Innlent

Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari

Birgir Olgeirsson skrifar
Auglýsingahlé eru orðin tíðari í Vikunni með Gísla Marteini. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir ákveðið að hafa þau reglulegar þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera.
Auglýsingahlé eru orðin tíðari í Vikunni með Gísla Marteini. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir ákveðið að hafa þau reglulegar þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera. Vísir

RÚV ákvað að hafa auglýsingahlé reglulega í Vikunni með Gísla Marteini þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera. Útvarpsstjóri segir fleiri tónlistaratriði og áhorfendur í sal meðal ástæðna lengingarinnar. Heimilt er að rjúfa eigin framleiðslu RÚV með auglýsingum þegar þátturinn sjálfur nær klukkutíma.

Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fyrirspurn Vísis um lengingu Vikunnar og auglýsingahlé í þættinum.

Stefán segir auglýsingahlé ekki ný af nálinni í Vikunni.

„Þátturinn Vikan með Gísla Marteini hefur verið rofinn með auglýsingum af og til í gegnum árin.“

Hins vegar hafi verið ákveðið að nýta heimildina reglulegar eftir að þátturinn lengdist.

„Þegar ljóst var að sú lenging var komin til að vera var ákveðið að hafa auglýsingahlé inni í þáttunum með reglulegri hætti.“

Lengri þættir orðnir mun algengari

Yfirlit yfir lengd Vikunnar sem Vísir hefur undir höndum nær frá janúar 2020 til febrúarloka 2026. Þar sést að skráðar lengdir þáttanna hafa aukist og að þættir yfir klukkutíma urðu mun algengari síðla árs 2025.

Árið 2020 var enginn af 32 skráðum þáttum klukkutími að lengd. Árið 2024 náðu fimm af 25 þáttum klukkutíma og árið 2025 voru þeir tólf af 29.

Fleiri tónlistaratriði og áhorfendur í sal eru meðal ástæðna þess að Vikan með Gísla Marteini hefur lengst, að sögn útvarpsstjóra.Vísir/Anton Brink

Breytingin er sérstaklega skýr frá 24. október 2025. Allir níu þættirnir sem skráðir eru frá þeim degi til ársloka voru yfir klukkutíma. Fimm af sex skráðum þáttum í janúar og febrúar 2026 voru einnig yfir þeim mörkum.

Í yfirlitinu er ekki tilgreint hvort auglýsingar séu taldar með í lengdinni. Tölurnar sýna því þróun skráðrar lengdar, en úr þeim verður ekki ráðið hver efnislengd hvers þáttar var án auglýsinga.

Um ástæður lengingarinnar segir Stefán:

„Þættirnir hafa þróast og tekið allnokkrum breytingum á síðustu tveimur árum, áhorfendur í sal hafa lífgað upp á þáttinn, tónlistaratriðum hefur fjölgað meðal annars á grunni nýrrar tónlistarstefnu RÚV og þátturinn í heild lengst m.a. vegna fyrrgreindra atriða.“

Auglýsingar teljast ekki með klukkutímanum

Samkvæmt 7. gr. laga um Ríkisútvarpið er almennt óheimilt að rjúfa dagskrárliði með auglýsingum. Undanþágur eru þó fyrir íburðarmikla dagskrárliði og eigin framleiðslu sem er að minnsta kosti 60 mínútur að lengd.

Stefán segir engar breytingar hafa orðið á auglýsingareglum RÚV og tekur fram að klukkutíminn verði að vera dagskrárefni.

„Þegar rætt er um efnislengd er átt við lengd þáttarins sjálfs, án auglýsinga og dagskrárkynninga.“

Kappsmál og Landsleikarnir

Í fyrirspurn Vísis var einnig borin undir Stefán ábending um að Kappsmál hefðu verið sýnd án auglýsingahléa þótt þættirnir væru lengri en klukkutími, en að auglýsingahlé væru í nýja spurningaþættinum Landsleikunum.

Lengdir einstakra Kappsmálaþátta á vef RÚV staðfesta að þeir hafa farið yfir klukkutíma. Fyrsti þáttur síðasta hausts er til dæmis skráður 72 mínútur og sá næsti 71 mínúta. Kappsmál eru þar sögð framleidd af Skot í samstarfi við RÚV.

Klukkutímalengd Vikunnar opnar fyrir auglýsingahlé inni í þættinum. Auglýsingar og dagskrárkynningar teljast ekki með þegar lengdarskilyrðið er metið.Vísir/Anton Brink

Stefán fjallar ekki sérstaklega um þessa tvo þætti í svarinu. Um nýtingu heimildarinnar til auglýsingahléa segir hann almennt:

„Sú heimild er ekki alltaf nýtt og þar ráða ýmis sjónarmið. Þættir henta misjafnlega til rofs og ýmislegt annað getur komið til.“

Áætlar lægri auglýsingatekjur

Stjórnvöld hafa boðað breytingar sem eiga að draga úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði. Í frumvarpsdrögum sem kynnt voru 25. september er meðal annars lagt til að tekjur af auglýsingum umfram 2,8 milljarða króna verði dregnar frá fjárveitingu til félagsins.

 Fjárhæðin verði endurreiknuð með verðlagsbreytingum. Ráðuneytið vísar jafnframt til viðauka við þjónustusamninginn 2024–2027 um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði.

Stefán vísar til þróunar heildarauglýsingatekna í svari sínu:

„Hvað varðar umsvif RÚV á auglýsingamarkaði má geta þess að heildartekjur RÚV af auglýsingum hafa farið minnkandi undanfarin ár og gerir áætlun ársins ráð fyrir 5-7% raunlækkun auglýsingatekna frá fyrra ári.“


Tengdar fréttir

Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv

Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×