„Tárin streymdu niður vangann á mér“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 16. október 2026 07:03 Matthildur Yrsa Sigurðardóttir, þrettán ára höfundur hóf að rita niður reynslu sína ellefu ára gömul. vísir/Sigurjón „Tárin streymdu niður vangann á mér. Pabbi kveikti á útvarpinu og setti á fréttirnar sem fjölluðu næstum því bara um Grindavík og jarðskjálftana. Út um gluggann horfði ég á hraunið okkar. Mér hafði alltaf þótt það fallegt en nú var það líka óhugnanlegt.“
Þetta skrifaði hin þrettán ára Matthildur Yrsa Sigurðardóttir í nýútgefinni bók sem ber titilinn Síðasti dagurinn. Hún tók upp á því aðeins ellefu ára gömul að skrifa um reynslu sína af því að neyðast til að flýja Grindavík ásamt fjölskyldu sinni líkt og fjölmargir Grindvíkingar þann 10. nóvember árið 2023. Eins og flestir muna eftir var bærinn rýmdur í skyndi þegar að stór kvikugangur myndaðist undir bænum eftir öfluga jarðskjálftahrinu. Við settumst niður með Matthildi og Þórunni Rakeli Gylfadóttur en þær skrifuðu bókina saman eftir örlagaríkt skólaverkefni í Stóra-Vogaskóla. Innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan. „Þá byrjaði ég í Stóra-Vogaskóla og þá kom Rakel og var að gera verkefni fyrir okkur krakkana og við vorum að gera smásögur. Síðan kom hún og kíkti til mín. Ég rétti henni blaðið mitt og þá fórum við að hittast oftar eftir það og héldum áfram að skrifa,“ sagði Matthildur. „Þessi frásögn var svo hjartnæm og greip mig strax. Ég sá hvað Matthildi var mikið niðri fyrir. Þetta var svo fallega skrifað. Það fyrsta sem maður hugsar er bara hversu gott það myndi gera henni að skrifa þessa sögu,“ sagði Þórunn. Um er að ræða verðlaunabók en hún hlaut verðlaunin Sólfaxa á dögunum við hátíðlega athöfn. Um er að ræða íslensk barnabókaverðlaun sem eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Myndirnar eru glæsilegar en Didda Flygenring á heiðurinn að þeim. „Hún bara hefur þetta alveg upp á töfraflug. Myndirnar í bókinni eru algjörlega einstakar. Þetta er samvinna okkar þriggja. Þótt við séum bara tvær hérna í dag þá á Didda stóran part í þessari bók,“ sagði Þórunn. Matthildur og Þórunn byrjuðu að skrifa í janúar 2024 þar sem þær unnu saman að því að velja réttu orðin til að lýsa upplifuninni. Hjálpaði þetta að einhverju leyti að skrifa þetta niður og gera afurð úr þessu? „Já, það hjálpaði með tilfinningarnar að koma þeim út og fá að skrifa þær. Það hjálpaði alveg.“ Myndirðu mæla með því fyrir fleiri á þínum aldri að gera það sama? „Já, bara skrifa á pappír og gefa einhverjum eða eiga það.“ Matthildur segist hafa náð enn betri tengingu við íslensku tunguna í gegnum verkefnið. „Ég hef verið að vinna að því að auka vægi ritunar og sköpunar og ég vil endilega að börn sem fullorðnir leiki sér með tungumálið í stað þess að leita alltaf að því rétta og ranga. Finna ný orð, búa til ný orð og tjá okkur. Í okkar tilviki var það þannig að Matthildur var með mjög erfiða reynslu og hún kom kannski ekki alveg réttum orðum að líðan sinni.“ En hvernig finnst þér einmitt að lesa þessa bók núna sjálf, nokkur ár núna liðin frá þessu. „Það er skrítið, það er öðruvísi að sjá þetta í bók og að þetta sé komið út. Mér líður vel þegar ég sé þetta og fæ allar tilfinningarnar til baka. Ég er rosa stolt af þessu. Er þetta eitthvað sem þú gætir séð fyrir þér að gera oftar í framtíðinni? Eða verða jafnvel rithöfundur? „Kannski. Ég tek allavega smá pásu núna og síðan sér maður til hvað maður gerir þegar maður er orðin eldri.“
Grindavík Bókmenntir Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Fleiri fréttir „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Sjá meira