Tónlist

„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Stöðumælavarðarstarfið er ekkert grín, nema stundum.
Stöðumælavarðarstarfið er ekkert grín, nema stundum.

Grínistinn Kjartan Logi var að gefa út lagið „Stöðumælavörð“ og með því tónlistarmyndband. Kjartan hefur unnið sem stöðumælavörður samhliða gríninu síðustu ár en missti starfið um áramótin. Hann er þó ekki að hefna sín á fyrrverandi yfirmönnum og segir starf stöðumælavarðarins vanþakklátt.

Kjartan Logi hefur gert það gott með grínsketsum sínum á samfélagsmiðlum síðustu tvö árin og fengið í framhaldinu hlutverk í sjónvarpsþáttum og auglýsingum. Nú hefur Kjartan ákveðið að dýfa sér út í tónlistina með grínlaginu „Stöðumælaverði“ og segir hann það vera fyrsta af mörgum.

Kjartan samdi og flytur sjálfur lagið sem er framleitt af pródúsentinum Elíasi Geir Óskarssyni. Laginu fylgir auðvitað tónlistarmyndband sem var leikstýrt af Hákoni Erni Helgasyni og er skipað ýmsum góðum mönnum í hlutverkum stöðumælavarða.

Hvað kemur til að þú ert að gefa út lag og tónlistarmyndband? 

„Mig hefur alltaf langað til að gefa út lög, sérstaklega með grínívafi. Ég prófaði bara að fara í stúdíóið hjá Elíasi Geir, félaga mínum, og sjá hvort að þetta væri möguleiki. Lagið var klárað á einni kvöldstund. Svo sendi ég þetta lag á vini mína því ég var svo stoltur af því, eins og maður gerir,“ segir Kjartan.

„Ég sendi þetta lag á Hákon Örn sem var í leikstjórnarnámi í Svíþjóð á þessum tíma. Honum fannst það svo geggjað að hann bara heimtaði að leikstýra þessu myndbandi. Ég auðvitað sagði já takk.“

„Skil ekki af hverju þau ráku mig þá ekki bara fyrr“

Kjartan Logi vann sjálfur sem stöðumælavörður frá 2018 til 2019 en hætti því honum fannst starfið ekki eiga við sig. Þegar hann var atvinnulaus fyrir tveimur árum greip hann til örþrifaráða.

„Mig vantaði sárlega vinnu þannig að ég vældi mig inn hjá Bílastæðasjóði til að gefa mér bráðabirgðasamning. Ég var svo bara á bráðabirgðasamningum sem stöðumælavörður aftur og aftur í tvö ár, sem er ekki sniðugt því maður má bara vera á þannig samningum í akkúrat tvö ár, vilt helst vera fastráðinn,“ segir Kjartan.

„Ég sótti um alveg þrisvar um að vera fastráðinn, fór þrisvar í starfsviðtal fyrir starfið sem ég var nú þegar með en fékk aldrei fastráðningu, þetta var mjög skrýtið. Fékk svo að vita það í sumar eftir seinasta starfsviðtalið að þeir ætluðu ekki að ráða mig og síðasti bráðbirgðasamningurinn minn væri að renna út,“ bætir hann við.

„Ég var greinilega ekki eins góður í mínu starfi og ég hélt,“ segir Kjartan. „Ég skil ekki af hverju þau ráku mig þá ekki bara fyrr. Kannski var það fyrir móralinn á kaffistofunni, ég var mikið grínast og sprella þar.“

Stöðumælaverðir eru tilfinningaverur.

„Svo verður maður bara að reyna að hafa gaman af þessu. Ég sendi kveðjutölvupóst á nánast alla starfsmenn Reykjavíkurborgar á lokadeginum mínum, þó ég þekki ekki 99,9 prósent af þeim, og fékk fullt af kveðjum til baka, til dæmis frá Hildi borgarstjóra. Það hlýjaði mitt rekna hjarta,“ segir Kjartan.

Ertu að reyna að ná þér niður á yfirmönnunum með laginu?

„Þetta lag var samið áður en ég var rekinn, þannig að það var ekki markmiðið,“ segir Kjartan.

„Ég vildi bara kafa dýpra í þær staðalímyndir sem fólk hefur af stöðumælavörðum og vinna dálítið með þær. Ég vona að yfirmennirnir fatti að ég er bara að grínast og hafa gaman af. Bílastæðasjóður starfar alls ekki svona.“

Er stöðumælavarðarstarfið vanþakklátt starf? 

„Þetta er vanþakklátt starf. Þetta er bara venjulegt starf eins og flest önnur störf, en stöðumælaverðir verða oft fyrir barðinu á fólki fyrir að vinna sína vinnu. Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar. Verið góð við stöðumælaverði.“

Ertu með einhverja eftirminnilega sögu úr starfinu?

„Ég sektaði einu sinni vinkonu mína þegar það voru svona mínus ellefu gráður úti og hún nappaði mig við sektina. Ég stóð kyrr á meðan hún spurði mig alls konar spurninga og fattaði þá að hún vissi ekkert að þetta væri ég, með buff yfir andlitinu og í risastórri úlpu. Ég þorði ekki að segja neitt við hana þannig ég bara kinkaði kolli og labbaði svo í burtu. Hún veit enn þann dag í dag ekki að þetta hafi verið ég sem sektaði hana.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.