessum aðgerðum er ætlað að leiða til aukinnar framleiðslu í landbúnaði og iðnaði og sporna gegn áhrifum viðskiptabannsins á íbúa landsins. Þessar aðgerðir eru pólitísks eðlis því þeim er einkum ætlað að vinna tíma til þess að vinnandi fólk nái að veita viðspyrnu og efla pólítískt sjálfstraust sem hefur látið undan síga í undanförnum hremmingum. Jafnvel áður en til olíuinnflutningsbannsins kom hafa efnahagsþvinganir í innflutningi á eldsneyti, mat, áburði, lyfjum, varahlutum og öðrum nauðsynjum reynst mjög erfiðar. Samgöngur, sorphirða og önnur almenn þjónusta hefur verið lömuð. Meðal þess sem Kúbustjórn hefur nú leyft er að einkafyrirtæki geta flutt inn og selt eldsneyti og stundað viðskipti við útlönd án þess að fara í gegnum ríkisvaldið. Olíubannið hefur leitt til þess að olíustöðvar í vegum ríkisins eru nánast tómar, hins vegar hefur Bandaríkjastjórn heimilað einkafyrirtækjum á Kúbu að kaupa eldsneyti beint frá Míami og Houston. Dæmi eru um að þessar einkastöðvar selji bensínlítrann á 5 Bandaríkjadali. Þessar breytingar munu hafa áhrif í iðnframleiðslu, landbúnaði og samgöngur, á framboð varnings og þjónustu sem og félagsleg skilyrði vinnandi fólks og fjölskyldna þeirra, unga sem aldna. Heilsugæsla og menntakerfi eru utan við þessa breytingar. Aðgerðir til þess að laða að fjármagn: Fallið verður frá margra ára kröfu kúbanska ríkisins um meirihlutaeign í sameiginlegum fjárfestingum/rekstri með erlendum fyrirtækjum Milliliðalaus inn- og útflutningur sveitafélaga, ríkisfyrirtækja, samyrkjubúa og einkafyrirtækja á framleiðsluvörum og tækjabúnaði er heimill. Einokun ríkisins á viðskiptum við útlönd nær þar með einungis til útflutnings ákveðinna innlendra vörutegunda Fyrirtækjum í eigu ríkisins verður heimilt að selja hlut í fyrirtækjunum til innlendra og erlendra fjárfesta og eins að selja ónotaðar eignir Erlendum fjárfestum verður gert kleift að flytja fjárhagslegan hagnað til síns heimalands, ákvarða framleiðsluverð og ráða launafólk milliliðalaust. Fram til þessa hafa ríkisstofnanir séð um að ráða launafólk í sameiginlegum fyrirtækjum og erlendir eigendur höfðu ekkert að segja um ráðningar og uppsagnir launafólks Annað sem ætlað er að auka veg einkaframtaksins Einkafyrirtækjum verður heimilt að ráða yfir 100 starfsmenn á launum Einstaklingum verður heimilt að eiga fleira en eitt fyrirtæki Ríkisfyrirtæki munu ákvarða sitt eigið launafyrirkomulag og fjölda launafólks Umsamin laun verkafólks með þátttöku verkalýðsfélaga verða alfarið háð efnahags- og fjárhagslegri getu fyrirtækjanna ásamt skipulagslegum styrk launafólks Rekstur einkafyrirtækja hófst á Kúbu fyrir um 20 árum. Stjórnvöld leyfðu og hvöttu til þess í því skyni að hamla gegn ofvexti ríkisfyrirtækja og -stofnana og til þess að mæta þörfum fólks á ýmsum varningi og þjónustu. Því eru sem stendur um 13.000 lítil og meðalstór einkafyrirtæki á Kúbu sem bjóða upp á alls kyns vörur og þjónustu, m.a. mat, hársnyrtingu, barnapössum, minni háttar byggingarvinnu, viðgerðir á símum og tölvum, námskeið í erlendum tungumálum svo eitthvað sé nefnt. Talið er að um 1,6 milljón af 4 milljónum vinnufærra íbúa séu núna sjálfstætt starfandi eða vinni í einkageiranum. Ekki endalok sögunnar Þær raddir heyrast innan sem utan Kúbu að ofangreindar aðgerðirnar marki endalok sósíalísku byltingarinnar á Kúbu. Að Fídel Castró leiðtogi byltingarinnar hefði aldrei fallist á að fara þessa leið. Castró svaraði sjálfur slíkum vangaveltum á erfiðum tímum, í kjölfar hruns nær allrar utanríkisverslunar landsins árið 1990, þegar stjórnkerfi Sovétríkjanna riðaði til falls. Castró