Fótbolti

Fiskaði rautt spjald í sigri

Andri Broddason skrifar
Hákon Arnar Haraldsson var ekki lengi að setja svip sinn á leik kvöldsins.
Hákon Arnar Haraldsson var ekki lengi að setja svip sinn á leik kvöldsins. Getty/Ibrahim Ezzat

Hákon Arnar Haraldsson var ekki í byrjunarliði Lille þegar liðið tók á móti Le Havre í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hann kom þó inn á í seinni hálfleik og var leikmaður Le Havre rekinn út af í 1-0 sigri Lille.

Dilane Bakwa kom Lille í forystu leiksins strax á fimmtu mínútu og virtist Lille ætla að valta yfir gestina. Lille sótti hart á Le Havre en liðið átti erfitt með að bæta öðru marki við.

Eftir því sem leið á leikinn byrjaði orka Lille að minnka og var staðan enn 1-0 í hálfleik. Hákon Arnar Haraldsson kom snemma inn á af varamannabekknum í seinni hálfleik og var ekki lengi að setja svip á leikinn.

Hákon Arnar var kominn í góða stöðu á vallarhelmingi Le Havre þegar varnarmaðurinn Ayumu Seko braut á honum. Fyrir brotið fékk hann að líta beint rautt spjald og var Le Havre manni færri það sem eftir var leiksins. 

Lille sótti mikið það sem eftir var leiks til þess að stækka forystu liðsins. Það gekk ekki en þrátt fyrir það fékk Lille öll þrjú stig leiksins. Lille er sem stendur á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar en Monaco getur komist aftur yfir Lille þegar liðin mætast í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×