Innlent

Mögu­legar raf­magns­truflanir í stór­hríðinni

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að búast megi við samgöngu- og jafnvel rafmagnstruflunum á Vestfjörðum þar sem stórhríð er spáð á morgun.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að búast megi við samgöngu- og jafnvel rafmagnstruflunum á Vestfjörðum þar sem stórhríð er spáð á morgun. vísir/samsett

Lægðin sem fer yfir landið á morgun hefur alla burði til þess að verða söguleg, að mati veðurfræðings. Icelandair hefur boðið farþegum í innanlandsflugi að breyta bókunum sínum. Líkur eru á rafmagnstruflunum á Vestfjörðum en áhrifin verða ekki mikil á höfuðborgarsvæðinu ef spá gengur eftir.

Gular viðvaranir taka gildi klukkan sex í fyrramálið á Suðurlandi þegar lægðin kemur upp að landinu. „Þá kemur til með að hvessa verulega með suðurströndinni. Þetta er svona Vestmannaeyjaveður snemma í fyrramálið,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og bætir við að það muni einnig hvessa á höfuðborgarsvæðinu en þó ekki tiltakanlega.

„Síðan fara skilin norður yfir og það rignir frá þeim um land allt af dálítilli ákefð fyrri part dagsins. Síðan er að sjá sem veður versni verulega á Vestfjörðum og utanverðu Snæfellsnesi.“

Appelsínugul viðvörun vegna stórhríðar tekur gildi síðdegis á Vestfjörðum og svo á Norðurlandi vestra þegar líður á kvöldið. Einar segir líkur á samgöngutruflunum á svæðinu. „Og jafnvel þannig veður að af því hljótist rafmagnstruflanir. Þetta er alveg þannig veður að fólk þarf að halda sig heima.“

Veðurviðvaranir sem verða í gildi á morgun, miðvikudag.Vísir/Veðurstofa Íslands

Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur farþegum í innanlandsflugi verið boðið að færa bókanir sínar þar sem búist er við röskunum. Ekki hafa verið gerðar ráðstafanir í alþjóðaflugi og sem stendur er búist við að flugferðir frá Keflavík verði á áætlun. Björgunarsveitir eru þá í viðbragðsstöðu og vel er fylgst með spánni. 

Einar segir einnig fylgst með mögulegri hættu á sjávarflóðum. „Ekki þó á þessum þekktu og mestu flóðastöðum hér Suðvestanlands og á Eyrarbakka, Stokkseyri og í Sandgerði, heldur er það þá frekar austar og svo fyrir norðan.“

Mögulegt Íslandsmet

Einar segir lægðina afar óvenjulega á þessum árstíma.

„Við þekkjum svona djúpar lægðir yfir miðjan veturinn. Þær eru hins vegar miklu fátíðari á haustin og verða þá kannski til upp úr gömlum fellibyljum eða einhverju slíku. Það er ekkert þannig í gangi núna og það er verið að spá því að loftþrýstingur fari niður fyrir 940 hektópasköl hér sunnanlands um miðjan dag á morgun og það væri þá með því allra lægsta og jafnvel kannski það lægsta sem mælst hefur í mjög langri loftvogarmælisögu Íslands, það er að segja í október,“ segir Einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×