ávarpaði þúsundir landa sinna og erlenda gesti í Havana 1994, útskýrði og varði nauðsynlegar efnahagsbreytingar, þar á meðal aðgerðir til þess að laða að erlent fjármagn. “Við núverandi aðstæður á Kúbu – án fjármagns, án tækni og án markaða – náum við ekki að þróast. Því eru allar þær ráðstafanir, breytingar og umbætur sem við erum að koma á, ætlað að verja sjálfstæði okkar, verja byltinguna – vegna þess að byltingin er grundvöllur alls.” Með því að tryggja árangur byltingarinnar, hélt Castró áfram, “erum við að vernda sósíalismann eða réttinn til þess að halda áfram þróun sósíalismans þegar aðstæður leyfa.” Núverandi efnahagsráðstafanir á Kúbu eru mun umfangsmeiri en það sem þurfti að gera til þess að komast yfir “hrun marengstertunnar” eins og Castró kallaði fall Sovétríkjanna. Engu að síður eru þessar ráðstafanir hvorki nýjar eða til þeirra gripið í trássi við vilja meirihluta íbúanna. Svipaðar hugmyndir voru ræddar 2011, 2015 og 2019. Ný stjórnarskrá sem tók mið af þessum hugmyndum var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu að lokinni umræðu í öllu samfélaginu, eins og tíðkast (í hverfisnefndum, verksmiðjum, samyrkjubúum, kvennasamtökunum, ungliðasamtökum og víðar). Ákveðin skref í þá átt að opna efnahagslífið á Kúbu frekar fyrir erlendum fjárfestingum til þess að bæta raforkukerfið, samgöngukerfið og iðnaðinn voru hins vegar ekki stigin fyrr en nú, að talið er vegna ágreinings innan forystu landsins. Krafa væntanlegra fjárfesta er að geta unnið sem kapítalistar, geta gert samkomulag sem nær mun lengra er forystan hefur verið reiðubúin að samþykkja, s.s. að flytja ágóðann úr landi, eiga meira en helmingshlut í sameiginlegum rekstri með ríkisfyrirtækjum á Kúbu, og eignarhald á landi þar sem starfsemin fer fram. Helsta krafa þessara fjárfesta er óheftur “réttur” þeirra til að ráða og reka fólk, semja um kaup og kjör, vinnutíma, vinnuálag og önnur vinnuskilyrði milliliðalaust við “sitt” verkafólk. Því er lögð sérstök áhersla á lög um lágmarkslaun og önnur réttindi verkafólks í umræðunni um þessa nýskipan mála. Breytingar á eignarhaldi fyrirtækja hafa í för með sér nýjar áskoranir fyrir verkalýðsfélög um að verja laun, vinnuaðstöðu og félagsleg réttindi vinnandi fólks. Grundvöllur erfiðleikanna á Kúbu er sem áður segir yfirgangur ráðastéttarinnar í Bandaríkjunum – með stuðningi annarra heimsvaldasinna – í þeim tilgangi að kollvarpa ávinningum byltingarinnar á Kúbu. Viðbrögð Bandaríkjastjórnar við þeim skrefum sem Kúbanir hafa nú stigið til þess að verja sjálfstæði og fullveldi lands síns eru fyrirsjáanleg. Fleiri þvinganir og enn frekari þvinganir á banka, lönd og stofnanir hvar sem er í heiminum sem dirfast að eiga í viðskiptum við Kúbu. Stærsta hindrunin sem alþýða fólks á Kúbu og bylting þeirra stendur frammi fyrir er ekki efnahags- og hernaðarmáttur bandarísku heimsvaldastefnunnar heldur sú staðreynd að landið er eina verkalýðsríkið í heiminum. Það er jafnframt umkringt kapítalískum ríkjum í heimsvaldasinnaðri veröld. Í tæpa sjö áratugi hefur ekki verið gerð sigursæl sósíalísk bylting. Engin ný dæmi um hvers verkalýðsstéttin er megnug með verðugri forystu. Höfundur er áhugasamur um það sem er á seyði í heiminum. Hann hefur fylgst með sögu og þróun mála á Kúbu, skrifað greinar þar um og sótt landið heim. Greinin er að hluta til byggð á vikublaðinu The Militant. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gylfi Páll Hersir Bandaríkin Venesúela Kúba Hernaður Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
“
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun