Innlent

Salmonella greindist í kryddi Kokku

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Kryddið heitir Timur berry.
Kryddið heitir Timur berry. MAST

Matvælastofnun varar við neyslu á Timur berry kryddi frá Lifa ehf. sem er selt í Kokka þar sem Salmonella greindist í kryddinu. Fyrirtækið hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað vöruna.

Þetta segir í tilkynningu á vef Matvælastofnunnar. 

Þar segir að innköllunin einskorðist við vöru að nafni Timur berry (Zanthoxylum armatum) / Baie De Timur Nepal sem er merk best fyrir fimmta maí 2030.

Neytendum sem hafa verslað vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila í viðkomandi verslun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×