Innlent

„Maður undir­býr sig fyrir það versta“

Tómas Arnar Þorláksson og Telma Tómasson skrifa
Jóhann Magnússon hrossabóndi á Bessastöðum við Hrútafjörð að huga að stóðhestsefnunum áður en vonskuveður skellur á.
Jóhann Magnússon hrossabóndi á Bessastöðum við Hrútafjörð að huga að stóðhestsefnunum áður en vonskuveður skellur á. vísir/aðsend

„Maður býst ekki við neinu aftakaveðri fyrr en um hádegi á morgun. Ég býst nú við að menn hýsi í kvöld, þannig sofa menn betur og samviskan er betri. Maður undirbýr sig fyrir það versta.“ 

Þetta segir Jóhann Magnússon, hrossabóndi á Bessastöðum við Hrútafjörð, sem leggur nú allt kapp á að koma hrossum í var fyrir yfirvofandi óveður.

Bændur á Norðurlandi vestra eru nú í óðaönn að undirbúa tilfærslu á skepnum af túnum og koma þeim í skjól eða á hús, áður en vonskuveður skellur á, á morgun. Spár gera ráð fyrir því að hin djúpa lægð sem mun ganga yfir stóran hluta landsins á morgun geti valdið mestum usla á norðanverðum Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, en þar er gert ráð fyrir norðan stórhríð, með hvassviðri, lélegu skyggni og snjó á vegum. 

Færð getur spillst og búist við því að ekkert ferðaveður verði á þessu svæði, en þar taka appelsínugular viðvaranir gildi síðdegis á morgun og gilda inn í nóttina. 

„Við erum í þessum töluðu orðum að fara af stað í að smala heim öllum hrossum. Allavega folaldhryssur, veturgamlar, tveggja vetra, fara þar sem er aðgangur að skjólum og húsum. Einhver geld hross verða sett þar sem þau hafa aðgang að góðum skjólum,“ segir Jóhann sem tekur fram að folaldsmerar séu nú þegar komnar í gott skjól. 

Takið þið eitthvað inn af hrossum? Telurðu að það sé þörf á því?

„Hrossin sem voru í þjálfun í sumar og þótt þau séu í haustfríi þessa dagana þá verða þau tekin inn í kvöld eða í fyrramálið.“

Hann segir aðra bændur í nágrenninu vera í startholunum fyrir komandi óveður. Fé sé komið í hús. 

„Þetta tekur svona tvo til þrjá klukkutíma og þá eru þeir komnir með allt sitt fé á hús. Það er bara spurning hvort menn bíði og sjái til hvernig þetta er í fyrramálið. Maður býst ekki við neinu aftakaveðri fyrr en um hádegi á morgun. Ég býst nú við að menn hýsi í kvöld, þannig sofa menn betur og samviskan er betri. Maður undirbýr sig fyrir það besta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×